Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 16

Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 16
LJÖ SBERINN tíma, gekk fyrir konungsdótturina og mælti: „Göfuga prinsessa, yðar konunglega tign. Loks er ég nú kominn aftur og hef ferðast margar vikur, dag og nótt, og oft komizt í hinn mesta lífsháska. En nú hafið þér, hágöfuga drottning, fengið tví- burasystur slöngudemanta-hálsmensins yðar“. En prinsessan, sem var löngu búin að gleyma duttlungum sínum og heimtu- frekju í sambandi við fyrra hálsmenið. varð nú öskuvond yfir því að vera minní á þetta og grenjaði: „0, svei. Hvað ætti ég, sjálf konungs- dóttirin, að gera með svona andstyggilegt hálsmen? Ég ætti nú ekki annað eftir“. Svo sveiflaði hún blævængnum eins og liún væri að reka burtu áleitna flugu. Páfagaukurinn, hann Sykurnef litli, sá þetta allt og heyrði. Og hann tók sér svo nærri fláræði og loddarahátt konungs- dótturinnar, að liann borðaði hvorki né drakk í marga daga. Hefði litla herberg- isþernan ekki verið eins góð við liann og hún var og hjúkrað honum eins vel og hún gat, er ómögulegt að segja um, hvernig hefði farið fyrir honum. Þegar hann liafði náð sér eftir mestu hryggð sína, varð hann svo heiftúðugur í garð konungsdótturinnar, að liann gargaði i hvert sinn, er hún kom nálægt honum: „Viðbjóðslega Sykurvör! Fláráða Syk- urvör, svei, svei, svei!“ . . Einu sinni heyrði konungurinn þetta, og þótti svo bráðskemmtilegt, að hann lét bera Sykurnef inn í sinn eigin, kon- unglega vinnusal. En það var ekki neitt sérstaklega fag- urt eða geðslegt, sem Sykurnef fékk að heyra þar. Það var sem sé þar inni, sem konungurinn réði ráðum sínum með for- sætisráðherra sínum, herra von Sýróps- strút og fjármálaráðherra sínum, herra von Sníkjukló. Stundum var ráðgast um, hvort hálshöggva skyldi, eða láta nægja að kasta í fangelsi einliverjum mann- garmi, sem hafði lent í því að koma sér í ónáð hjá einhverjum þessara burgeisa. Stundum var konungur sólginn í að eign- ast eitthvað nýtt og fallegt, afardýra skrauthöll, eða eitthvað þess háttar. En til þess vantaði peninga í ríkissjóðinn, Var þá sjálfsagt að fyrirskipa skyldi nýja skatta á þjóðina. Og konungurinn og ráðgjafar hans voru svo innilega og lijartanlega 6am- mála. Við slík tækifæri gaf konungur þeim ætíð ríkmannlegar gjafir. Og for- sætisráðherrann, hann Sýrópsstrútur og. fjármálaráðherrann, hann Sníkjukló, lof- uðu hástöfum hið góða lijarta og göfug- lyndi hans hátignar, konungsins. Sykurnef litli sá og heyrði þetta allt saman. Hann sat þarna inni hjá þeim. Og þetta varð nú ekki til þess að hon- um yrði hlýrra til konungsins en prins- essunnar. Auk þess tók konungur upp á því að kippa í fjaðrirnar á fuglinum. Eina manneskjan, sem var alúðleg og góð við liann, var litla herbergisþernan. Og nú tók fuglinn að hvísla að henni blíðum orðum, og þau urðu beztu vinir. En þetta vissi enginn, né skildi. Þá bar það við einn daginn, þegai Sykurnef hafði verið lieilt ár í höllinni, að tekið var til að undirbúa veizlu. Syk- urvör prinsessa ætlaði að opinbera trú- 76

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.