Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Blaðsíða 3
NtTT KIRKJUBLAÐ
lá3
vandaður maður, trúaður, kœrleiksríkur, dygðugur og mann-
úðlegur, hvert slikt barn er viöbót frá þjóðarinnar hendi i
lærisveinahóp Jesú; með uppeldi þess er einn hluti þjóðarinn-
ar, þó lítiil sé, gerður að lærisveini Jesú. Og blessun almátt-
ugs Guðs sé yfir hverjum þeim manni, karli eða konu, sein
að þessu stuðlar.
Þú segir máske, vinur minn: „Eg get ekkert í þessu
efni. Eg næ ekki til allrar þjóðar minnar og eg hefi engin
áhrif á neinn.“
Þetta er heldur ekki rétt.
Það nær hver maður, hvar sem hann er, til einhvers
hluta þjóðarinnar, og það hefir hver maður einhver áhrif á
einhverja, og þeir hafa stundum niikil áhrif, sem menn sízt
búast við.
Þú ert heimilismaður á einhverju heimili; þeir, sem áþvi
heimili eru með þér, eru sá hluti þinnarþjóðar, semþú nærð til,
sem þú getur haft áhrif á með hegðun þinni og framgöngu, þeir
eru sá lilutinn af þinni þjóð, sem þú hefir af Guði fengið
umboð til að gera eftir þínum mætti og kringumstæðum að
lærisveinum Jesú Krists.
Séu það hálfgerðir óvitar, börn og unglingar, sem þú
mest umgengst á heimili þínu, og svo er það einmitt víða og
á mörgum heimilum, þá er skyldan og ábyrgðin, sem á þér
hvílir, þess meiri og þyngri og íhugunarverðari; þessurn óvit-
um átt þú þá að kenna æðstu vizkuna, vizkuna sem ótti drott-
ins er upphaf að, þessi börn og þessa unglinga átt þú að
gera að borgurum guðsríkis og heimamönnum Guðs.
Ovitarnir og börnin, sem j)ú á hverjum degi hefir undir
handarjaðri þínum, eru sá hluti íslenzku jtjóðarinnar, sá hluti
þinnar þjóðar, sem Jesús Kristur hefir boðið þér að fara og
gera að sínum lærisveinum, og sein þú átt að kenna að halda
alt, sem hann hefir boðið játendum sínum að halda.
En mundu þá líka })að í sambúð þinni, einkum við börn-
m og smælingjana, að þú ert sáðmaður, sendur út afsjálfum
Guði og syni hans Jesú Kristi, til að sá góðu sæði í Guðsakur;
en Guðs akur er hjörtu þeirra, sem þú umgengst daglega, eink-
um þó barnanna.
Gáðu að, hverju þú sáir í þenna litla hluta af hinum ís-
lenzka Guðs akri, sem ])ú nærð til. Gáðu að, hvað þú talar,