Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 38

Fréttablaðið - 28.10.2009, Page 38
26 28. október 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. fjármunir, 6. frá, 8. skammst., 9. sarg, 11. tveir eins, 12. strýtu, 14. krapi, 16. verslun, 17. sönghópur, 18. drulla, 20. mun, 21. inniloka. LÓÐRÉTT 1. kássa, 3. hljóm, 4. skáld- saga, 5. pumpun, 7. töf, 10. gljúfur, 13. rúm-ábreiða, 15. skíðaíþrótt, 16. hryggur, 19. holskrúfa. LAUSN LÁRÉTT: 2. góss, 6. af, 8. möo, 9. urg, 11. gg, 12. keilu, 14. slabb, 16. bt, 17. kór, 18. aur, 20. ku, 21. króa. LÓÐRÉTT: 1. mauk, 3. óm, 4. sögu- bók, 5. sog, 7. frestur, 10. gil, 13. lak, 15. brun, 16. bak, 19. ró. Framleiðslufyrirtækið ZikZak hefur tryggt sér kvikmyndarétt- inn að bók Steinars Braga, Konur, sem kom út á síðasta ári. Hún fékk frábæra dóma og var af mörgum talin bók ársins. Þórir Snær Sigur- jónsson, framleiðandi hjá ZikZak, var því að vonum ánægður með að klófesta verkið. „Hún var náttúr- lega afar fersk þegar hún kom út og þarna eru miklir möguleikar á túlkun fyrir hvíta tjaldið,“ segir Þórir en ZikZak hefur verið öfl- ugt á þeim vettvangi að tryggja sér kvikmyndarétt að íslenskum skáldverkum. „Við erum alltaf að skoða bækur en þessi stóð óneitan- lega upp úr í fyrra,“ segir Þórir og útilokar ekki að kvikmyndin verði jafnvel gerð á ensku. „Nú fer hún í venjulegt ferli hjá okkur og kannski í smá forgang því þetta er verk sem við erum ákaf- lega hrifnir af. Nú er bara að finna rétta fólkið, handritshöfunda og leikstjóra, til að koma þessu upp á hvíta tjaldið.“ Bókin segir frá konu sem flytur til Íslands og fær í gegnum kunn- ingja sína í bankageiranum glæsi- lega risíbúð í Skuggahverfinu. Smám saman uppgötvar hún að ekki er allt sem sýnist, að hún er fangi íbúðarinnar. Þórir segir að það hafi einmitt verið þessi drungalega stemning sem hafi fangað hann fyrst. „Mín túlkun er sú að Steinar Bragi sé þarna að skrifa um hin ósýnilegu landa- mæri sem minnihlutahópar þurfa einmitt alltaf að kljást við.“ Steinar Bragi var að vonum ánægður með samninginn en bætir því við að þessi draumur geti auð- veldlega snúist upp í martröð. „Það fer auðvitað eftir því hvern- ig kvikmyndin kemur út,“ segir Steinar Bragi og bætir því við að ÞÓRIR SNÆR SIGURJÓNSSON: MEST SPENNANDI BÓK SÍÐASTA ÁRS Kvikmyndafyrirtæki læsir klóm í Konur Steinars Braga KOM Á ÓVART Steinar Bragi bjóst aldrei við því að skáldsaga hans Konur yrði kvikmynduð en Þórir Snær Sigurjónsson og ZikZak hafa tryggt sér kvikmyndaréttinn að henni. „Ég eignaðist litla stelpu fyrir sjö mánuðum þannig að það var bara tímaspursmál hvenær ég færi að sauma litla kjóla á stelpur,“ segir Birta Björnsdóttir, fatahönnuður og eigandi tískuvöruverslunarinnar Júniform. Hún hefur nú hafist handa við að hanna og sauma kjóla fyrir litlar stelpur og auglýsti þá á Fésbókarsíðu verslunarinnar. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og segist Birta hafa fengið fjölda fyrir- spurna frá viðskiptavinum. „Það varð allt vitlaust og búðin fylltist strax daginn eftir. Ég er aðeins með föt á þriggja til tólf mánaða gamlar stelpur og marg- ir voru að forvitnast um hvort fleiri stærðir væru í vændum. Eins og er anna ég vart eftirspurn og ég held að ég verði bara að finna auka manneskju til að sjá um saumaskapinn eigi ég að anna þessu.“ Auk kjólanna saumar Birta einnig litlar ullar- peysur úr íslenskri ull og leggur mikið upp úr því að efnin séu mjúk og þægileg. „Ég passa mig að hafa kjólana þægilega og litríka og þeir líkjast ekki því sem ég hef hannað á konurnar. Það gengur ekki upp að klæða litla stelpu eins og þrítuga konu.“ - sm Hannar kjóla á litlar stúlkur HANNAR BARNAFÖT Birta Björnsdóttir hannar kjóla á litlar stelpur og selur í Júníform. Sjálf á hún sjö mánaða gamla dóttur. Tvö lög með Ingó og Veðurguð- unum verða á nýrri Strumpa- plötu sem kemur út 17. nóvember, þar á meðal titillagið Bahama. „Ég sagði bara já þegar ég var spurður hvort það mætti nota lögin á Strumpaplötu því krakkarnir hafa örugglega gaman af þessu,“ segir Ingó. Lagið hans Bahama hefur notið mikilla vinsælda, rétt eins og Macarena-lagið sem var á gríðarlega vinsælli Strumpaplötu sem kom út 1996. Seldist hún í hátt í þrettán þúsund eintökum. Tvær Strumpaplötur fylgdu í kjölfarið sem seldust samanlagt í um tíu þús- und eintökum. Stefgjöld renna til þeirra sem eiga lög á Strumpaplöt- um og því mætti ætla að Ingó fengi þar vænan skerf í sinn hlut. „Ég var ekki að búa mig undir að græða mikið á þessari Strumpa- plötu. Miðað við að við höfum ekkert mokgrætt á Veðurguðaplötunni þá er, held ég, erfitt að græða mikið á Strumpa- plötunni enda er u m v ið bara með tvö lög.“ Alls verða tíu vinsæl íslensk lög á plötunni auk fjögurra frá belgíska Strumpa-rétthaf- anum. Strumpasöngvar- arnir verða þeir sömu og síðast, þeir Einar Rúnarsson og Björgvin Ploder úr Sniglabandinu. „Ég náði varla að stynja upp erindið áður en þeir sögðu já ,“ s e g i r Eiður Arnars- son hjá Senu. Hann telur það hið besta mál fyrir Ingó að fá höfundar- laun fyrir plöt- una. „Ef hann græðir þá græðum við líka í þessu tilfelli.“ Á meðal fleiri laga á plötunni verða Sódóma með Sálinni, Stuðmannalagið Manstu ekki eftir mér og Týnda kynslóðin eftir Bjartmar Guðlaugsson. „Það veittu allir góðfúslegt leyfi og þetta þótti mörgum hverjum afskaplega mikill heiður,“ segir Eiður. - fb Strumparnir syngja Bahama-lag Ingós INGÓ VEÐURGUÐ Strumparnir syngja hið vinsæla Bahama eftir Ingó og Veður- guðina á nýrri plötu sem kemur út í nóvember. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI þreifingar um þessi mál hafi hafist í febrúar. Þá hafi hann verið inni- lokaður í Kanada vegna efnahags- hrunsins á Íslandi og nærst nær eingöngu á ókeypis kebab. „Það hvarflaði annars aldrei að mér að þessi bók gæti orðið að kvikmynd. Ég held líka að ef maður sjái það eitthvað fyrir sér gæti maður bara alveg eins skrifað kvikmyndahand- rit,“ segir Steinar, sem hyggst ekki vera með puttana í kvikmynda- gerðinni sjálfur. „Nei, þeir hjá ZikZak eru djúpir og snjallir. Von- andi fær maður samt að vera með.“ freyrgigja@frettabladid.is FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA „Ég fæ mér múslí og stundum egg eða speltbrauð með smjöri og osti. Með þessu drekk ég grænt te.“ Þóra Björk Þórðardóttir tónlistarkona. Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, verður frumsýnd 4. nóvember á Amer- ican Film Market ef marka má vefsíðuna IMDB. Myndin skartar Diane Kruger og Dermot Mulroney í aðalhlutverkum auk Sams Shep- ard og Rosönnu Arquette. Verður forvitnilegt að sjá hvernig kvik- myndaáhugafólk vestanhafs tekur myndinni en víst er að hérlendis bíða margir spenntir. Steak and Play, sportbarnum sem Ásgeir Þór Davíðsson rak við Grensásveg, hefur verið lokað. Íþróttafíklar sem hafa leitað í skjól þar verða að róa á önnur mið því staðurinn sem verður opnaður í staðinn á lítið sam- eig- inlegt með íþróttum. Um er að ræða svo- kallaðan ´80s-stað með ljósagólfi og fleiru í ætt við hinn misskilda áratug. Nú hefur verið tilkynnt að kvik- mynd Gíslar Arnar Garðarssonar, Prince of Persia, verður frumsýnd 28. maí á heimsvísu. Fulltrúar Sam- félagsins á Íslandi hafa víst séð opinbera stiklu myndarinnar og þar bregður Gísla töluvert fyrir. Þá hefur myndin einnig verið sýnd fyrir fáa útvalda og þeir munu hafa hrifist ákaflega af því sem þeir sáu. Gísli er nú í London að taka upp viðbót- arsenur fyrir myndina en hann leikur Vesírinn. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1. Rio Tinto Alcan. 2. Svörtuloft. 3. Margrét Tryggvadóttir, formaður Hreyfingarinnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.