Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 14

Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 14
LJÓSBERINN um, og verða því að vera áfram dýr um hríð. Hinir drengirnir fá kaupið sitt, en af því að mér er farið að þykja sérstak- lega vænt um þig, er ég að hugsa um að gefa þér dálítinn lilut, sem þú getur hafl mikið gagn af alla þína ævidaga. Sjáðu, liérna fæ ég þér hesilviðar- flautu. Geymdu hana vel. Komist þú í hættu og óskir þú einhvers sérstaklega mikið, langi þig verulega mikið til ein- livers, skaltu blása þrisvar í flautuna. Eg kem þá til þín tafarlaust og athuga, hvað liægt verður að gera“. Drengurinn þakkaði gjöfina og hélt aftur út í veröldina. I þetta sinn komst hann til konungshallarinnar, án þess að rata í nokkurt ævintýr. Þar leitaði liann sér atvinnu og var svo lánsamur að fá hana. Þegar Hjassi hafði verið í konungshöll- inni einn mánuð, sá hann prinsessuna, hana Sykurvör. Á sama augnabliki varð hann alveg frá sér numinn, því að hann hafði aldrei, alla sína ævi séð neitt svo unaðslega, dásamlega yndislegt eins og þessa prinsessu. Meira að segja hafði hann aldrei getað liugsað sér slíka feg- urð. Hann gekk um, eins og í draumi, gleymdi öllu öðru, og hugsaði einungis um prinsessuna. Kom svo loks að hann þoldi ekki viö lengur, greip hesilviðarflautuna og blés í hana þrem sinnum. Það leið ekki langur tími þangað til Kurriribumbumbum stóð fyrir framan hann. „Hvað viltu mér?“ spurði tröllkarlinn. Pilturinn sagði honum þá frá því, að hann hefði séð prinsessuna og orðið svo hrifinn af fegurð hennar, að hann gæti alls ekki án liennar lifað. „Veiztu, hvort hún er eins góð eins og hún er falleg?“ spurði tröllkarlinn. Nei, það vissi nú pilturinn vitaskuld. ekki, en Hjassi hélt að svona falleg prins- essa hlyti að vera hreinasti engill. „Þar er ég nú á annarri skoðun“, sagði tröllkarlinn. „Ég hef meira að segja ver- ið að bollaleggja með sjálfum mér, að breyta bæði konunginum, prinsessunni og nokkrum öðrum í skollatófur, en ég hef frestað því í þeirri von að þetta hvski kynni að bæta ráð sitt“. Nú fannst piltinum tröllkarlinn vera fjarsk’a ranglátur og ósanngjarn, því prinsessan væri sannarlega öllum hugs- anlegum dyggðum prýdd. „Fyrst að þú hefur nú orðið svona töfraður af prinsessunni“, mælti Kurr- iribumbumbum og strauk síða, hvíta skeggið sitt, „verð ég að reyna að lækna þig — en það verður engin sældar-lækn- ing. En samt lofa ég þér því, að þú skalt fá prinsessuna fyrir konu, ef þú óskar þess enn eftir eitt ár. En þá verður þú að fallast á uppástungu mína, og dvelja með henni héilt ár og kynnast henni“. Kurriribumbumbum talaði enn langa stund við Hjassa. Og Hjassi samþykkti allt, því að honum virtist jafn óhugsandi að hann hefði skipt um skoðun í þessu efni, að ári liðnu, eins og að liann gæti sópað annari hvorri stjörnu niður af stjörnuhimninum. Niðurstaðan af samræðum tröllkarls- ins og piltsins varð þá sú, að liinn fyrr- nefndi klæddist í dularbúning, setti skrít- inn páfagauk á öxlina á sér og bað, þann- 74

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.