Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Side 12

Nýtt kirkjublað - 30.01.1908, Side 12
8_ ________NÝTTJSIRKJUBLAÐ syrtir fyrir sjónum, að falla í auðmýkt fram fyrir hásæti hins almáttuga og alstaðar nálæga með barnslegri trú og tilbeiðslu, og með bæn um að hann styrki mína trú, svo að ég geti staðist og verið það sem ég á að vera iyrir aðra. En mér virðist mörg villan vera drotnandi enn, og að enn sem fyr eigi hið sanna erfitt, og verði oft að lúta öðru lakara. (Haustið 1896). j§cra gophonías. .Aldursmunur okkar var ofmikill í skóla til þess að við yrðum samrýmdir. Hann var einhver allra vinsælasti piltur- inn í skóla, svo ástúðlegur og glaðvær, og af atviki man eg að hann var formaður í skólafélaginu. Þegar eg á prestafundi Hólastiftis sumarið 1904 sat und- ir prédikun séra Zophom'asar í Sauðárkrókskirkju, þá varð mér tvent svo minnisstætt frá fornum dögurn: Það var strengja- hreimurinn einkennilegi í röddinni og augnaperlurnar fögru og skæru. Hvorttveggja óbreytt. Sagt að allir prófastar séu búmenn, eða verið svo, og gefið undir fótinn að minni séu þeir á stundum andans menn. Nú, þarna á prestafundinum, voru það 4 prófastar, sem and- lega mótið settu á samkomuna. Mig furðaði á því, hvað séra Hjörleifur gat verið ungur ogfjörugur, og áræðinn til nýjunga. Séra Jónas á Hrafnagili flutti þar efnismesta málið, fyrirlestur um „opinberun guðs“ sem síðan birtist á prenti, einkar vel hugsað mál og rökstutt miklurn lærdómi. Þriðji prófasturinn var séi’a Davíð á Hofi, sem prédikaði við fundarsetningu, svo elskulega látlaust eins og honum var eiginlegt, hvar sem hann stóð og starfaði. En fjórði prófasturinn var séra Zophonías, lífið ogsálin íöllum félagsskapnum, annar upphafsmaður hans, for- maðurinn og fundarstjórinn. Hann prédikaði blaðalaust þenn- an sunnudagsmorgun á Sauðárkrók. Efuismikið var það ekki, virtist þá undirbúningslítið, en einkar hlýlegt. Fimti prestur Hólastiftis sem eg man bezt þaðan, og rnest átti talið við, er slund bauðst utan fundarhalda, var ekki pró-

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.