Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Page 10
6
NÝTTKrRKJTJBLAÐ ____________________
fangs. Og mér virðist raunar svo, sem fólk, sem er því ekki
vaxið enn aS nota prestkosningarfrelsið betur en hefir sýnt
sig á ýmsum stöðum, muni ekki vera jþví vaxið að afnumin
sé rikiskirkjan, og hver látinn eiga sig. Sé vandfarið með
nokkurt frelsi, þá er það að minu áliti trúar og samvizku-
frelsið. En hitt er ég enn trúaður á, að andleg framför og
vöxtur guðs heilaga ríkis, bæði hjá einstaklingnum og heilum
hópum, þróist og þroskist eðlilegast og bezt með fullu frelsi.
(1896).
Eg held lítið upp á þessar ríkiskirkjur sem i minuiu
augum er óeðlilegt fyrirkomulag- Þar er þó mjög margt að
athuga. Og ekki get ég verið með sira Lárusi [Halldórssyni]
í því að sleppa við ríkið öllum eignum kirkjunnar, né í því
að prestar fái eigi mentun til sinnar stöðu. Kirkjan á svo mikið,
og því á hún víssulega að halda, ef eigi til annars, þá til að
menta prestaefnin og standast stjórn safnaðarinsí heild. (1896).
Krislindómskenslan.
Það væri að mínu áliti mjög heppilegt, að í kristindónis-
kenslunni væri fyrst byrjað á lífi frelsarans og kenningum
hans, en að felt væri mikið burt af því er nú er í biblíu-
sögum úr G. Tm. Annars ber að viðurkenna vandann sem
á því er að semja bihlíusögur handa börnum — sögur sem
eiga að setja varanlegt blessunarríkt mót á alt þeirra líf. Það
verður að hafa í huga við tilbúning þess vandaverks, að
ekkert sé í þeim, sem stríðir móti heilbrigðri skynsemi, þeg-
ar hún seinna í lífi einstaklingsins nær dómgreind og þroska,
svo að seinna komi sem minst barátta milli trúarinnar og
skynseminnar; eg segi sem minst, því að eg liygg að eigi
verði unt að fyrirbyggja efasemdir og andans stríð, eins og
ekki er unt að fyrirbyggja líkamlegt stríð fyrir tilveru líkam-
ans Því að stríð virðist þurfa hér á jörð til þess að full-
komnun og framför geti átt sér stað. En bezt er þó að
stríðið sé sem juinst, af því að falls er von af breyskum.
(1897).
Óskeikulleikinn.
Eg hefi alt af búist við greinum frá þér um „infallibili-