Nýtt kirkjublað - 01.08.1914, Síða 10

Nýtt kirkjublað - 01.08.1914, Síða 10
178 NÝTT KIRKJUBLAÐ að talaS sé um aS verða guðs börn. En enginn þurfi að verða það, sem hann þegar sé. Staðirnir, sem hér er uni að ræða, eru aðallega þrír. Staðurinn í Fjallræðunni Matt. 5, 45: „til þess að þer sénð synir föður yðar, sem er á himnum“. Annar staðurinn í Lúk. 6, 35: „Og þér munuð verða synir hins hæsta“. Og staður- inn Jóh. 1, 12: „En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn“. Betur athugað ósanna þessi ummæli, og önnur þeim lík, ekki það, að guð sé eftir kenningu Jesú t'aðir allra. Þvi fyrst er þess að gæta, að hér er ekkert sagt um það, að guð sé ekki faðir, heldur verði faðir. Ummælin andæfa því alls ekki, að eins og guð sé og ávalt hafi verið fullkom- inn, eins sé hann og hafi ávalt verið faðir. Þau mótmæla því ekki, að guð samsvari ávalt hugsjón sinni, að vera það, sem Jesús kendi oss, að væri insta eðli hans: kærleiksríkur faðir. Það sem i orðunum felst er, að mennirnir samsvari ekki alt af hugsjón sinni, séu ekki ávalt það sem þeir eiga og mega vcra. Þau benda til þess auðsæja sannleika, að fað- erni guðs felur í sér afstöðu til siðferðilegra persónuleika, og getur alls ekki notið sín gagnvart öðrum en þeim, er veita föðurkærleika guðs viðtöku. I dæmisögunni um glataða soninn kemur þetta vel fram. Guð er faðir beggja sonanna, einnig yngra sonarins meðan hann er í fjarlæga landinu. En hinni sönnu, hinni siðferði- legu sonarafstöðu hefir sonurinn þá glatað. Hann finnur til þess sjálfur, er hann segir: „eg er ekla framar verður að heita sonur þinn“ (Lúk. 15, 19). Hann hafði fyrirgjört son- arréttindum sínum, með því að fjarlægjast vilja guðs og eðli hans. En föðurþel guðs var óbreytt, eins og kom fram óðara en sonurinn aftur nálgaðist hann. Guðsbarn má því nota í tvennskonar merkingu. Bæði í þeirri merkingu, að manneðlið sem gætt guðseðli er guð- legrar ættar og föðurfaðmur guðs stendur öllum opinn. En einnig í dýpri merkingu, þeirri, að vera farinn að hagnýta sér guðsbarnaréttindi sín, verða sannur sonur hins hæsta með því að líkjast eðli hans, lifa í sonarafstöðu til hans, lifa sem guðsbarni ber. Af því að heimildir vorar nota orðið í þessari dýpri, and-

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.