Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 94

Fréttablaðið - 24.10.2009, Page 94
70 24. október 2009 LAUGARDAGUR „Hann tekur Björk, ég hef bara séð það á netinu og það er alveg hryllilega fyndið,“ segir Bjarni Haukur Þórsson, skipuleggj- andi fyrstu grínhátíðar Íslands, Reykjavik Comedy Festival. Hátíðin verður í Loftkast- alanum og hefst hinn 11. nóvember. Meðal þeirra sem þar troða upp er Bret- inn Phil Nichol sem bregður sér í allra kvikinda líki og meðal þekktra persóna hans er hin íslenska Björk Guðmundsdóttir. Nichol er feykilega vinsæll í uppistands- heiminum og hefur verið aðalgestur á mörgum af stærstu uppistandshátíðum heims. Meðal annarra erlendra gesta er Björn Gustavsson sem Bjarni Haukur kýs að lýsa sem strákabandsútgáfu af Pétri Jóhanni. „Það er að segja, þeir eru örugg- lega ámóta vinsælir í sínum heimalöndum en stúlkurnar kikna í hnjánum þegar hann birtist á sviðinu. Hann er reyndar ungur, aðeins 22 ára,“ segir Bjarni en til gamans má geta að Björn þessi er meðal gesta í sjónarpsþætti Frímanns Gunnarssonar sem fjallað hefur verið um á síðum blaðsins. Fjöldi Íslendinga mun einnig troða upp á hátðinni. Hinir síkátu og eldhressu Kaffi- brúsakarlar dusta rykið af gamanmálum sínum sem og Radíusbræðurnir Steinn Ármann og Davíð Þór. Þá verða nýstirnin í Mið-Íslandi einnig áberandi á hátíðinni, sem og margar af fyndnustu konum lands- ins; Helga Braga og Halldóra Geirharðs að ógleymdri Ólafíu Hrönn. Bjarni segir að jafnframt verði óreyndum grínistum einnig gefið tækifæri á svo- kölluðu „open mike“-kvöldi og svo verði sérstakt „X-rated“-kvöld en þar verði allt látið flakka. „Það verður svo sannarlega ekki fyrir viðkvæma og móðgunargjarna.“ - fgg 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. vín, 6. hæð, 8. dvelja, 9. kvk. nafn, 11. rás, 12. alkyrrð, 14. hljóðfæri, 16. málmur, 17. dolla, 18. auð, 20. sjó, 21. formóðir. LÓÐRÉTT 1. lita, 3. tveir eins, 4. snæleiftur, 5. saur, 7. blóm, 10. keyra, 13. sár, 15. slagæð, 16. svif, 19. tvö þúsund. LAUSN LÁRÉTT: 2. must, 6. ás, 8. una, 9. lóa, 11. æð, 12. alkul, 14. banjó, 16. ál, 17. dós, 18. tóm, 20. sæ, 21. amma. LÓÐRÉTT: 1. mála, 3. uu, 4. snæljós, 5. tað, 7. sólblóm, 10. aka, 13. und, 15. ósæð, 16. áta, 19. mm. PERSÓNAN Samúel Kristjánsson, forsvarsmaður Frostrósa. Aldur: 28 ára. Starf: Ég er framkvæmdastjóri. Fjölskylda: Móðir mín heitir Svana Samúelsdóttir og er gjaldkeri, og faðir minn er Kristján Bjarndal Jóns- son búnaðarráðunautur. Búseta: Ég bý í Kópavogi. Stjörnumerki: Tvíburi. „Þetta verður gríðarlega spenn- andi,“ segir Felix Bergsson, sem er á leiðinni til Liverpool i nóvember þar sem hann flytur einleik sinn Yulelads í Unity-leikhúsinu. „Þetta verða tvær sýningar í Liverpool í mjög fínu leikhúsi þar.“ Einleikurinn, sem fjallar um íslenska jólasiði, er hluti af NICE- menningarhátíðinni þar sem leitast er við að tengja saman menningu Norðurlanda og norðvesturhluta Englands. Í desember ætlar Felix síðan í vikuferð til London þar sem einleikurinn verður fluttur bæði í leikhúsi og í skólum. Þetta verð- ur í þriðja sinn sem Felix ferðast með Yulelads til London en verk- ið var frumsýnt þar í borg árið 2002. Hann segir að Bretar hafi ávallt tekið sér vel. „Þetta eru svo skemmtilegar sögur. Þeir hafa mik- inn áhuga á því hvernig jólasiðirnir okkar eru sprottnir út úr umhverf- inu og þjóðsögunum. Þetta er okkar menningararfur.“ Felix ætlar að nota tækifærið að reyna að skella sér á fótbolta- leik með Liverpool, enda forfallinn aðdándi Rauða hersins, sem styrkir einmitt NICE-hátíðina í ár. „Maður tékkar á því. Ég var heppinn síð- ast þegar ég fór út. Þá fékk ég leik í Meistaradeildinni.“ Hátíðin verður haldin dagana 19. nóvember til 3. desember og verður einleikurinn fluttur 21. nóvember. Fleiri Íslendingar verða á svæð- inu því hljómsveitin Thin Jim and the Castaways spilar í opnunarhófi hennar auk þess sem kvikmyndin Brúðguminn verður sýnd. Sömu- leiðis verða heimildarmyndirnar Steypa og Björk eftir þau Mark- ús Þór Andrésson og Ragnheiði Gestsdóttur sýndar. - fb Til Englands með jólaleikrit FELIX BERGSSON Felix er á leiðinni til Liverpool í næsta mánuði þar sem hann flytur einleik sinn Yulelads. Bjarkareftirherma á íslenskri grínhátíð BJARKAREFTIRHERMAN OG SÆNSKA KYNTÁKNIÐ Bjarni Haukur skipuleggur fyrstu grínhátíð Íslands, Reykjavík Comedy Festival, en meðal þeirra sem troða upp eru Bretinn Phil Nichol og hinn sænski Björn Gustavsson. Blaðamaðurinn Elín Albertsdóttir sendir frá sér ævisögu Þórunnar Jóhannsdóttur Ashkenazy, Íslenska undrabarnið, fyrir jól. Þórunn var undrabarn í píanóleik, en lagði frama sinn á hilluna og giftist rúss- neska píanósnillingnum Vla- dímír Ashkenazy. Ásgeir Tómasson, eiginmaður Elínar, lék sama leik fyrir nokkrum árum og gaf út ævisögu Rúnars Júlíus- sonar – svo að ævisögur eru augljóslega hjónunum hugleikn- ar. Lögfræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson hefur verið einstaklega áberandi í netheimum undafarið. Stöðuuppfærslur hans á Facebook- samskiptasíðunni hafa ratað í fréttir og þá sérstaklega þegar hann tjáir sig um málefni Morgunblaðsins. Á dögunum kvað við nýjan tón hjá Sveini, sem gantaðist í ungri háskólastúdínu. Hún sagðist á síðu sinni vera að læra um kynlíf í sálfræðitíma og lögfræðingurinn var snöggur að skrifa undir það og spurði: „Var það ekki löngu tímabært?“ Sigríður Margrét Oddsdóttir og félagar á Skjáeinum safna áskrif- endum í gríð og erg þessa dagana. Þrátt fyrir að áskriftargjald stöðvar- innar sé lægra en gengur og gerist hefur fólk misjafna trú á því að nógu margir landsmenn fáist til að borga áskrift. Sem dæmi um það má nefna að starfsmenn Skjáseins eru með veðmál sín á milli um hversu lengi stöðin muni verða áskriftar- stöð. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI Dýri Kristjánsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri leikhópsins Vesturports vegna verkefna á öðrum vettvangi og við starfi hans tekur Gunnhild- ur Helga Gunnarsdóttir. Eflaust muna einhverjir eftir henni sem stjórnanda stefnumótaþáttarins Djúpu laugarinnar á Skjáeinum fyrir þremur árum en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Gunnhildur hefur unnið að mestu leyti á bakvið tjöldin. Hún var meðal annars framkvæmdastjóri kvikmyndarinnar Algjör Sveppi og leitin að Villa og er að undir- búa leikverk með Sverri Þór sem væntanlega fer á fjalirnar í janúar. Hún hefur jafnframt unnið með Sverri við gerð þáttanna vinsælu auk þess að hafa verið á mála hjá framleiðsludeild Skjás eins og svo True North. Gunnhildur segir það hafa komið sér á óvart þegar Gísli Örn kom að máli við hana og bauð henni starf- ið. „Við vorum að vinna saman við tökur á Kóngavegi 7 og kynntumst þar mjög vel enda er samstarf- ið við svona bíómyndir ákaflega náið. Gísli kom þegar tökurnar voru að klárast og spurði hvort ég vildi taka þetta verkefni að mér.“ Vesturportsfólkið hefur haft það fyrir sið að geta varla verið kyrrt á sama staðnum lengi en Gunnhild- ur setur það ekki fyrir sig. „Nei, ég held að það sé ekkert vesen að vinna með þau. Þau eru hálfgerð- ir frumkvöðlar sem gera minna af því að tala og meira af því að gera hlutina. Og það verður eflaust skemmtilegt að vera hluti af svona frjóum hópi.“ En það er ekki hægt að sleppa Gunnhildi án þess að spyrja hana út í Djúpu laugina sem hún stjórn- aði um nokkurra mánaða skeið með Idol-stjörnunni Helga Ara- syni. Gunnhildur kveðst hafa tekið þetta að sér vegna þess að hún vildi vita hvernig það væri að vera fyrir framan tjöldin en ekki á bak við þau. „Mig langaði bara að prófa eitthvað nýtt, þetta var ákveðin áskorun fyrir mig. En síðan hefur leiðin legið í hina áttina og ég kann bara mjög vel við það.“ Gunnhildur er eldri systir leik- konunnar Ísgerðar Elfu Gunnars- dóttur og þær tvær hafa einu sinni unnið saman. Þær framleiddu Saumastofuna þrjátíu árum síðar en Gunnhildur hefur aldrei leitt hugann að því að reyna fyrir sér sem leikkona. „Ég hef ofboðslega gaman af þessu starfi og það geta jú ekki allir verið leikarar.“ freyrgigja@frettabladid.is GUNNHILDUR HELGA: NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI VESTURPORTS Er best á bak við tjöldin KREFJANDI STARF Gunnhildur gerir sér grein fyrir því að Vesturport er hópur sem á erfitt með að vera kyrr á sama staðnum lengi en hlakkar mikið til að takast á við framkvæmdastjórastöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HUMARSÚPA SKÖTUSELUR LÚÐUSNEIÐAR LÚÐUFLÖK HUMAR AÐEINS 1.890 kr./kg. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Tryggvi Guðmundsson 2 2,47 metrar 3 Flosi Ólafsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.