Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 30

Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 30
18 28. október 2009 MIÐVIKUDAGUR NOKKUR ORÐ Anna Margrét Björnsson ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Fljótur, ég þarf að fá áfyllingu, smokkfiskurinn minn er bleklaus. Blekheimar Ú tsal a Taktu þig saman í and- litinu, Günther! Þú getur ekki setið hérna og reykt og drukkið svona! Svona, þetta er miklu betra! Lækkaðu í útvarpinu, Janus. Þú ert aftur farinn að herma eftir Mick Jagger og ég held að Palli þoli það ekki. Ég er ekkert skyldur þessu fólki!! Doppótt gúmmíbein sem pípar! PÍÍP PÍÍP PÍÍP PÍÍPPÍÍP PÍÍP Hvernig hef ég getað lifað án þess ... og allir lifðu hamingju- samir upp frá því. Hvað á það eiginlega að þýða? Enginn fýlusvipur?Ha? Engir slæmir hárdagar? Eigum við virki- lega að trúa því að þetta fólk hafi verið algjörlega hamingjusamt það sem eftir lifði? Aldrei stungin af býflugum? Rispuð hné? Láttu ekki svona! Sko, þetta er nú ævintýri... Já en ég vil að mín ævintýri séu trúverðug! Þegar ég var lítil átti ég heima í grónu og gamaldags úthverfi Lundúnaborgar þar sem haustið læddist ljúflega að manni með lykt af brenndri sinu og shepherd‘s pie. Á haustin áttu sér líka stað mikil hátíðahöld í formi Guy Fawkes-nætur og Halloween. Síðari hátíðina þekkja íslendingar sem hrekkjavökuna en hún er farin að síast inn í okkar eigin þjóðarmenningu. Guy Fawkes- nótt er hins vegar brenna sem er haldin 5. nóvember til að minnast þess að Guy Fawkes nokkur var brenndur á báli fyrir svik gegn bresku krúnunni. Dálítið drungaleg ástæða til að gleðjast en hvaða barn gleðst ekki yfir björtu báli á dimmu kvöldi með bolla af heitu kakói á milli handanna? Á hrekkjavökunni var móðir bestu vinkonu minnar með árlegt krakkaboð þar sem við mættum í hryllilegum vampírubúningum, drukkum bláan nornadrykk úr seiðpotti og gæddum okkur á ljúffengri graskerssúpu. Svo döns- uðum við trylltan dans í nálægum skógi áður en við bönkuðum upp hjá nágrönnum til að betla nammi. Ég hef aldrei losnað við þessa barnslegu gleði sem fylgir því að klæða sig upp á hrekkjavöku og ég held að októbermánuður hafi sjaldan liðið í lífi mínu án þess að ég setti einu sinni upp vígtennur. Í gær keypti ég einmitt vígtennur á börnin og kærastann (kötturinn er með sínar eigin) svo að allir á heimilinu geti fengið útrás fyrir sína innri vampíru næstu helgi. Mér finnst ekkert að því að við Íslending- ar tökum hrekkjavökunni opnum örmum og það væri ráð að grafa upp einhverjar fleiri og þjóðlegri hátíðir til að halda upp á að hausti. Heiðnir menn til forna hljóta að hafa fundið upp á partíum til að hressa upp á skammdegið. Upp með vígtennurnar! Föstudaginn 30. október nk. verður haldinn Umhverfisdagur Farfugla. Þar verður fjallað um áhrif ferðalaga á umhverfið og leiðir sem fara má til að draga úr þeim, bæði af hálfu ferðamanna og ferðaþjónustuaðila. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á vefsíðu okkar www.hostel.is/umhverfisdagur Farfuglar ❚ Borgartún 6 ❚ 105 Reykjavík ❚ Sími 575 6700 ❚ www.hostel.is Umhverfisdagur Farfugla verður haldinn kl. 13:30-17:00 í Kornhlöðunni, Bankastræti 2. Aðgangur ókeypis – allir hjartanlega velkomnir. 13:30 Fundarsetning. Markús Einarsson framkvæmdastjóri 13:45 Umhverfisáhrif ferðalaga? Hulda Steingrímsdóttir hjá Alta 14:30 Innsýn í starf á Farfuglaheimilinu í Laugardal Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri 15:00 Innsýn í starf Hópbíla Pálmar Sigurðsson skrifstofustjóri 15:20 Kaffihlé 15:50 Meðal hirðingja í Mongólíu Ásta Kristín Þorsteinsdóttir 16:10 Innsýn í starf Íslenskra fjallaleiðsögumanna Jón Gauti Jónsson fjallaleiðsögumaður 16:40 Á kajak um Jökulfirði Valdimar Harðarson Steffensen 17:00 Fundarslit Hvernig getum við dregið úr umhverfisáhrifum ferðalaga? U M H V E R F I S D A G U R FA R F U G L A Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.