Ljósberinn


Ljósberinn - 15.11.1937, Page 15

Ljósberinn - 15.11.1937, Page 15
LJÓSBERINN þar sem hin óblíSa og ósáttgjarna Lú- kretía frænka hennar varði henni að- gang að heimili og hlýju, — með hatt- öskjugarminn á handleggnum og hina dýrmætú sólhlíf í hinni hendinni. Það var farið að syrta í lofti og kom- ið reglulegt aprílveður, — aðra stund- ina glaða sólskin, en þess á milli krapa- skúrir. Þegar Silky litla var komin spöl- korn áleiðis, hvarf sólin alveg formála- laust á bak við gráann og loðinn skýja- flóka, og sú fólska norn, sem þannig faldi blessaða sólina, hellti úr fötum sínum vatni og snjó ofan á Silky litlu, hattöskjuræfilinn og sólhlífina góðu. Timm, sem stóð á bak við steingarð- inn og hafði auga á Silky, sá að hún var í stökustu vandræðum í þessu syndaflóði. Hann hefði strax þotið af stað, til að liðsinna henni, ef að Maren Brown hefði ekki sagt það, alveg ótví- rætt, að hann skyldi bara rétt aðeins voga sér að hafa sig svo í frammi, að Bensons-fólkið kæmi auga á hann. Og þar eð hann hafði megnasta ímugust á eldspúandi óvættum, varð hann, sér til sárrar kvalar, að horfa á vandræði og örvæntingu Silky litlu þarna í vatns- flóðinu. Hattöskjuræfillinn varð gegnblautur á svipstundu, og að gömlu, mölétnu sól- hlífinni varð Silky litlu ekkert skjól, þó að hún spennti hana upp. Þétt og þungt regnið rann í gegnum hana og renn- bleytti stráhatt litlu stúlkunnar og gló- bjartar flétturnar hennar. Og til þess að fullkomna þessa eyði- leggingu, komu nú ósvífnar vindhviður þjótandi yfir völlinn, sem hristu og skóku sólhlífina í höndunum á Silky litlu, svo að hún átti fullt í fangi með að missa hana ekki. Lokið fauk af hatt- öskjunni. En þar sem enginn tími var til, að taka það upp, lét hún það eiga sig, og flýði sem fætur toguðu inn um hliðið og inn í húsagarðinn. En um leið og hún hljóp upp á steinhelluna, fyrir framan útidyrnar, kom snörp vindhviða, sem snéri sólhlífinni við í einum hvelli og þreif hana út úr höndunum á Silky. Sólhlífin skoppaði síðan yfir forarpoll- ana og lagðist loks til hvíldar í einu garðshorninu. Franih. Áhrif ambáttar. Margir vita, að hinum mikla Agúst- ín biskupi var bjargað af glapstigum og að hann snerist fyrir bænir Mon- íku móður sinnar. En færri vita, hver það var, sem sneri Moníku. Þegar hún giftist, gaf móðir hennar henni ambátt, sem var kryplingur. Hún var innilega trúuð og ávann sér traust og trúnað húsmóður sinnar. Ambáttinni tókst að fá Moníku til að hætta sinni óhóflegu vínnautn og gefast Drottni algerlega. Það var vanskapaðri ambátt að þakka, að kirkjan eignaðist þann, sem mest- ur er talinn af öllum feðrum hennar. Góði hirðirinn. Gódur hirdir Gud minn er, gætir nótt og dag ad mér, leidir mig um grænar grundir, gefur ótal sœlar stundir. Nád pín, Jesús, nægir mér, nafnid pitt mín trygging er. B. J. 339

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.