Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Blaðsíða 9

Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Blaðsíða 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ 5 o: hugsandi manna í trúarefnum séu margar og breyttar, og hér, á Iandi breyskleikans, ófullkomleikans og skammsýn- innar, er alls ekki að búast við sömu skoðun á hinum ýmsu greinum trúfræðinnar. Enda mun ekki mega gleyma því, að live mikilvæg og ómissandi og dýrðleg sem trúin er, til þess að sameina breyskan mann hinum algóða og heilaga guði, vorum kærleiksríka föður á hæðum, manninum til frelsis og sáluhjálpar, þá er þó og verður kœrleikurinn til guðs og manna skilyrði fyrir arflöku eilífs lífs, enda segir Jesú það skýrt og Ijóst. (1896). Kenningarfrelsi öllu fremur. Undarlegt væri það vissulega, ef trúmál og samvizku- frelsi þyrftu eigi frelsi til að geta þroskast og tekið fram- förum. Og vissulega hefir það stórkostlega hneykslað mig, að prestarnir skuli vera bundnir — rígbundnir með hátíðleguui eiði — við vissan hókstaf, í landi þar sem kallað er að trú- arfrelsi sé ríkjandi, og að þeir skuli vera sviftir embætti, ef þeir víkja frá fyrirskipuðum dogmum [trúarsetningum] sem slegið hefir verið föstu með ofbeldi og atkvæðafjölda á kirkjuþing- um á ófrjálslyndum trúarfrekjutímum. Hér má maður ekki hreifa sig, ekki líta til hægri né vinstri í trúmálum eftir að maður getur þó ekki annað en farið að hugsa og álykta sjálfur, þegar lifið og reynslan er búin að taka mann í sinn skóla um fleiri ár — eða réttara sagt: eftir að sjálfur guð hefir tekið mann í sinn skóla og kent manni þar sjálfum að hugsa, álykta, efast og trúa. (1895). Fríkirkjumálið. Mér verður ánægja að lesa í Kbl. um aðskilnað ríkis og kirkju. . . . Þetta er að mínu áliti eina ráðið til þess að lileypa lífi i hið andlega lif í kirkjunni. Annars hverfur al- drei doðinn og deyfðin, sem nú er eigi að ástæðulausu talað um. (1894). _ ^ Annars þykir mér það undarlegt, að þjóðkirkjan hefir meðhald ýmsra. Satt ei það, að sökum strjálbygðar lands- ins verður erfitt fyrir fólkið að satneina sig í söfnuði, ef trú- ílokkarnir verða margir, og fjárspurningin verður erfið við-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.