Ljósberinn - 01.04.1948, Qupperneq 20

Ljósberinn - 01.04.1948, Qupperneq 20
52 LJÓSBERINN ég fór og baróii8frúin kvaddi mig líka. Augu hinnar góðu konu stóðu full af tárum og ég heyrði liana hvísla að manni sínum: „Hún er saklaus, gætir þú ekki komið í veg fyrir að hún verði látin í fangelsi?“ „Nei, það dugar ekki“, svaraði liann ákveð- ið. ,,ég mundi hafa beitt öllum áhrifum mínum fyrir hana ef hún hefði ekki logið að mér!“ Komu svo tveir lögregluþjónar og ’eiddu mig niður tröppurnar. Vagn húsbændanna, með tveim hestum fyrir, beið mín úti fyrir. Baróninn ætlaði þó að koma í veg fyrir að ég yrði til almenns spotts og smánar á götunni. Svo ók ég þá með tveim sakamála-lögregluþjónum til fang- elsisins og þar var ég látin í eins manns klefa samkvæmt venju. Mér kom ekki dúr á auga í fangelsinu fyrstu nóttina eins og geta má nærri. Nú liafði ég nægan tíma til að liugsa um líferni mitt og beina þeirri alvarlegu spurningu til mín sjálfr- ar, livernig ég var komin inn á veg syndar- innar, sæhi óhjákvæmilega leiddi þessa smán yfir mig. Lygi og óhlýðni voru orsakimar til þess. Mér var í fersku minni sá dagur, er móðir mín refsaði mér harðlega fyrir það, að ég hafði virt að vettugi bann hennar við því að vera með hinni klækjóttu stelpu, sem ég ómót- stæðilega hændist að, og mér varð hugsað til þeirrar stundar, er hún léði mér þessa ólánsbók, er hafði gerspillt hugarheimi mín- um og efni hennar leitt mig undir bölvun syndarinnar og slitið mig lír samfélagi mínu við Guð. Þess vegna hafði mér heldur ekki auðnast að forðast öll frekari kynni af þess- ari stúlku, þegar ég hitti hana aftur á veit- ingaliúsinu. Og ég hafði fest triinað á gort hennar, þó að mér væri kunnugt um að bæði hún og móðir hennar höfðu verið í fangelsi. Ég liafði búizt við einliverju sérstöku af Emmu, vænt einhvers, sem ól á hugarflugi mínu og hégómagimi. Ég var svo hugfangin af þessu öllu saman, að ég gaf eiginlegum tilgangi liennar engan gaum, þegar hún bað mig að sýna sér dýrgripi húsbændanna. Ég hafði, meira að segja, verið svo heimsk að Ijá heíuii skinntöskuna mína, sem hún svo notaði til að varðveita þýfið í, og það varð svo til þess að ég var talin meðsek henni í þjófn- aðinum. Hún var, meira að segja, svo djörf að fullyrða að ég liefði tælt hana til þjófn- aðarins. Þetta allt kvaldi mig ákaflega, ekki sízt vegna þess, að allar líkurnar virtust vera á móti mér. Dómarinn trúði ekki fullyrð- ingum mínum um sakleysi mitt og ég mundi vevða dæmd til margra ára hegningarhúss- v'star. Smán og fyrirlitning livíldi yfir fram- t'ð minni. Nei, ég átti engar framtíðarvonir í þessu lífi, og ekki heldur í öðru lífi. „Skynsaml fólk, sem hefur helgað ástinni og liamingjunni líf sitt, hefur aldrei trúað á líf eftir dauðann, það gera aðeins vesælir vinnuþrælar, sem verða að neita sér um alla gleði, og sem prestarnir hugga með sælunni, sem bíði Jieirra eftir þetta líf!“ Þetta liafði ég lesið í bókinni fyrrnefndu, og ég hafði lært það utanbókar eins og ritningargrein. Nú hélt ég dauðahaldi í þessa ósvífnu lygi í sál- arangist minni. Já, ég trúði henni beinlínis! fig taldist nú einu sinni ekki til hinna ham- ingjusömu. Mér var útskúfað og engin leið var mér opin, önnur en dauðinn, er gæti forðað mér frá smáninni. — Syndin liafði komið mér inn í þá örvæntingu, sem ekki gat endað með öðru en glötun. En Guð miskunnaði sig yfir mig og þreif mig upp úr allri þessari neyð. Á meðan þessar syndsamlegu hugsanir voru að kvelja mig og myrkrið umlukti sál mína, var verið að leitast við að bjarga mér, og var það hin trygglynda systir mín, liún Matt- hildur, er vann að því. Fregninni um, að búið væri að setja mig í fangelsi, hafði slegið niður eins og eldingu lieuna. Foreldrar mínir höfðu lesið bréf frá mér daginn áður, glöð og fagnandi, þar sem ég sagði þeini frá því að ég ætti að fara með harónsfrúnni til haðstaðarins sem lierbergis- þerna liennar. Föður mínum hafði þó ekki getist að stærilæti mínu, yfir þessari hækkun í tigninni. ,-Húsbændur hennar vilja henni vafalaust vel, og hún leggur sig sennilega fram líka“, hafði honum orðið að orði, er

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.