Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1947, Qupperneq 22
[ðnaðarritið 9. - 10. XX. 1947
Mál rædd og afgreidd:
Upptaka nýrra Sambandsfélaga:
Frá þessum félögum lágu fyrir beiðnir um upptöku
í Sambandið:
Iðnaðarmannafélaginu á Selfossi,
Iðnaðarmannafélaginu á Dalvík ,
Trésmiðafélagi Hafnarfjarðar,
Félagi framreiðslumanna í Reykjavík,
Iðnaðarmannafélagi Seyðisfjarðar,
Byggingarmeistarafélagi Vestmannaeyja.
Lög þessara félaga og meðlimaskrár lágu fyrir, og
var einróma samþykkt að veita þeim upptöku í Lands-
sambandið.
Við sambandsfélagaskrá þá sem birt var i 6. hefti
Iðnaðarritsins bætast því tvö félög:
Iðnaðarmannafélagið á Selfossi, 22 meðlimir,
formaður Óskar Kárason, múrarameistari.
Byggingameistarafélag Vestmannaeyja, 15 meðl.
formaður Óskar Áárason, múrarameistari.
Af vangá hefur fallið niður eitt Sambandsfélag úr
skrá þeirri er birt var í áðurnefndu hefti Iðnaðarritsins.
Iðnaðarmannafélag Patreksfjarðar, 25 meðlimir,
formaður Steingrímur Sigfússon, málarameistari.
Lagabreytingar:
Á iðnþinginu 1945 kom fram tillaga um breytingar á
lögum Landssambandsins. Tillagan var of seint fram
komin, og löggjafarnefnd sá sér ekki fært að afgreiða
hana, en lagði til að henni yrði vísað til Sambandsstjórn-
arinnar til frekari athugunar, enda taki stjórnin lög
Sambandsins til yfirvegunar. Út af þessari ályktun lagði
stjórn Landssambandsins fram all víðtækar breytingar
á Iögum Sambandsins, og var þeim útbýtt fjölrituðum
í þingbyrjun.
Eftir að löggjafarnefnd hafði haft breytingarnar til
meðferðar, og um þær höfðu farið fram þrjár umræður,
var samþykkt að breyta lögum Landssambandsins sem
hér segir:
ViÖ 3. gr. á eftir e liö, komi nýr liður, er verði f liður
svohljóðandi: Vinna að því að fullkominni iðnfræðslu
verði haldið uppi í landinu og styðja að framhaldsmennt-
un iðnaðarmanna.
6. grein breytist og veröi þannig: Landssambandið held-
ur þing ár hvert, er heiti Iðnþing Islendinga og komi
það saman 4. hvert ár utan Reykjavíkur, en hin 3 árin
í Reykjavík, eða Hafnarfirði, eftir samkomulagi hlutað-
eigandi félaga. Þingstaður utan Reykjavíkur skal ákveð-
inn á næsta þingi á undan. Sambandsstjórnin boðar til
þinghalds með 3ja mánaða fyrirvara.
7. grein, við hana bætist „og hafi lagt fram kjörbréf
fyrir þingsetningu".
8. grein, 2. liður „Próf í einhverri iðnfræðilegri (tekn-
iskri) grein er Sambandsstjórnin tekur gilda".
Á eftir 11. grein komi ný grein er verður 12. grein,
116
svohljóðandi: „I byrjun hvers Iðnþings kýs þingið 7
manna kjörnefnd er undirbýr allar kosningar á þinginu
og tilnéfnir menn í trúnaðarstörf Sambandsins. Heimilt
er þó þingfulltrúum að stinga upp á öðrum en þeim,
sem kjörnefnd tilnefnir".
12. grein veröur 13.. grein og oröist svo: „Stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna skipa 5 menn, búsettir í Reykja-
vik og Hafnarfirði, og aðra 5 til vara".
Tilnefndir skulu menn í stjórnina, og síðan kosið um
þá bundnum kosningum skriflega.
Einfaldur meirihiuti ræður úrslitum. Stjórnin skiptir
sjálf með sér verkum.
Ennfremur skal á sama þingi og á sama hátt kjósa 2
endurskoðendur og aðra 2 til vara. Á fyrsta þingi eftir
að þessi breyting kemur til framkvæmda, ganga tveir
menn úr stjórninni, á öðru þingi tveir, og þriðja þingi
einu, eftir hlutkesti, þó svo að forseti og varaforseti séu
ekki dregnir út samtímis".
13. grein laganna verður nú 14. grein og aftan við hana
bætist: „Stjórn Sambandsins getur ráðið framkvæmda-
stjóra fyrir Sambandið, ákveðið honum laun og sett
honum erindisbréf."
Á eftir þessari grein komi ný grein er verði 15. grein.
„Landssambandið getur látið gera heiðursmerki til
verðlauna fyrir framúrskarandi störf í þágu iðnaðar-
mála, og ákveður Iðnþing gerð þess og setur reglugerð
um veitingu þess. Á sama hátt getur Sambandið kjörið
sér heiðursfélaga, ef stjórn Sambandsins gerir einróma
tillögu þar um til Iðnþings.
Heiðursfélagar hafa fulltrúarétt á Iðnþingum og eru
kjörgengir i trúnaðarstörf Sambandsins, en ekki eru
þeir skyldir að taka kosningu í þau."
23. grein (áður 21. gr.) Tvær seinni málsgreinarnar
íalli niður, en í staðinn komi:
„Verði ágreiningur um framkvæmd iðnaðarvinnu,
efnisverð eða kauptaxta, skal hlutaðeigandi Sambands-
félagi skylt að tilnefna þrjá sérfróða en hlutlausa menn,
ef unnt er, í nefnd til álitsgerðar um málið.
Nýjar iðngreinar.
Frá skipulagsnefnd voru eftirfarandi ályktanir sam-
Þykktar:
a. Nefndin leggur til að kjötiðnaður verði gerður að
sérstakri iðngrein, námstími og prófverkefni verði á-
kveðið í samráði við Félag Kjötiðnaðarmanna, og Sam-
bandsstjórn verði falið að sjá um lögfestinguna.
b. Nefndin hefur athugað greinargerð Mjólkurfræð-
ingafélagsins fyrir beiðni um að mjólkuriðnaður verði
viðurkenndur sem sérstök iðngrein, en þar sem ekki ligg-
ur ljóst fyrir um það, hvort tillögur þeirra um nám og
próf geta samrýmst að öllu leiti iðnlöggjöfinni, leggur
nefndin til að þingið vísi málinu til Sambandsstjórnar
til frekari afgreiðslu í samráði við Mjólkurfræðingafélag
Islands.