Fréttablaðið - 28.10.2009, Qupperneq 16
28. október 2009 MIÐVIKUDAGUR2
Bílatryggingar sem taka mið af
akstri gætu verið handan við horn-
ið. Ingi Björn Sigurðsson í fyrir-
tækinu Have a Good Drive hefur
yfir búnaði að ráða sem gerir
tryggingafélögum það kleift. „Ég
nota tæknibúnað sem settur er í
bíla er metur aksturslag og mælir
kílómetrafjölda. Því get ég gefið
tryggingafélögum upplýsingar
sem opna möguleika á að taka upp
notendadrifnar ökutækjatrygg-
ingar. Fyrirtækið SAGAsystem
á búnaðinn og er með alþjóðlegt
einkaleyfi á hugvitinu bak við akst-
urslagsmælingarnar. Það hefur
verið notað í átta ár á Íslandi og
gefist vel. Um leið og ökumaður-
inn er gerður ábyrgur fyrir eigin
akstri fer hann óhjákvæmilega
að keppast við að verða betri. Til
dæmis lækkaði Pósturinn tjóna-
tíðnina um 56 prósent fyrsta árið
með því að gera ökumönnum grein
fyrir hvernig þeir keyrðu.“
Ingi Björn stofnaði fyrirtækið
Have a Good Drive í ágúst síðast-
liðnum en vann áður hjá SAGAsyst-
em eftir að hafa lokið mastersprófi
í nýsköpunar- og frumkvöðlafræð-
um. Hann kveðst víða fá góð við-
brögð við hugmyndum sínum um
ökutækjatryggingar sem taki mið
af akstri. En verða þær ekki dýrari
en þær sem nú eru við lýði fyrir þá
sem keyra mikið? „Jú, þess vegna
ætti fólk að geta valið á milli
tvenns konar trygginga. Ég get
ímyndað mér að þeir sem noti bíl-
inn lítið muni velja notendadrifn-
ar tryggingar en aðrir sem keyra
mikið halda sig við hinar,“ segir
hann og tekur dæmi um mismun-
andi bílanotkun. „Maður frænku
minnar er búinn að vera tjónlaus
síðan 1968 og keyrir 4-5.000 kíló-
metra á ári. Hann er að borga það
sama og ungur frændi minn sem
keyrir 30-40 þúsund kílómetra og
fer með tvo dekkjaganga.“
Samkvæmt rannsókn í Banda-
ríkjunum frá 2001 keyra konur
þar fjörutíu prósentum minna en
karlar og valda fjörutíu prósent-
um færri slysum, að sögn Inga
Björns. „Víðast hvar borga konur
samt sömu tryggingar og karlar
og eru því í raun að borga fyrir
slysin sem þeir valda,“ bendir
hann á. „Iðgjöldin byggja alltaf á
einhverri áhættu og ef búnaður í
bílnum segir ökumanni á hverjum
degi að keyra betur þá lækkar það
tjónakostnað. Þetta hefur því gíf-
urlegan sparnað í för með sér, ekki
bara fyrir einstaklinginn heldur
líka þjóðfélagið,“ segir hann.
gun@frettabladid.is
Tryggingar í takt við akstur
Á Strandarkirkju hefur verið meiri
átrúnaður en á nokkrum öðrum
stað hérlendis. Öldum saman
hefur verið heitið á Strandar-
kirkju í lífsháska eða erfiðleik-
um og enn streyma peningar til
hennar vegna áheita. Fyrir bragðið er hún orðin ein
auðugasta kirkja landsins.
Sögustaðir Íslands
Varla getur talist sanngjarnt að allir greiði sömu tryggingar af bílum
sínum, hvort sem þeir keyra 5.000 eða 50.000 kílómetra á ári. Lengi
hafa verið uppi hugmyndir um að breyta því fyrirkomulagi og á síð-
ustu árum hefur komið fram tækni sem gerir það mögulegt.
Ingi Björn Sigurðsson uppfinningamaður.
Svona gengur
þetta fyrir sig
Lítil tölva (ökuriti) er sett í bíl.
Ökuritinn reiknar út vegalengd
og hvernig bíllinn er keyrður.
Ökuritinn sendir gögn í gegnum
GSM-kerfið til Have a Good
Drive.
Have a Good Drive býr til upp-
lýsingar fyrir tryggingarfélög.
Tryggingafélögin reikna iðngjöld
og senda tryggingatökum upp-
lýsingarnar.
Tryggingatakar fá upplýsingar
um hversu vel þeir keyra.
VEÐURSÍMINN er símsvari Veðurstofu
Íslands. Númerið er 902 0600 en þar má fá
upplýsingar um veður á ensku, landspá, sjó-
veðurspá og flugveðurlýsingu. www.vedur.is
Gistiheimili í Kaupmannahöfn
Herbergi og studioíbúðir
í miðbænum
sími 0045-2848 8905La Villa
Nýkomið glæsilegt
úrval af kvenskóm
úr leðri og fóðraðir
með flís.
Margar gerðir.
Stærðir: 36–42
Verð: 17.500.-
Stærðir: 36–41
Verð: 17.500.-
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki