Nýtt kirkjublað - 01.11.1913, Síða 7

Nýtt kirkjublað - 01.11.1913, Síða 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ 247 því, að fara á bak við og bera dulur á beinan sannleik- ann. — — Framjþróunarskoðun nútímans er rauði þráðurinn í kenslu allra annara fræðigreina í skólnnum, en öll trúarfræðslan er á undan Kóperníkusi (f 1543). I skólanum ráða í raun réttri tvennar lífsskoðanir: Itinar nýju bygðar á framsókn allsherjar- þekkingar, og í annan stað erfðakenningar sem kendar eru eingöngu í kenslutímum trúarfræðanna. — — Áhfeldt birðprestur* hefir ritað góðan bækling um þetta vandamál. Hann segir svo m. a. að vér þurfum að koma meiri sannleik að í trúarfræðslunni. Hann ætlast að vísu til að fræðslan sé kirkjuleg, en hinsvegar sé óþarfi að kalla það ókirkjulegt, þótt menn bætti að kenna ósannindi, þótt menn t. a. m. kalli sköpunar- og syndafalls-sögurnar þjóðsögur hinna fornu Hebrea. — — Það er hægðarleikur að kalla allar ályktanir ritskýrenda og annara vísindamanna ágiskanir og getgátur einar. En þar gleyma menn tvennu: Fyrst og fremst að skoða, hvort sama eigi sér ekki stað með fornu kenningarnar, nema fremur sé, og hinu öðru, að aðferð rannsóknanna er hin hnífrétta og óhjákvæmilega í sannleikans eftirgrenslan. Tökurn t. d. rann- sókn Mósebókanna. Þar geta vísindin eílaust að lokum sagt oss, hvernig þær séu tilkomnar, en hitt sýna þau aldrei né sanna, að Guð hafi sjálfur lesið þær fyrir. — — En eru vísindi fyrir börn? Því svara hinir: Skyldu börnin eiga hægra með að skilja, að veröldin hafi verið sköpuð á 6 dögum? Og láta þau síðan ábyrgjast að ríma þá kenningu sama*i við landfræðiskenningar hins sama skóla! Eða mun það reynast auðveldara að láta börnin skilja fæð- ingarsögu Jesú bókstaflega heldur en að segja þeim, þegar kendareru guðspjallasögurnar, að orðið „guðssonur“ sé líkingar- orð, er táknað hafi og tákni enn guðlega vegsemd og hæfileika? — Það er óttinn gamli fyrir „upplýsingunni", auk vanans, sem veldur því mest, að börnin fara á mis við sanna upp- lýsing i guðlegum fræðum, og ónýtir meira og minna þá upplýsing, sem kirkjan veitir þeim. M. J. •) Sænskur prestur, ritar töluvert i liið ágæta mánaðnrrit „Krislendo- pien pch vár tid“, Aths. útg.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.