Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 15

Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 15
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég býst við að Los Angeles sé ein af þessum borgum sem fólk ann- aðhvort elskar eða hatar. Ég til- heyri fyrri hópnum, enda kunni ég mjög vel við mig í þessa þrjá mánuði sem ég bjó þar,“ segir Sig- ríður Þóra Ásgeirsdóttir, skrifta hjá RÚV. Sigríður Þóra dvaldi í Los Angeles í þrjá mánuði síðast- liðið sumar þar sem hún stundaði meðal annars förðunar- og hár- greiðslunám við MUD, Make-Up Designory-skólann. Sigríður Þóra leigði íbúð með tveimur skólasystrum sínum í Norður-Hollywood. „Við urðum svo miklar vinkonur að ég ætla að heimsækja þær og fleiri vini mína til Los Angeles um jólin og áramót. Ég er ekki mikið jóla- barn og hef alltaf viljað prófa að vera í útlöndum yfir hátíðarnar svo þetta verður vonandi bara gaman,“ segir Sigríður Þóra og brosir. Sigríður Þóra segir mikinn tíma hafa farið í námið. „En þegar maður er í útlöndum býr maður sér til tíma til að gera aðra skemmtilega hluti. Los Angeles er frekar mikil bílaborg og ég var heppin að því leyti að vinir mínir voru duglegir að sækja mig og keyra eða lána mér bíl til að ég gæti farið þangað sem mig lang- aði. Með þeim fór ég meðal ann- ars til Santa Monica og á Venice Beach, Malibu Beach, þar sem ég sá höfrunga stökkva um í sjónum og fleiri skemmtilega staði sem er vert að sjá. Svo var mér líka oft boðið í grillveislur, afmæli, alls kyns boð og þar fram eftir göt- unum. Það var nóg að gera. Ég fór líka í helgarferð til San Diego með vinkonu minni og það var frá- bært. Það er borg sem ég væri svo sannarlega til í að fara til aftur.“ Spurð hvort hún hafi ekki rek- ist á kvikmyndastjörnur á hverju horni segir Sigríður Þóra svo ekki hafa verið. „Ég heyrði þó stund- um af þeim í hverfinu eða í þess- ari eða hinni búðinni sem ég hafði verið í stuttu áður eða seinna,“ segir hún og hlær. „Þó rakst ég á einn, David Eigenberg, en hann leikur Steve, barnsföður Miröndu í Sex and the City. Ég lenti nú reyndar óvart á smá spjalli við hann og eiginkonu hans. Þau höfðu komið til Íslands og spurðu mig mikið út í land og þjóð.“ Hún segir alla hafa verið mjög áhugasama um uppruna hennar. „Það fylgdi alltaf sögunni að ég væri frá Íslandi þegar ég var kynnt fyrir nýju fólki og öllum fannst það mjög spennandi. Vitn- eskjan um Ísland var mismik- il en fyndnast var að í eitt sinn þegar ég sagðist vera héðan þá sagði maðurinn: „Vá, það er löng keyrsla þangað!!“,“ segir Sigríður og hlær. kjartan@frettabladid.is Nóg að gera í Los Angeles Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifta eyddi síðasta sumri í Los Angeles þar sem hún stundaði nám í förðun og hárgreiðslu. Þar eignaðist hún marga vini og leið svo vel að hún hyggst sækja borgina heim um jólin. Sigríður Þóra rakst á fremur fáar lifandi stjörnur í Los Angeles en lét þó taka mynd af sér hjá stjörnu Star Trek-hetjunnar Williams Shatner á Hollywood Walk of Fame. FERÐAFÉLAGIÐ ÚTIVIST stendur fyrir Útivistar ræktinni nokkrum sinnum í viku. Á fimmtudaginn klukkan 18 er farið frá vesturenda göngubrúar innar yfir Kringlumýrarbraut og gengið vestur með Öskjuhlíð með ströndinni út undir Ægisíðu og sömu leið til baka. www.utivist.is smur- bón og dekkjaþjónusta sætúni 4 • sími 562 6066 BREMSUVIÐGERÐIR BREMSUKLOSSAR SPINDILKÚLUR ALLAR PERUR HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA RAFGEYMAÞJÓNUSTA OLÍS SMURSTÖÐ BÓN OG ÞVOTTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.