Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Page 10

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Page 10
Bragi Hannesson Toeír nýir Iðnaðarbankastjórar Pétur Sæmundsen Nú á þessu ári verða liðin io ár frá því að Iðnaðar- bankinn tók til starfa. Jafnframt verður nú í þessum mánuði gengið frá aukningu hlutafjár bankans, er sam- þykkt var á síðasta aðalfundi hans. Til þess að annast aukin störf í sambandi við fyrirætlanir um framtíðar- vöxt bankans, hefur bankaráð ráðið tvo aðstoðar- bankastjóra tii bankans, þá Pétur Sæmundsen við- skiptafræðing, framkvæmdastjóra Félags íslenzkra iðnrekenda og Braga Hannesson lögfræðing, fram- kvæmdastjóra Landssambands iðnaðarmanna. Bragi Hannesson varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953 og lauk lögfræðiprófi við Háskóla Is- lands 1958. Réðist hann þá framkvæmdastjóri til Landssambands iðnaðarmanna og varð jafnframt framkvæmdastjóri Meistarasambands byggingamanna 1960. Bragi varð héraðsdómslögmaður 1959. Hann hefur verið endurskoðandi Iðnaðarbankans og gegnt fleiri trúnaðarstörfum fyrir iðnaðarmenn. Pétur Sæmundsen er Húnvetningur, fæddur á Blönduósi. Hann varð stúdent frá Veizlunarskóla Is- lands árið 1946 og lauk prófi í viðskiptafræðum við Háskóla Islands 1950 og hefur síðan starfað hjá Félagi íslenzkra iðnrekenda, verið framkvæmdastjóri þess síðan 1956 og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir iðn- rekendur. Hann var endurskoðandi Iðnaðarbankans frá stofnun bankans til 1956 og í stjórn Verzlunarspari- sjóðsins frá stofnun og í bankaráði Verzlunarbanka Is- lands h.f. til 1962. Hann á einnig sæti í stjórn blaðaút- gáfu Vísis. (Frétt frá Iðnaðarbankanum í janúar s.l.). 4. Iðnreikningur, notkun reikningsstokks. - Gústaf Tryggvason, kennari. 5. Islenzka, umsóknir, bréf, skýrslugerð. - Sigurður Skúlason, magister. 6. Teikni-tækni, lestur teikninga. - Sveinn Þorvalds- son, deildarkennari. 7. Byggingarsamþykkt Reykjavíkur. - Gunngeir Pét- ursson, fulltrúi. 8. Verkstjórn, vinnuhagræðing. - Sveinn Björnsson, forstjóri og Sigurður Ingimundarson, verkfræðing- ur. 9. Byggingareftirlit í Reykjavík, úttektir og ýmsar reglugerðir um byggingarmál. - Sigmundur Hall- dórsson, byggingarfulltrúi, Ingi 0. Magnússon, verkfræðingur, Þóroddur Sigurðsson, vatnsveitu- stjóri, Jóhannes Zoéga, hitaveitustjóri, Ásmundur Ólafsson, byggingam. 10. Öryggismál, brunamál, vélar. - Friðgeir Gríms- son, verkfræðingur. 11. Landmælingar, afsetning húsa, hæðarmælingar. - Kr. Haukur Péturson, verkfræðingur. 12. Vmsir fyrirlestrar: - Páll Líndal, skrifstofustjóri, Aðalsteinn Guðjóhnsson, verkfræðingur. 13. Framhaldskennsla í stærðfræði. - Friðgeir Gríms- son, verkfræðingur. Þetta seinasta atriði var aðeins kennt fáum nem- endum og voru sumir eingöngu í þeim tímum, en aðrir tóku stærðfræðina sem aukanámsgrein við meistara- skólann. Um árangur af þessu skólahaldi er að sjálfsögðu of snemmt að ræða á þessu stigi málsins, en það er aug- ljóst að færa þarf út kvíarnar fljótlega, a. m. k. hvað sumar námsgreinar snertir og einnig þarf að bæta fleirum við. Kennarar í öðrum greinum telja erfið- 10 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.