Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 6

Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 6
LJÓSBERINN Reykjavík á dögum Jónasar Hallgrímssonar. Vtsýni frá Túngötu. koma skal. Þess vegna leit liann bæði um öxl og fram á veginn. Hann ann fortíS- inni, bergir af Mímisbrunni óðs og sagna, dáir frjálsræði og forna hetjulund. Mörg fegurstu kvæði sín yrkir liann undir hátt- um Eddunnar, blæs í þá nýrri fegurð — lífsanda framtíðarinnar. Vel gætu þessi kvæði verið kveðin í dag, eins og fyrir hundrað árum. Við dáum þau enn meira en samtíðarmenn skáldsins. Er þetta ekki að skilja lögmál tungunnar og tímans, vera í senn spámaður og skáld? Jónas Hallgrímsson órti fyrir alla þjóð- ina. Eftir lians daga liafa öll íslenzk skáld tekið málstað alþýðunnar, en eng- inn með jafnmiklum árangri. En þó eru önnur skáld oftar nefnd, ef eggja þarf til snöggra átaka, eða skipta þjóðinni i illvíga andstöðuflokka. Þá hverfur uni stund hin blíða rödd skáldsins frá Hrauni; en þegar storminn lægir, hljóm- ar hún á ný, mildari og fegurri og hjart- anlegri en nokkru sinni áður. Á gleði- stuiidum eru Ijóð hans sungin. Á sorgar- stundum veita þau hugsvölun. I hvert sinn, er rifjast upp fyrir manni lína eða ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, er að því sálubót. Þjóðin og landið verða manni hugstæðari — bæði í sæld og þrautum. ★ Það verður varla sagt, að seinni tíma skáld hafi lagt nokkurt verulegt kapp á að temja sér tungutak Jónasar Hallgríms- 66

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.