Fréttablaðið - 24.10.2009, Qupperneq 44
„Það er einhver tónn og taktur hjá
okkur Heimilistónunum sem hitt-
ir fólk beint í hjartað og fæturna.
Það ríkir ofboðsleg gleði á böllum
hjá okkur,“ segir Ólafía Hrönn
Jónsdóttir leikkona og meðlim-
ur í hljómsveitinni Heimilistón-
um. Hið árlega kjólaball sveitar-
innar verður haldið í Iðnó í kvöld
klukkan 23.00, en húsið opnar um
klukkan 21.00.
Þetta er fimmta árið í röð sem
kjólaballið er haldið, alltaf á sama
stað, í Iðnó. Ólafía Hrönn segir
gamla leikhúsið henta einkar vel
fyrir ball af þessu tagi. „Það er
allt svo flott hérna og reisn yfir
staðnum. Þessi böll hafa verið
svakalega vel sótt í gegnum tíð-
ina og aðsóknin eykst með hverju
árinu. Almennt er fólk bara svo
ánægt með að fá að dansa. Hing-
að kemur fólk úr öllum áttum og
drekkur í sig stemninguna,“ segir
Ólafía og bætir við að laufléttur
gamaldags bragur sé á kjólaböll-
um Heimilistóna. „Allir eru prúð-
búnir, það er boðið upp í dans og
þar fram eftir götunum. Við vilj-
um hvetja karlmenn sérstaklega
til að láta sjá sig í kvöld. Kvenfólk-
ið hefur hingað til verið duglegra
að mæta, en hér verður nóg af fal-
legum konum sem bíða hreinlega
eftir að verða boðið upp í dans.“
Heimilistónar hafa verið starf-
andi í tólf ár og hafa hingað til
sérhæft sig í erlendum lögum frá
fimmta og sjötta áratug síðustu
aldar. Að sögn Ólafíu munu gest-
ir kjólaballsins í kvöld verða vitni
að breyttum áherslum hjá sveit-
inni. „Við verðum með eitthvað
af nýjum lögum sem eru flest frá
áttunda áratugnum. Svo laumum
við nokkrum frumsömdum lögum
inn í dagskrána, en lög eftir okkur
sjálfar verða einmitt uppistaðan
á næstu plötunni okkar. Við spil-
um líka nokkur glæný lög eins
og Rehab með Amy Winehouse,
sem í okkar meðförum hljómar
eitthvað á þessa leið: „Þeir reyna
að láta mig í meðferð, en ég segi
nei, nei, nei,“ raular Ólafía, en eitt
aðalsmerki Heimilistóna um árin
hafa verið nákvæmar þýðingar á
erlendum dægurlagatextum.
Ólafía lofar því að mikið verði
um dýrðir á ballinu. „Síðustu árin
höfum við alltaf verið með leyni-
gest sem treður upp með okkur. Í
fyrra var Helgi Björns leynigest-
ur og þar áður Stefán Hilmarsson.
Það verða líka fleiri óvæntar
uppákomur og ekki má gleyma
gógó-dönsurunum. Þess má geta
að par sem dansar hjá okkur í
kvöld byrjaði saman á kjólaball-
inu okkar í fyrra. Þannig að ef ein-
hverjir byrja saman í kvöld væri
gaman að fá það par til að dansa
hjá okkur á næsta ári,“ segir
Ólafía. kjartan@frettabladid.is
Nóg af fallegum konum
sem bíða eftir dansherra
Árlegt kjólaball Heimilistóna verður haldið í Iðnó í kvöld. Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikona og meðlimur
söngkvintettsins, segir aðsóknina ávallt hafa verið góða enda sé fólk svo ánægt að fá að dansa.
ROPE YOGA SETRIÐ og veitingastaðurinn Gló í Listhúsinu í
Laugardal verða með opið hús í dag frá klukkan 13 til 15. Allir
eru velkomnir í spjall og glóandi léttar veitingar.
Þriðja sýning Hornfirska
skemmtifélagsins á Poppi og
kóki verður í kvöld á Hótel Höfn.
Á sýningunni troða skemmtikraft-
ar upp í hinum ýmsu gervum og
flytja þekkt lög úr kvikmyndum
við undirleik valinkunnra hljóð-
færaleikara. „Það er bara brjálað
stuð um hverja helgi og ekkert lát á
því,“ segir Heiðar Sigurðsson, tón-
listarstjóri sýningarinnar, þegar
slegið er á þráðinn austur. „Hingað
til hafa myndast biðlistar og eins
og staðan er núna held ég sé upp-
selt á allar sýningarnar nema
kannski þá síðustu sem fyrirhuguð
er 7. nóvember. Svo eru tvær skóla-
sýningar í næstu viku.“
Sýningar Skemmtifélagsins hafa
verið fastur liður á Hótel Höfn á
haustin og Popp og kók er sú átt-
unda í röðinni. Gestir hennar byrja
á að gæða sér á þriggja rétta máls-
verði, síðan hefst sýningin og að
lokum er dansað við dúndrandi
undirspil heimamanna. - gun
Stuð hverja helgi
Hornfirsku söngvararnir fara á kostum í Poppi og kóki. Hér eru það Hafþór Imsland,
Maríanna Jónsdóttir, Svava Mjöll Jónasdóttir og Anna Kristín Hauksdóttir. Við hljóð-
færin eru Heiðar Sigurðsson og Bjartmar Ágústsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN
Dansgestir munu verða varir við breyttar áherslur hjá Heimilistónum á ballinu í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þjóðahátíð Austfirðinga verð-
ur haldin á Vopnafirði í dag.
Á Vopnafirði býr fólk frá tólf
löndum utan Íslands.
Líkt og fagurt málverk er gert úr
fjölda penilstroka stendur fjöldi
samheldins en ólíks fólks að góðu
samfélagi. Þjóðahátíð Austfirð-
inga verður haldin í fimmta
skipti á laugardaginn í Vopna-
fjarðarskóla á Vopnafirði. Þar
verður kynning á þeim þjóðum
sem byggja Vopnafjörð en í þessu
litla bæjarfélagi býr fólk frá tólf
löndum utan Íslands.
„Það kemur á óvart hve margir
í þessu bæjarfélagi eru aðfluttir,“
segir Hrund Snorradóttir, for-
maður Vopnafjarðadeilda Rauða
kross Íslands. Hún segir fólk
samlagast samfélaginu vel enda
fagni samfélagið framlagi þess.
Þjóðfélagsbreytingar á Vopna-
firði hafi því tekist fremur vel
og ekki sé ætlunin að láta þar
staðar numið.
Þjóðahátíðin er haldin undir
slagorðinu „Byggjum betra sam-
félag“ en með því segir Hrönn að
ætlunin sé að hvetja til umræðu
um hvernig gera megi gott sam-
félag betra um leið og tekist
sé á við þjóðfélagbreytingar í
tengslum við aukinn fjölda inn-
flytjenda. Hátíðin hefst klukkan
eitt með opnunarathöfn og stend-
ur til klukkan fjögur. Hrönn segir
fjölbreytt skemmtiatriði verða
flutt og verðlaunaafhending í
teiknisamkeppni grunnskóla-
barna veitt. Eftir opnunina verð-
ur kynning á þjóðunum tólf sem
byggja Vopnafjörð og kynna þar
íbúar svæðisins nokkra áhuga-
verða þætti úr menningu þess.
Þjóðahátíð haldin
á Vopnafirði
Fagurlega skorin melóna á Þjóðahátíð
á Fáskrúðsfirði árið 2007.
Þjóðahátíð á Egilsstöðum árið 2004 en þar voru drengir með kynningu frá
S-Afríku.
Spilmenn Ríkínís halda tónleika
í Landnámssetrinu í Borgarnesi í
dag klukkan 16.
Spilmenn Ríkínís er fjölskyldu-
hljómsveit sem sérhæfir sig í
því að flytja tónlist úr íslenskum
bókum og handritum með hljóð-
færum sem vitað er til að voru á
Íslandi fyrr á öldum. Þetta eru
hljóðfæri á borð við langspil, sym-
fón, gígju og hörpu.
Á tónleikunum í Landnámssetr-
inu í dag leika Spilmenn Ríkínís
lög af nýútkomnum geisladiski í
bland við annað efni.
Spila á göm-
ul hljóðfæri
Spilmenn Ríkínís leika af fingrum fram í
Landnámssetrinu í dag klukkan 16.
Þarftu að kaupa, selja eða skipta? Sérstakir bíladagar
verða frá og með næstu helgi alla laugardaga
í smáauglýsingum Fréttablaðsins.
Sértilboð á bílaauglýsingum – aðeins 3.490 kr,
texti og mynd.
Hafið samband við sölumann í s. 512 5050 eða sendið
póst á smaar@frettabladid.is
Bíladagar – markaðstorg með bíla
Bíladagar
Fréttablaðsins!