Nýtt kirkjublað - 01.11.1913, Qupperneq 4

Nýtt kirkjublað - 01.11.1913, Qupperneq 4
244 NÝTT KIRKJUBLAÖ alls eigi henni gagnstæð, heldur fyrir ofan hana, svo eg á ekki að líta yfir hana eða fram hjá henni, hafnandi og lít- ilsvirðandi augum, heldur upp tii hennar undrandi og þreyj- andi augum, að eg mætti skilja hæðina, dýptina, lengdina, viddina. Og hið elskanda, þreyjanda, af öllu nenm Guði og eilífð- inni óseðjanlega hjarta mitt — ekkert getur satt það, nema Guð og eilífur auður gæsku, sælu og dýrðar — það skal knýja hin sljóu augu skilnings míns til að lyfta sér þannig upp, hvessa sig og þurka úr sér jafnóðum alla glýu, alt ryk, alla móðu — heimsins, holdsins, syndanna, slysanna, sorganna, raurianna. Og Guði, mínum himneska góða Föður í Kristi, frelsara mínum, sé lof fvrir þessa morgunstund og þau augnablik liennar, er hugur minn skynjandi og hjarta mitt finnandi til jós þessu frá sér í vinar barm! (1877). Getinn af heilögum anda. Þú trúir eigi getnaði Maríu. Attu við það, að Jiún sé getin syndlaus, sem páfinn fann fyrir nokkrum árum, eða við getnað Krists af heilögum anda í móðurkviði? Sannarlega trúi eg þeim getnaði slíkum, því án hans er mér Kristur óskiljanlegri en ella. En að vísu skil eg hann eigi (getnaðinn af heilögum anda), enda skil eg engan getnað; eg skil ekki kveiking lífsins, ekki í grasinu, því síður í dýrinu, þá eigi í hinum skynjandi manni, né í Guðs syni opinberuð- um í holdinu. Upptök hlutarins, upptök lífsins, upptök dýrssálarinnar, upptök mannsandans, upptök Krists — það er alt leyndardómur. En svo sem eg veit það fyrir víst, að Guð hefir gerl einn mann \fyrstan, hluttakara sinnar myndar, síns anda, sinnar þekkingar, sins kærleika, svo get eg eigi betur vitað en skyn- semi mín. er eg gæti hennar, segi mér, að Guði hljóti að hafa verið mögulegt að skapa nýjan Adam, föðurlausan á jörðu, já, að vera sjálfur i Kristi, og sœtta Jieiminn við sjálfan ‘sig, sem nafni þinn heitinn sagði, og að þetta hafi verið vel gjört, það viðurkennir og bæði skilningur minn og hjarta mitt. Því lfiýt eg að trúa því. Og enn trúanlegri og vissari verður mér þessi kenning

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.