Fréttablaðið - 24.10.2009, Qupperneq 56
„Ég hef svo rosalega gaman af
að fikra mig áfram í matargerð-
inni,“ segir Guðrún Ögmundsdótt-
ir, verkefnastjóri í menntamála-
ráðuneytinu. Guðrún hefur nýlega
hafið sölu á vörum sem hún fram-
leiðir sjálf undir heitinu Matar-
kveðja frá Guðrúnu Ögmunds.
Guðrún hefur reynst sigursæl í
ýmsum sultukeppnum síðustu ár
og ákvað að taka áhugann alla leið.
„Ég hafði samband við Matís sem
benti á Matarsmiðjuna á Höfn í
Hornafirði, sem styður þá sem
vilja hefja smáframleiðslu mat-
væla úr íslensku hráefni. Matar-
smiðjan er besti vinur smáfram-
leiðenda, gefur möguleika á að láta
hlutina gerast og óskirnar ræt-
ast. Þar framleiddi ég vörurnar
og þarf brátt að heimsækja Höfn
aftur þar sem salan gengur vel.“
Matarkveðjurnar samanstanda
af sultuðum rófum frá Seljavöllum
í Vatnajökulsþjóðgarði, sem Guð-
rún segir til dæmis henta vel með
lambakjöti, finnskættaðri tómat-
sultu sem inniheldur meðal ann-
ars lífrænt ræktaða tómata frá
Engi, og rabarbarapaprikumauki,
sem gott er að nota með osti,
fiski og sem marineringu. Í nóv-
ember koma svo á markað þrjár
tegundir af chili-sultu. „Sulta er
ekki bara sulta. Hana er hægt að
nota á ótal vegu og fólk á að vera
óhrætt við prófa sig áfram. Þess-
ar vörur eru mjög bragðgóðar og
sykur magnið í þeim er mjög lítið,“
segir Guðrún.
Vörur Guðrúnar fást í Búrinu í
Nóatúni, Melabúðinni, Frú Laugu
við Laugalæk, Fylgifiskum og
Ostabúðinni á Skólavörðustíg. - kg
Ég nota spelt og lífrænt heil-hveiti til helminga, sem er góð blanda. Svo er þetta
gerlaust sem er mikilvægast, enda
margir með óþol fyrir því,“ segir
Þórir Bergsson, kokkur á Grænum
kosti, um leið og hann leyfir blaða-
manni að lykta af ilmandi brauði
beint úr ofninum.
Brauðið er að hans sögn tiltölu-
lega einfalt í gerð. „Það er svo
fljótgert að fólk getur hæglega
búið það til og haft með sér heitt
í vinnu á virkum dögum. Nú eða
hent því í ofninn og haft í morgun-
mat um helgar,“ segir hann hress
í bragði. Bætir við að gott sé að
nota nóg af fræjum og leika sér
með mismunandi tegundir.
Með brauðinu segir hann ýmsar
áleggstegundir koma til greina.
„Heimlagað hummus er gott. Ég
mæli með uppskrift sem er stútfull
af tahini, það er sesam-mauki, og
svo kjúklingabaunum. Fólk getur
líka bætt við hana sesamfræjum
ef það vill. Svo sting ég upp á pes-
tói; þá annað hvort með basil eða
sólþurrkuðum tómötum, en þeir
hálfþurrkuðu eru mjög góðir.“
Þórir mælir með cashew-hnetum
í stað furuhneta og eins að sleppa
parmesanosti sem er oft hafður í
pestó vilji menn spara. „Svo er um
að gera að smakka þetta áður og
bæta við sítrónusafa eða salti til að
fullkomna útkomuna.“ - rve
Beint úr ofninum
Í brauðið fer spelt og lífrænt hveiti.
Þórir mælir með heimalöguðu hummus ofan á brauðið, og þá uppskrift sem er upp-
full af tahini og gott er að bæta sesamfræjum út í. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Pestó segir Þórir gott og tiltölulega
einfalt að útbúa.
BRAUÐ
2 dl heilhveitispelt
2 dl heilhveiti
1 dl fræ, til dæmis
sólblómafræ, sesam-
fræ, kókosmjöl.
1-2 tsk. salt
4 tsk. vínsteinsduft
300 ml AB mjólk
2 msk. olía
um það bil 3-4 dl
volgt vatn
Öllum þurrefnunum
blandað saman. AB
mjólk, olíu og vatni
bætt í. Hrært varlega
með sleif. Deigið á
að vera vel blautt,
sett í form sem þakið
er með smjörpappír.
Látið deigið ná upp
í miðjar hliðar. Ofn
forhitaður í 175°C og
bakað í 30-45 mín.
PESTÓ, GRÆNT
EÐA RAUTT
150 g cashew-hnetur,
ristaðar í ofni
1 stk. sítróna, notið
safann.
1-2 hvítlauksgeirar
um það bil 200 ml
ólívuolía
1-2 tsk. salt
1-2 búnt basil, ef búa
á til grænt pestó
eða 1 krukka sól-
þurrkaðir tómatar, ef
búa á til rautt pestó.
Athugið að þá er
gott að nota hálf sól-
þurrkaða tómata.
Setjið allt í matvinnslu-
vél. Smakkið til með
salti og sítrónu.
HUMMUS
250 g soðnar kjúkl-
ingabaunir
1 stk. hvítlauksgeiri
1 stk. chili, fræ-
hreinsað
um það bil 3 msk.
hvítt tahini
1 msk. sítrónusafi.
2 msk. steinselja,
hökkuð
50-100 ml olía.
1 tsk. salt
1/2 tsk. malað osta-
kúmen
1/2 tsk. malað kórí-
ander
Setjið í matvinnsluvél
og maukið þar til
áferðin er orðin mjúk.
Smakkið til með sítr-
ónu og salti.
HOLLT OG GOTT BRAUÐ, HUMMUS OG TVÆR GERÐIR AF PESTÓI
Matarkveðjan fæst meðal annars í Búr-
inu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MATARKVEÐJA FRÁ GUÐRÚNU
M
Þóri Bergssyni kokki finnst gott að fá sér gott og nýbakað brauð í morgunsárið.
Hann lætur lesendum í té uppskrift að einu slíku ásamt þremur áleggstegundum.
BÓKMENNTADAGSKRÁ UPPHEIMA
Í NORRÆNA HÚSINU Í DAG KL. 16:00
ALLIR VELKOMNIR | AÐGANGUR ÓKEYPIS
Tapio Koivukari frá Finnlandi les úr skáldsögunni Yfir hafið og í
steininn sem kemur út þennan sama dag.
Sigurður Karlsson kynnir þýðingu sína á Óþekktum hermanni
eftir Veino Linna.
Njörður P. Njarðvík les úr ljóðabókinni Hlustaðu á ljósið.
Eyþór Árnason les úr bókinni Hundgá úr annarri sveit, sem hann
nýverið hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
fyrir. Gyrðir Elíasson les úr ljóðabókinni Nokkur almenn orð um
kulnun sólar.
Böðvar Guðmundsson grípur niður í skáldsöguna Enn er
morgunn sem kom út nú í vikunni.
>>
>>
>>
>>
>>
Uppheimar efna til bókmenntadagskrár í Norræna
húsinu í dag, laugardag, þar sem kynntar verða
nýjar bækur.