Ljósberinn - 01.05.1945, Page 4

Ljósberinn - 01.05.1945, Page 4
LJÓSBERINN JÓNAS HALLGRlMSSON (Kafli úr ræðu Davíðs Stefánssonar, skálds, við setningu Listamannaþingsins^ --------— Þegar skáldið frá Hrauni sá dagsins Ijós, mátti svo heita, að ís- lenzkt þjóðlíf væri í rústum. Fyrirrennar- ar hans liöfðu runnið skeið sitt án þess að verða mikið ágengt, jafnaldrarbiðu þrosk- ans og starfskraftanna. Móðuharðindin voru nýlega afstaðin, jarðskjálftar hófust á Suðurlandi, skepnur féllu, og allskyns harðindi þjörmuðu svo að þjóðinni, að fjöldi manna lét lífið úr hungri og pest- um. Einokuninni var ekki enn lokið, sigl- ingar tregar, danskir kaupmenn, danskir embættismenn, — og konungi þóknað- ist að afnema alþingi með öllu sjö árum fyrir fæðingu Jónasar. — Þá var dapurt í sveitum .... Níu ára gamall missir Jónas föður sinn og verður tökubarn frammi í Eyjafirði. Vafalaust hafa allar þessar miklu hörm- ungar haft djúpstæð áhrif á hina ungu og viðkvæmu barnssál, og sízt væri fjar- stæða að ætla, að þangað mætti rekja uppruna hins ævilanga lífstrega skálds- ins, er síðar hlaut eldskírn nýrra erfið- leika, nýrra sorga. — Síðari ár ævinnar reikar þessi gestur jarðar um öræfi og byggðir landsins, um framandi borgir og beykiskóga, þjáður af ástarharmi, sjúk- dómi og fátækt. — En þjóðin var sjálf þjáð, ekki síður en skáld hennar. Og Jón- as Hallgrímsson lét sér annara um henn- ar hag en sinn eiginn. Frá barnæsku var hann nákunnugur högum bændafólksins; — og þegar hann þrcskast, hefur lokið námi í Bessastaða- skóla, dvalið í háskólantrm í Kaupmanna* liöfn, kynnzt frelsiskröfum erlendra þjóða og notið hinnar miklu útsýnar, — þá skildi hann að fullu, hvernig Islend- ingum var innanbrjósts. Úti við strend- ur landsins var tungan óhrein: Danskan hafði í Reykjavík það einkaleyfi fram yfir íslenzkuna, segir Jón Thoroddsen, að bezt þótti fara á því að kenna börn- unum hana fyrri en íslenzkuna, ella» sögðu menn, gæti aldrei orðið lag á err- inu. — Ofríki og stjórnleysi höfðu í senn bælt alþýðu manna; undir niðri þráði hún frelsi og sjálfstjórn, en vonleysið og vantrúin á landið lömuðu kjarkinn og blinduðu sjón hennar til hálfs. Með þessa þekkingu á þjóð sinni kvað Jónas Hallgrímsson sér liljóðs. Hann rak ekki upp skerandi öskur, notaði livorki stóryrði né kjarnyrði tungunnar, held- ur mælti á hinu ástkæra, ylhýra máli, sem hann hafði nmnið af fólkinu í dala- kotunum og þýðendum Miltons og Hóm- ers. Og boðskapurinn, sem hann flutti, er af mörgum talinn allt annað en hyl' djúp speki. Heiðrík og silfurtær ljóð, eins og hans, eru aldrei talin speki, jafn- vel ekki sannleikurinn sjálfur, ef haxin er sagður með látlausum orðum. Og þó að Jónas Hallgrímsson liefði gaman af að ganga með silfurgljáandi hnappa 1 frakka heiðbláum, þá var liann andvíg- ur allri sundurgerð í ljóðum sínum og ritum. Þar mælir liann eins og skilgot- inn sonur dalanna, segir þjóðinni blátt 64

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.