Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Side 25

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Side 25
ráða. Ber brýna nauðsyn tíl þess að bæta úr því, þar sem iðnaðurinn er, ásamt landbúnaði og sjávarútvegi, einn af höfuðatvinnuvegum okkar fslendinga. Þýð- ing iðnaðarins hefur byggzt á því, að hann hefur séð stöðugt fleiri landsmönnum fyrir atvinnu og þannig stuðlað að atvinnuöryggi, innt af hendi nauðsynleg þjónustustörf í nútíma þjóðfélagi og stóraukið verð- mætasköpun landsmanria. Félagssamtök iðnaðarins hafa oft óskað eftir því, að Iðnlánasjóður yrði efldur. Haustið 1959 skipaði iðnað- armálaráðherra, að beiðni þeirra, nefnd til þess að at- huga lánamál iðnaðarins, og í byrjun ársins 1960 var nefndinni falið að gera tillögur um eflingu Iðnlána- sjóðs. Við endurskoðun iðnlánasjóðslaganna nú, komu tillögur og athugasemdir áðurnefndrar nefndar að góðum notum. f sambandi við endurskoðun laganna ræddi nefnd- in við Jóhannes Nordal seðlabankastjóra, Sigurbjörn Þorbjörnsson ríkisskattstjóra, Guðmund Ólafs banka- stjóra Iðnaðarbankans, stjórn Iðnlánasjóðs, stjórn Landssambands iðnaðarmanna og stjórn Félags ísl. iðnrekenda. Stjórnir iðnaðarsamtakanna lýstu sig sam- þykkar tekjuöflunarleið þeirri, sem lagt er til í frum- varpinu að farin sé, með álagningu 0,4% gjalds á iðn- aðinn í landinu, sem lagt er á sama stofn og aðstöðu- gjald er lagt á samkvæmt lögum nr. 69 28. apríl 1962, um tekjustofna sveitarfélaga, III. kafla. Skal nú í stuttu máli gerð grein fyrir helztu nýjung- um og breytingum, sem frumvarpið felur í sér: í frumvarpinu er kveðið á um það, að Iðnlánasjóður sé sjálfstæð stofnun undir yfirumsjón iðnaðarmálaráð- herra. Skulu hinir 3 stjórnarmenn skipaðir til fjögurra ára í stað þriggja áður. Gert er ráð fyrir nýjum tekju- stofni fyrir Iðnlánasjóð, 0,4% gjaldi, sem innheimtist af iðnaðinum í landinu og lagt er á sama stcfn og að- stöðugjald er lagt á samkvæmt lögum nr. 69 28. apríl 1962, um tekjustofna sveitafélaga. Sett eru fyllri ákvæði um lántökuheimild sjóðsins og endurlán. Þá er starfs- svið sjóðsins aukið í frumvarpinu og honum heimilað að lána til byggingar verksmiðju- og iðnaðarhúsa og endurskipulagningar iðnfyrirtækja auk vélakaupa. Upphæð lána er ákveðin allt að 60% kostnaðarverðs. Ýtarleg ákvæði eru sett um það, gegn hvaða trygging- um lán skuli veitt úr sjóðnum. Kveðið er á um það, að lánin skuli endurgreiða með jöfnum ársgreiðslum (annuitetsgreiðslum), og fyllri á- kvæði eru sett um ákvörðun vaxtafótar af lánum sjóðs- ins. Við eigendaskipti að eign, sem veðsett er Iðn- lánasjóði, er sjóðsstjórninni veitt heimild til að heimta lánið endurgreitt að fullu eða að nokkru leyti, ef henni þykir ástæða til. Slíýrsla byððingaíulltrnans í lleykjavík YFIRLIT yfir byggingar í Reykjavík, sem lokið hefur verið við á árinu 1962. A. íbúðarhús: 1. Fjölbýlishús úr stcinsteypu ............. 132.262 m3 2. Önnur íbúðarhús úr steinsteypu .......... 58.173 m3 3. íbúðarhús úr timbri ..................... 886 m3 4. Breytingar og stækkanir á eldri búsum, úr steini ................................ 2.912 m3 Úr timbri ................................ 1.891 m3 Alls 196.124 m3 B. Skólar, félagsheimili, kvikmyndahús o. fl.: Úr steinsteypu ............................... 50.678 m3 AHs 50.678 m3 C. Verzlanir, skrifstofuhús o. fl.: Úr steinsteypu ............................... 89.230 m3 Úr timbri ..................................... 1.464 m* Alls 90.694 m3 D. Iðnaðarhús: Úr steinsteypu ............................... 15.118 m3 Alls 15.118 m3 E. Geymslur og skemmur: Úr steini .................................... 61.436 m3 Alls 61.436 m. F. Geymslur og geymar: Úr járni ...................................... 8.969 m3 Alls 8.969 m3 G. Bílskúrar, geymslur o .fl.: Úr steini .................................... 11.879 m3 Ur timbri ....................................... 816 m3 Alls 12.695 m3 H. Viktarhús, leilcvallarskýli o. fl.: Úr timbri ....................................... 455 m3 Alls 455 ni3 Skipting íbúða eftir flokkum: A 1 A 2 A 3 A 4 Alls 1 herbergi og eldhús 4 4 2 - - - 77 14 1 2 94 3 - - - 174 17 2 3 196 4 - - - 185 31 4 220 5 - - - 16 44 1 61 6 - - - 18 61 7 - - - 4 4 9 - - - 1 1 Einstök herbergi 12 51 63 íbúðir alls 456 129 4 9 598 Meðalstærð íbúðar í flokki A 1 er 290 m8, í flokki A 2 er hún 451 m3 og í flokki A 3 er hún 222 m3. Meðalstærð nýbyggðra TÍMARIT IÐNAÐ ARMANNA 25

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.