Fréttablaðið - 24.10.2009, Side 88

Fréttablaðið - 24.10.2009, Side 88
64 24. október 2009 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI Ísland mætir í dag Frakk- landi í undankeppni HM 2011 en leikurinn fer fram á hinum sögu- fræga Stade de Gerland í Lyon, heimavelli Olympique Lyonnais. Leikið var á vellinum í úrslita- keppni HM karla árið 1998 og því er ljóst að Frakkar tjalda öllu til fyrir þennan mikilvæga leik. Íslenska liðið var nýkomið af æfingu á vellinum þegar Frétta- blaðið náði tali af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni landsliðsþjálfara. „Þetta er mjög flottur völlur og er búist við sex til tíu þúsund áhorfendum. Veðrið er flott og við erum afar spennt fyrir leiknum,“ sagði hann. Þó hefur íslenski hópurinn orðið fyrir einhverjum skakkaföllum. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir eru meiddar og þá var Sara Björk Gunnarsdóttir sett í einangrun á herbergi sínu á hóteli íslenska liðsins eftir að hún sýndi flensueinkenni. „Ég er þó ekki búinn að afskrifa hana fyrir leikinn. Við munum meta ástandið þegar nær dregur leiknum og sjá til þess að hún fái bestu mögulegu umönnun þess á milli,“ sagði Sigurður Ragnar. Þess fyrir utan eiga þær Mar- grét Lára Viðarsdóttir, Rakel Hönnudóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir allar við smávægi- leg meiðsli að stríða. „Þær eru allar leikfærar en tóku því rólega á æfingunni.“ Hann segir ljóst að höfuðáhersla verði lögð á varnarleik í leiknum í dag. „Við þurfum að spila öflugan varnarleik og þess á milli að nýta föst leikatriði vel og sækja hratt á þær þegar tækifæri gefst til. Aðalmálið er þó varnarleikurinn enda erum við að spila við sterkan andstæðing á erfiðum útivelli.“ Ísland mætti Frakklandi í úrslitakeppni EM í Finnlandi í sumar í eftirminnilegum leik. „Við munum auðvitað vel eftir þeim leik og það mun hvetja okkur til dáða. Það var ekki mikið sem skildi á milli liðanna en við feng- um tvö ódýr víti á okkur. Við viljum kvitta fyrir það.“ Aðeins liðið sem nær efsta sæti riðilsins kemst áfram í næstu umferð undankeppninn- ar og því er ljóst að leikurinn er afar mikilvægur. „Þetta er annar tveggja úrslitaleikja okkar í riðl- inum og við þurfum því á góðum úrslitum að halda. Maður ætti aldrei að taka því sem gefnu að við vinnum veikari liðin í riðlinum en þessi leikur er þó mikilvægari en flestir aðrir.“ - esá Ísland mætir Frakklandi ytra í mikilvægum leik í undankeppni HM 2011: Annar tveggja úrslitaleikja okkar LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir leikinn í dag skipta miklu máli fyrir íslenska liðið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Pressan á sunnudag er á Liverpool og Rafa Benitez, stjóra liðsins. Það hefur tapað fjórum leikum í röð, sem er versti árang- ur þess í 22 ár. Tapi liðið fimmta leiknum í röð á sunnudaginn verð- ur það í fyrsta skipti í heil 56 ár sem Liverpool tapar fimm leikjum í röð. Óhætt er að segja að ansi heitt sé orðið undir Benitez og það munu fleiri kasta eldivið á bálið tapist leikurinn á sunnudag. Liverpool- goðsögnin Kenny Dalglish, sem var orðaður við stjórastarfið í ein- hverjum miðlum, er einn af þeim sem styðja Benitez. Allir hafa trú á Rafa „Allir yfirmenn í þessu félagi hafa fulla trú á Rafa. Það er engin spurning um það. Það vita allir hjá þessu félagi að Rafa er rétti mað- urinn til þess að koma félaginu í gegnum þessa erfiðleika. Það er enginn að fara á taugum hérna. Það er mikilvægt að allir standi þétt saman núna svo við komumst í gegnum þetta,“ sagði Dalglish, sem var áður leikmaður og stjóri hjá félaginu. „Auðvitað er ekki gott að tapa fjórum leikjum í röð. Þetta er slæmt og stuðningsmennirnir eru jafn svekktir og allir starfsmenn félagsins. Það eiga allir sök að máli rétt eins og gott gengi er öllum að þakka. Þess vegna verða menn að standa saman núna.“ Stjörnurnar tæpar Óvissa er um þátttöku lykilleik- manna Liverpool, þeirra Fernando Torres og Steven Gerrard, í leikn- um en Benitez mun bíða fram á síð- ustu stundu með að taka ákvörðun um hvort þeir spili. „Það má ekki gleyma því að við lögðum United á Anfield í fyrra þegar Gerrard lék aðeins í 20 mín- útur og Torres var ekki með. Ef við gátum það í fyrra, af hverju ættum við ekki að geta það núna?“ spyr Dalglish. Menn hafa líka áhyggjur af meiðslum hjá United. Ekki var orðið ljóst í gær hvort Wayne Rooney gæti spilað en hann hefur misst af síðustu tveim leikjum liðsins. Einn- ig er óvissa um Darren Fletcher, sem er oftar en ekki afar drjúgur í stóru leikjunum. „Þetta er nágrannaslagur og bæði lið geta alltaf unnið þessa nágrannaslagi. Það hefur margoft gerst og skrýtnir hlutir komið upp. Ég er annars ekkert að velta mér upp úr gengi andstæðinganna. Ég er meira að hugsa um okkar leik. Það er stöðugleiki hjá okkur sem er mikilvægur,“ sagði Sir Alex Fergu- son, stjóri Manchester United. „Við mætum til leiks í ágætu formi. Það er sjálfstraust í hópnum en eins og ég segi er þetta nágrann- aslagur þar sem allt getur gerst.“ Sir Alex er búinn að vera lengi við stjórnvölinn hjá Manchester United og hefur upplifað ýmislegt í leikjum þessara erkifjenda. „Það hefur lítið breyst á 23 árum og þetta er enn risaleikur fyrir bæði lið og alltaf aðalleikur- inn hvað mig snertir. Það er allt- af erfitt að fara á Anfield. Þetta er alltaf erfiður leikur fyrir bæði lið og það verður engin breyting á því að þessu sinni,“ sagði Sir Alex Ferguson. henry@frettabladid.is Fer annar nagli í kistu Benitez? Gríðarlega mikið er í húfi fyrir Liverpool og stjórann Rafa Benitez á sunnudag þegar liðið fær meistara Manchester United í heimsókn. Liverpool hefur tapað fjórum leikjum í röð, er að missa af lestinni í deildinni og það er orðið heitt undir stjóranum. Óvissa er um þátttöku lykilmanna beggja liða í leiknum. FÁSÉÐ MISTÖK Nemanja Vidic gerir hér ein af fáum mistökum sínum síðasta vetur. Mistökin leiddu til þess að Fernando Torres skoraði. Það er óvíst hvort hann fái að kljást við Fernando Torres aftur á morgun. NORDICPHOTOS/AFP HANDBOLTI Guðmundur Guð- mundsson landsliðsþjálfari valdi í gær landsliðshópinn sem kemur saman til æfinga hér á landi í lok mánaðarins. Helst ber til tíðinda að Ólafur Stefánsson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen, gefur kost á sér á nýjan leik en hann hefur verið í fríi frá landsliðinu síðan á Ólympíuleikunum í Peking í fyrra. Alls eru ellefu leikmenn í hópn- um sem voru í silfurliðinu fræga á Ólympíuleikunum. Aðeins þrír leikmenn í hópnum spila með íslenskum liðum og koma þeir allir úr Hafnarfirðinum – tveir úr FH og einn úr Haukum. Þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson (GOG, Danmörku), Logi Geirs- son (Lemgo, Þýskalandi) og Einar Hólmgeirsson (Grosswallstadt, Þýskalandi) eiga allir við meiðsli að stríða en athygli vekur að ekkert pláss virðist fyrir Rúnar Kárason, leikmann Füchse Berl- in, að þessu sinni. - esá Landsliðshópurinn valinn: Ólafur gaf kost á sér á ný AFTUR Í LANDSLIÐIÐ Ólafur Stefánsson hefur ekki sagt sitt síðasta með íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LANDSLIÐSHÓPURINN Markverðir: Björgvin Páll Gústavsson Kadettten S. Hreiðar Guðmundsson Emsdetten Aðrir leikmenn: Alexander Petersson Flensburg Arnór Atlason FCK Aron Pálmarsson Kiel Bjarni Fritzson FH Guðjón Valur Sigurðsson RH Löwen Heiðmar Felixsson Lübbecke Ingimundur Ingimundarson Minden Ólafur Guðmundsson FH Ólafur Stefánsson RH Löwen Róbert Gunnarsson Gummersbach Sigurbergur Sveinsson Haukum Snorri Steinn Guðjónsson RH Löwen Sturla Ásgeirsson Düsseldorf Sverre Jakobsson Grosswallstadt Vignir Svavarsson Lemgo Þórir Ólafsson Lübbecke FULLT AF AUKAVIN NINGUM TÖLVULE IKIR · DVD MYNDIR · PEPSI M AX OG MARG T FLEIRA! SENDU SM S SKEYTIÐ EST ZBL Á N ÚMERIÐ 190 0 OG Þ Ú GÆT IR UNNIÐ M IÐA! 9. HVERVINNUR! FRUMSÝN D 23. OKT ÓBER Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.