Ljósberinn - 01.05.1945, Qupperneq 13

Ljósberinn - 01.05.1945, Qupperneq 13
LJÓ SBERINN inn þarna er fyrirrennari þinn hjá gamla Iiúsbónda þínum. Hann var latur og trassafenginn og svikull strákur, og auk þess var hann farinn að verða vondur við dýrin. Nú verður liann að gera sér að góðu að vera grís nokkra hríð“. „Þarna sérðu félaga þína“, bætti tröil- karlinn við, og benti á tíu, tólf stráka, sem góndu á Hjassa og göptu af forvitni. -,Þeir eru allir ágætustu strákar. Láttu nú sjá, að þú getir einnig spjarað þig“. Innan skamms var Hjassi orðinn eins og heima hjá sér hjá tröllkarlinmn og leið þar ágætlega. Hann fékk reyndar nóg að gera, en einnig gott og nægilegt fæði, og húsbóndanum og félögum hans féll ágæt- lega við hann. Stundum safnaði tröllkarlinn strákun- um umhverfis sig, sveiflaði töfrastafnum og sýndi þeim dásamlegar sýnir. Stundum sáu þeir líf villidýranna í skógunum. Þeir sáu villidýrin læðast tii rána, og líf smádýranna í holum þeirra og leynum. Sáu umhyggju dýranná, ánna fyrir lömbum sínum, og fuglanna fynr ungum sínum, og lífsbaráttu fiðrildanna og annara smádýra fyrir tilverunni. Stundum sáu þeir liúðdökka menn með fullklyfjaðar úlfaldalestir á leið um eyði- mörkina með vörur til vesturlanda, frá austurlöndum. Eða ráðvanda pílagríma á leið til einhvers helgiseturs. Og stundum hurfu piltarnir aftur í gráa forneskju, langt aftur í aldir, áður en manneskjur komu fram á jörðinni. Þá sáu þeir ógurlegar risaeðlur berjast við önnur tröllaukin dýr mn yfirráðin á jörðinni. Tröllkarlinn sýndi drengjuniun þetta og ótal margt annað. Og allt virtist þetta svo lifandi og raunverulegt að þeim rann stundmn kalt vatn milli skinns og liör- unds og fór hrollur mn þá. Einn dag varð Hjassi litli bæði stein- hissa og ofsaglaður. Það var daginn, sem þeir Rappo og Rakka, lians góðu, gömlu vinir hoppuðu upp í fangið á honum, og réðu sér ekki fyrir gleði yfir sam- fundunum. „Hvernig komust þeir hingað?“ spurði pilturinn tröllkarlinn. „Sérðu stóra þjórhundinn þarna. Það er fyrrverandi húsbóndi þinn. Eg hefi lengi haft augastað á lionum, en þegar hann tók að hagá sér æ hundslegar, brast mig loks þolinmæðina. Ég lét hundana þarna fylgjast með honum. Þeir eru víst gamlir félagar þínir. Lofaðu þeim að hlaupa og leika sér, en bind stóra hund- inn traustlega við hundakofann þarna, svo að hann losni ekki“. Nú liefði Hjassi getað liefnt sín á þess- um fyrra harðstjóra sínum. En hann gerði það alls ekki. Þvert á móti reyndi hann aoj ígera lionum lífið svo þolanlegt og þægilegt, sem liann frekast gat, þrátt fyr- ir það þótt hundurinn urraði grimmdar- lega í hvert skifti, sem pilturinn kom nærri lionum. Þegar Hjassi var búinn að dvelja hjá tröllkarlinum um þriggja ára tíma, lét karlinn hann koma til sín og mælti: „Líttu nú á, Hjassi, nú er svo komið að ég er að hugsa um að fara að gifta mig og hætta öllum göldrum og gerningum. 011 dýrin skulu nú fá aftur inannsmynd sína', að nokkrum undanteknum, sem liafa enn ekki vanið sig af brekiun sín- 73

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.