Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 38
2 matur
ÍSBÚÐIN VIÐ LAUGALÆK
NJÓTUM ÓHUGNAÐARINS
Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar
SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM:
matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Karen Dögg Kjartansdóttir, Kjartan Guðmundsson og Vera Einarsdóttir
Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
Á þeim fjórum mánuðum sem liðnir eru síðan Lóa Bjarna-
dóttir opnaði Ísbúðina við Laugalæk að nýju hafa ýmsar
breytingar og nýjungar litið dagsins ljós í búðinni. Meðal
þeirra eru heitt kaffi frá Te og kaffi, kaffi/ísréttir og
breyttur afgreiðslutími, en nú er búðin opnuð búðin klukk-
an 7.30 á morgnana. „Þetta er eiginlega orðið hálfgert
kaffihús,“ segir Lóa og hlær. „Hugmyndin er sú að árrisul-
ir og kaffiþyrstir íbúar Laugarness og nágrennis geti
snætt hér inni hjá okkur í hlýjunni.“
Lóa segir kaffi og ís passa vel saman. „Meðal nýjunga
hjá mér er rétturinn affagato, sem þekkist til dæmis
á ítölskum kaffihúsum, og samanstendur af vanillu og
súkkulaði kúluís sem einum heitum espresso er hellt yfir.
Þessi réttur er mjög einfaldur og góður. Svo bjóðum við
líka upp á kaffisjeik sem er mjög vinsæll,“ segir hún.
Ísbúðin hefur einnig hafið sölu á nýbökuðum, heima-
gerðum vöfflum sem viðskiptavinir geta svo bragbætt
með miklu úrvali af sælgæti, sósum og sírópi. Þá er holl-
ustuhristing af ýmsu tagi einnig að finna á matseðlinum.
Heitt á vel við í vetur
100 g hafragrjón
100 g hveiti
80 g púðursykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
120 g lint smjörlíki eða smjör
sulta eða ber
Öllu blandað saman, annað-
hvort hnoðað með höndun-
um eða sett í matvinnsluvél.
3/4 af deiginu þrýst í eldfast
mót. Svo er sett sulta eða ber,
til dæmis rabarbara-, bláberja-
eða jarðarberjasulta, apríkós-
umarmelaði og frosin hindber
með smá agave-sýrópi. Það er
bara um að gera að prófa sig
áfram. Svo er restin af deiginu
tætt yfir. Þetta er bakað í ca 25
mínútur við 170° C. Best volgt
með þeyttum rjóma. Ef notuð
eru ber er þetta líkara böku,
þá má líka minnka hlutfall-
ið af haframjöli og setja meira
hveiti. Þetta er fljótlegt, tekur
ekki nema 5 til 10 mínútur frá
því maður byrjar þar til bakan
er komin í ofninn. Þetta er líka
hráefni sem flestir eiga.
HJÓNABANDSSÆLA KÖTUMér finnst voða gaman að baka en ég er svoddan hamfara-
kokkur, þoli eiginlega ekki
að fara eftir uppskriftum.
Ég vil bara slumpa og gera
tilraunir hvort sem ég er að elda eða baka,“
segir Katrín Bessadóttir, ritstjóri vefritsins
Smugunnar. „Það held ég að hún Benedikta
sem kenndi mér eldússtörfin í Hússtjórnar-
skólanum yrði ekki hrifin af tilburðunum,“
bætir hún því næst við glettnislega.
Katrín segir að sér þyki tilraunir sínar
þó yfirleitt heppnast vel, í það minnsta
kvarti Helgi Seljan, tilvonandi eiginmað-
ur hennar, ekki. „Ég held að flestir séu
sammála um að ég sé afbragðs kokkur og
bakari. Þó að ég sé harður jafnréttissinni
þá hleypi ég Helga ekki oft í eldhúsið −
nema þá til þess að vaska upp. Ég er svo
viss um mitt eigið ágæti í eldhúsinu, hvort
sem það er nú réttmætt eða ekki, að mér
hrýs hugur yfir því að hann sé eitthvað að
dandalast í kringum Kitchen-Aid vélina
mína. Eða okkar,“ segir Katrín. - kdk
Hjónabandsæla
HAMFARAKOKKSINS
Katrín Bessadóttir vill ekki að eiginmannsefnið komi nálægt Kitchen-Aid vélinni.
Katrín, ritstjóri Smugunnar,
segist afbragðs kokkur og
bakari. Hún sé harður
jafnréttissinni en hleypi
eiginmannsefni sínu þó ekki
oft í eldhúsið enda eigi
hann ekkert með að vera
að dandalast í kringum
Kitchen-Aid hrærivélina.
FR
ÉT
TA
B
LÐ
IÐ
/G
VA
Nammi
namm!
Þegar ég var yngri var mér ægilega uppsigað við hinar og þessar hátíðir. Valentínusardagurinn var eitur í mínum beinum og hrekkjavakan viðurstyggilegt uppátæki þeirra sem höfðu horft
of mikið á bandarískar barnamyndir. Fólk sem afsakaði þessar
uppákomur bar því oft við að þarna væru ekki endilega á ferð banda-
rískir siðir heldur væri Valentínusardagurinn ættaður frá Ítalíu og
hrekkjavakan keltnesk.
„Gott og vel, uppruni þeirra er ef til vill þaðan en Íslendingar taka
upp siðina frá Könum og þeir hafa svo haft áhrif á þróun hátíðarinnar
í upprunalöndunum,“ sagði ég þá geðvonskulega og bætti við svei!
En síðan hafa liðið mörg ár og ég skil bara engan veginn hvernig ég
nennti að fetta fingur út í jafn skemmtilega hluti og hrekkjavöku.
Hvers vegna ætti maður að væla yfir tækifæri til að kæta börnin
sín og sjálfan sig eingöngu vegna þess að viðburðurinn kemur fyrir
í bandarískum barnamyndum? Meira vælið í manni sí og æ. Þetta
gefur manni líka gott tækifæri til að skoða öðruvísi matreiðsluhætti,
uppskriftir og skreytingar.
Hrekkjavakan er nú einmitt sú nótt sem skilin á milli heima verða
þynnri eða hverfa og geta því ýmsar verur farið á milli aðeins þessa
stund. Auk þess markar hún þáttaskil í náttúrunni, veturinn og
myrkrið er að taka við og þá er tími til að kveikja á kertum og verjast
óvættum. Er ekki tilvalið að nota þann tíma til að kynnast nýjum
siðum til dæmis í eldhúsinu? Hvenær gefst annars tækifæri til að
prófa að skera út grasker, eða setja upp draugaskraut, útbúa kræsing-
ar með óhugnanlegu ívafi? Slíku hafa ekki aðeins börn gaman af held-
ur líka fullorðnir. Það er líka alveg tilvalið að fagna skammdeginu
og torráðnum leyndardómum sem kunna að leynast í skuggum þess
svona rétt áður en sjálf hátíð ljóss og friðar gengur í garð í allri sinni
fegurð.
Leitum því uppi skemmtilegar bandarískar matreiðslubækur og
síður á netinu og njótum þess að útbúa öðruvísi mat. Haganlega
skreyttar múffur með hlaupormum, súkkulaðiköngulóm og
vampírutönnum auk ófrýnilegra paddna úr lakkrís-
reimum geta bæði glatt börn og fullorðna. Við
getum svo útbúið litla sæta drauga með því
að setja lakkrísaugu í sykurpúða og notað
til skreytingar og átu. Möguleikarnir eru
óendanlegir og hver öðrum skemmtilegri.
Graskersréttir geta svo verið dásamlegir,
einkum súpurnar. Sleppum fram af
okkur beislinu og gerum skilin milli
æsku og fullorðinsára óljós, úðum í
okkur krásum, kveikjum á kertum og
segjum draugasögur. Það er ekki eins og
hægt sé að tapa einhverju á því en lík-
lega er þetta skrambanum skemmtilegra.
M Með-læti
Hvunn-
dags
Hollt
A Aðal-réttur
Til hátíða-
brigða
Fugla-
kjöt Kökur
S Smá-réttir
Sætindi
BÓKAFORLAGI‹ BIFRÖST
BÆKUR FYRIR BETRA LÍF
Fæst í öllum betri bókabúðum • bokaforlagidbifrost@simnet.is
Hefu
r bre
ytt líf
i
marg
ra á
mátt
ugan
hátt
Láttu
óski
r þín
ar
verða
að ve
ruleik
a