Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Side 17
SKÝRSLA IÐNFRÆÐSLURÁÐS
UM TÖLU IÐNNEMA
í ÁRSLOK 1962
Skýrsla I er yfir nemendur í Reykjavík, sundurliðað eftir iðngreinum og tilgreint
hversu margir hafa hafið nám á hverju ári um sig (1959—1962 að báðum meðtöld-
um) og heildartala nemenda nú.
Skýrsla II Sýnir fjölda nemenda annars staðar á landinu. í skýrslunni kemur að-
eins fram árlegur fjöldi á hverjum stað, en ekki skipting eftir iðngreinum.
Skýrsla III Sýnir fjölda iðnnema á öllu landinu í hverri iðngrein fyrir sig og heild-
artölu iðnnema, svo og hvar námið fer fram.
Samkvæmt skýrslum þeim, sem hér fara á eftir, voru
í árslok 1692, 1134 nemendur á staðfestum námssamn-
ingi í 42 iðngreinum í Reykjavík, á móti 1047 um fyrri
áramót, en 955 við árslok 1960. í Reykjavík hefur því
iðnnemum fjölgað um 87 á árinu 1962.
Annars staðar á landinu voru við áramótin 757 nem-
endur í 35 iðngreinum, en voru 753 við fyrri áramót.
Hefur nemum utan Reykjavíkur aðeins fjölgað um 4 á
árinu, en þess ber að gæta að árið áður var óvenjumikil
fjölgun utan Reykjavíkur, en það ár fjölgaði nemum
þar um 98, þannig að á tveimur árum hefur nemendum
fjölgað utan Reykjavíkur um 102.
Heildartala staðfestra námssanminga á landinu öllu
var við síðustu áramót 1891 á móti 1800 í árslok 1961
og 1610 í árslok 1960. Eru samkvæmt því staðfestir
námssamningar 91 fleiri en við næstu áramót á undan.
Er fjölgunin svo til öll í Reykjavík, eða 87.
Samkvæmt fenginni reynslu má gera ráð fyrir að 100
—200 námssamningar, sem gerðir voru síðan á árinu
1962, hafi verið ókonmir til staðfestingar urn áramót.
Má því telja sennilegt að iðnnemar á öllu landinu hafi
í árslok 1962 verið sem næst 2100 í 44 iðngreinum.
Hafa aldrei áður verið jafnmargir við iðnnám sam-
tímis hér á landi.
Ef litið er yfir heildartölu staðfestra námssamninga
síðustu árin, sézt glöggt hver þróunin hefur verið:
Ár 1959 heildartala staðfestra samninga 1557
— 1960 — — — 1610
— 1960 — — — 1610
— 1961 — — — 1800
— 1962 — ----- 1891
Á þessu tímabili hefur þeim iðnnemum fjölgað um
334 eða um 21.5%.
Flestir eru iðnnemar í Reykjavík, 1134, þá á Akur-
eyri, 140, Gullbringu- og Kjósarsýslu m/ Keflavík og
Kópavogskaupstað 136, Ilafnarfirði 94, Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu með Akranesi 81 og Arnessýslu 68.
Er um fjölgun að ræða á öllum þessum stöðum frá
árinu á undan, nema í Árnessýslu, þar hefur iðnnemum
fækkað um 7 á árinu.
Flestir eru nemendur í húsasmíði 310 talsins, næst
flestir í vélvirkjun 289, þá í rafmagnsiðn 169 og bif-
vélavirkjun 157.
Eftir helztu starfsgreinum skiptist nemendafjöldinn
þanrvig:
TlMARIT IÐNAÐARMANNA
17