Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 1

Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MIÐVIKUDAGUR 28. október 2009 — 255. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég býst við að Los Angeles sé ein af þessum borgum sem fólk ann-aðhvort elskar eða hatar. Ég til-heyri fyrri hópnum, enda kunni ég mjög vel við mig í þessa þrjá mánuði sem ég bjó þar,“ segir Sig-ríður Þóra Ásgeirsdóttir, skrifta hjá RÚV. Sigríður Þóra dvaldi í Los Angeles í þrjá mánuði síðast-liðið sumar þar sem hún stundaði meðal annars förðunar- og hár-greiðslunám við MUD, Make-Up Designory-skólann.Sigríður Þóra leigði íbúð með tveimur skólasystrum sínum í Norður-Hollywood. „Við urðumsvo miklar vi k Sigríður Þóra segir mikinn tíma hafa farið í námið. „En þegar maður er í útlöndum býr maður sér til tíma til að gera aðra skemmtilega hluti. Los Angeles er frekar mikil bílaborg og ég var heppin að því leyti að vinir mínir voru duglegir að sækja mig og keyra eða lána mér bíl til að ég gæti farið þangað sem mig lang-aði. Með þeim fór ég meðal ann-ars til Santa Monica og á Venice Beach, Malibu Beach, þar sem ég sá höfrunga stökkva um í sjónumog fleiri skemmtilega t horni segir Sigríður Þóra svo ekki hafa verið. „Ég heyrði þó stund-um af þeim í hverfinu eða í þess-ari eða hinni búðinni sem ég hafði verið í stuttu áður eða seinna,“ segir hún og hlær. „Þó rakst ég á einn, David Eigenberg, en hann leikur Steve, barnsföður Miröndu í Sex and the City. Ég lenti nú reyndar óvart á smá spjalli við hann og eiginkonu hans. Þau höfðu komið til Íslands og spurðu mig mikið út í land og þjóð “Hú Nóg að gera í Los Angeles Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifta eyddi síðasta sumri í Los Angeles þar sem hún stundaði nám í förðun og hárgreiðslu. Þar eignaðist hún marga vini og leið svo vel að hún hyggst sækja borgina heim um jólin. Sigríður Þóra rakst á fremur fáar lifandi stjörnur í Los Angeles en lét þó taka mynd af sér hjá stjörnu Star Trek-hetjunnar Williams Shatner á Hollywood Walk of Fame. FERÐAFÉLAGIÐ ÚTIVIST stendur fyrir Útivistar ræktinni nokkrum sinnum í viku. Á fimmtudaginn klukkan 18 er farið frá vesturenda göngubrúar innar yfir Kringlumýrarbraut og gengið vestur með Öskjuhlíð með ströndinni út undir Ægisíðu og sömu leið til baka. www.utivist.is smur- bón og dekkjaþjónustasætúni 4 • sími 562 6066 BREMSUVIÐGERÐIRBREMSUKLOSSAR SPINDILKÚLURALLAR PERUR HJÓLBARÐAÞJÓNUSTARAFGEYMAÞJÓNUSTAOLÍS SMURSTÖÐBÓN OG ÞVOTTUR VEÐRIÐ Í DAG SIGRÍÐUR ÞÓRA ÁSGEIRSDÓTTIR Lærði förðun og hár- greiðslu í Los Angeles • á ferðinni Í MIÐJU BLAÐSINS Þurfti nýja áskorun Ólafur Stefánsson er ánægður með nýjan kafla á ferli sínum hjá Rhein-Neckar Löwen. ÍÞRÓTTIR 22 Hannar barnaföt Hönnuðurinn Birta Björnsdóttir í Júni- form hannar kjóla og peysur á litlar stúlkur. FÓLK 26 Konur sem kvikmynd Framleiðslufyrirtækið Zik Zak hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að skáldsögu Steinars Braga, Konum. FÓLK 26 Holtagörðum 512 6800 www.dorma.is SÆNGURNAR KOMNAR AFTUR Dúnsæng 140x200 Aðeins kr. 14.900,- Dúnkoddi 50x70 Aðeins kr. 3.900,- verndar viðkvæma húð Leynist þvottavél frá í þínum pakka? Loksins aftur Opnum eftir 3 daga Hrunið breytti miklu Þráinn Jóhannsson skósmíðameistari fagnar 25 ára rekstrarafmæli Þráins skóara um þessar mundir. TÍMAMÓT 16 SKÁLDSÖGUR Umtöluð, heillandi og eftirminnileg verk Sérblað um skáldsögur FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG RIGNING Í dag verða austan 8-13 m/s, en 13-18 við suðurströndina fyrir hádegi. Víða rigning einkum suðaustanlands, en væta í flestum landshlutum síðdegis. Hitinn verð- ur á bilinu 2-8 stig, mildast syðst. VEÐUR 4 2 2 5 7 5 EFNAHAGSMÁL Vísbendingar eru um að bandarísku vogunarsjóð- irnir sem veðjuðu gegn íslensku bönkunum í fyrravor eignist Íslandsbanka og Nýja Kaupþing að mestu leyti. Kröfuhafar Glitnis ákváðu að taka 95 prósenta hlut í Glitni fyrir hálfum mánuði. Um mánaðamótin ræðst hversu stóran hlut kröfu- hafar Kaupþings taka í nýja bank- anum. Vogunarsjóðirnir keyptu skuldatryggingar Glitnis, Kaup- þings og Landsbankans í fyrra- vor með þeim afleiðingum að vaxtakjör bankanna ruku upp, og áttu þeir örðugt með fjár- mögnun á erlendum mörkuðum. Þá er grunur um að sjóðirnir hafi tekið skortstöður gegn erlendum fyrirtækjum sem þau íslensku áttu hlut í. Við það jókst álagið á íslensku fyrirtækin og keyrði það hlutabréf þeirra niður. Eftir fall bankanna fyrir ári sóttu vogunarsjóðirnir í að kaupa skuldabréf íslensku bankanna af þýskum bönkum og evrópskum fjármálafyrirtækjum. Evrópsku fyrirtækin höfðu flest tapað háum fjárhæðum eftir þrot íslensku bankanna og höfðu litla löngun til að eiga bréfin, hvað þá hlut í bönk- unum. Að því leyti teljast vogunar- sjóðirnir heppilegri eigendur. Skuldabréf Glitnis og Kaup- þings voru seld með allt að 98 pró- senta afslætti eftir fall bankanna í fyrra. Verðið hefur að minnsta kosti fjórfaldast síðan þá og er meiri hækkunar vænst. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja vogunarsjóðina hafa aflað sér mikillar þekkingar á íslensku efnahagslífi eftir við- skipti við Íslendinga um árabil. Þá kunni þeir að sjá hagnaðarvon í endurreisn íslenska efnahags- lífsins, ekki síst eftir að verstu eignirnar hafa verið hreinsaðar úr bókum bankanna, þar á meðal skuldir eignarhaldsfélaga. Seðlabankinn sagði í fyrradag skuldir eignarhaldsfélaganna nema eitt þúsund milljörðum króna. Kröfur á þau hafa verið færðar niður í bókum bankanna. Skilanefnd Glitnis býst í besta falli við að tíu prósent skuldanna skili sér. Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, staðfestir þetta og segir allt eins líklegt að krafan verði strikuð úr bókum bankans. Ekki mun þó um afskrift lána að ræða og kann því eitthvað að skila sér í hús á endanum. Mikil áhætta er sömuleiðis falin í kröfum á rekstrarfélög, sem mörg hver standa illa. Það er helsti vandi bankanna í dag. - jab Vogunarsjóðir sjá tækifæri í íslensku bönkunum á ný Sjóðir sem högnuðust á falli íslenska efnahagslífsins eru meðal helstu kröfuhafa bankanna. Nýju bank arnir verða hreinsaðir af lélegum kröfum. Þúsund milljarðar króna hafa því sem næst verið afskrifaðir. DAGUR BANGSANNA Alþjóðlegur bangsadagur var á leikskólum í gær, á afmælisdegi Theodores Roosevelt, sem hugtakið „Teddy Bear“ er kennt við. Haukur Leó Sigurðsson, Brynjar Þór Hlynsson og Soumya Sandip Shelke á Mánagarði voru alsæl með daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EFNAHAGSMÁL Fyrirtæki í sjávar- útvegi hafa í miklum mæli fryst höfuðstól gengistryggðra lána. Fyrirtækin eru með 11,5 prósent af heildarlánum íslenskra fyrir- tækja og er nær eingöngu um gengistryggð lán að ræða, eða 95 prósent. Alls hefur höfuðstóll 21 prósents útistandandi lána verið frystur. Þetta kemur fram í riti Seðla- banka Íslands, Fjármálastöðug- leiki 2009. Seðlabankinn nefnir nokkrar mögulegar ástæður fyrir þessari þróun. Lánastofnanir séu viljugri til að frysta höfuðstól lána sjávarútvegsfyrirtækja vegna þess að þau séu talin lífvænlegri en fyrirtæki í mörgum öðrum atvinnugreinum. Eins að sjávar- útvegurinn vilji geyma greiðslur til að hámarka gjaldeyristekjur og frysti lánin í von um hagstæða gengisþróun. Rúmlega helmingur gengis- bundinna lána sjávarútvegsins var tekinn í svissneskum frönk- um og japönskum jenum. Mjög lítill hluti útflutningstekna er í þessum myntum og er þetta mis- ræmi í samsetningu tekjuöflunar og útlána talið geta valdið útveg- inum erfiðleikum. - shá Léttara fyrir sjávarútvegsfyrirtæki að semja um lán sín en aðrar atvinnugreinar: Fimmtungur lána í frystingu RÚSSLAND Rússneska vaxtarræktar- sambandið hefur látið gera brjóst- mynd af Vladimír Pútín sem gefa á Arnold Schwarzenegg- er, ríkisstjóra Kaliforníu. Árið 1991 gaf samband- ið Schwarzen- egger styttu af honum og þáver- andi forseta sambandsins. Þegar forystu- menn sambandsins komust að því að Arnold safnaði styttum ákváðu þeir að láta gera fyrir hann styttur af sovétleiðtogunum Lenín og Stal- ín. Fleiri leiðtogar fylgdu í kjölfar- ið, og nú er komið að Pútín. Talsmaður Pútíns segir hann ekki samþykkan uppátækinu. Hann vilji alls ekki að gert sé út á persónulegar vinsældir hans. - sh Eitt vöðvatröll gefið öðru: Arnold fær styttu af Pútín STYTTAN AF PÚTÍN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.