Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Page 7

Nýtt kirkjublað - 01.06.1910, Page 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ 127 II. Tvent er einkum að varast þar sem kennimenn og leik- menn eiga að hafa sem jöfnust völd: HiS fyrra er afskiftaleysi eða áhugaskortur leikmannanna í stjórn og störfum kirkjufélagsins. Allir verða að vera eins og „ein sál“ — líkt og á dögum postulanna — ef vel á að fara. Alt ilt getur leitt af áhugaleysinu. Hin síðari vandræðin sem vofa yfir öllum frjálsum kirkj- um með leikmannastjórn til hálfs við kennimennina, er hætt- an sú, að úr kennimanninum verði presturinnv,&m\\, miðlarinn, fulltrúi hins gamla helgivalds katólsku kirkjunnar, sem lifði gegnum siðbót Lúters, og enn er handhafi guðs leyndardóma í öllum rétttrúuðum kirkjum. Og eins og vér mótmælendur héldum nafninu (o: prestur), eins hefir oss verið innrætt trú- in á að presturinn eigi enn sinn þátt í valdinu að „leysa og binda.“ En sú trú er bættuleg í fríkirkjunni og ekki hin upp- runalega kenning hans, sem þvoði fætur lærisveina sinna. Fyrir þessa trú spiltist Presbýterakii-kjan á Englandi svo á 17. öldinni, að „þjónninn11 varð herra, og frisafnaðarkirkjan sprengdist öll og sundi-aðist. Með prestavaldinu fylgja og þeir meinbugir, sem enn standa stóru fríkirkjudeildunum á Eng- landi mest fyrir þrifum; það er rétttrúnaðarfargið, hin bundnu fræði, sem hvorki má ransaka né breyta. Enn standa sumir enskir flokkar í stað síðan á 16. öld! Og bókstafstrúin helzt enn í hásæti. Er það mikil sálarfi-æðisleg ráðgáta, hvernig á þeim svefni og sila getur staðið. Ekki er hér tími til að eyða mörgum orðum um áhrif og afleiðingar prestaríkisins öðrumegin og blindni og vanadróma safnaðanna binsvegar. En hér skal tilfæra nokkur orð eftir írskan kennimann, þar sem hann sérmerkir sanna safnaðar- stjórn Presbýtera. Hin sanna fríkirkja (segir hann) kallar sig ekki óskeik- anlpga né lýtur nokkru ákveðnu óskeikandi helgivaldi. Hún ákveður, að það sé bæði skylda og réttindi meðlima sinna að hver þeirra fylgi sinni sannfæringu í trúar og safnaðarmálum, þegar bann trúlega styður skoðun sína við æðstu heimildir trúlegrar reynslu, en þær eru beztar að finna í biblíunni; og þegar hver, um fram alt, fylgir guðrækilega hinu æðsta persónu- lega dæmi biblíunnar og sögunnar, en það er Jesús Kristur,

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.