Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Side 11

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Side 11
Framkvæmdastjóraskipti hjá Landssambandínu Þetta hefti Tímaritsins flytur stórar fréttir um breytingu í Landssambandinu. Framkvæmdastjóri þess, Bragi Hannesson, lætur nú af því starfi og sömuleiðis ritstjórn Tímaritsins. Þetta hefti verður það síðasta, sem hann ritstýrir. Bragi Hannesson, lögfræðingur, réðist til Lands- sambandsins vorið 1958 og hefur borið hita og þunga starfsins síðan, ásamt stjórninni. Eins og öllum félögum þess er kunnugt og öðrum, sem skipti hafa átt við Landssambandið þennan tíma, hefur Bragi ekki einungis kynnt sig sem glæsilegt prúð- menni heldur jafnframt óvenjulega áhugasamur og skyldurækinn framkvæmdastjóri. Það er því vandfeng- inn maður í hans stað. Eins og lesendum Tímaritsins er kunnugt, er Iðnað- arbankinn sú stofnun, sem iðnaðurinn í landinu hefur tengt miklar vonir við og á hvað mest undir að honum sé stjórnað á þann veg, að hann geti verið sú lána- stofnun, sem iðnaðinum er nauðsynleg, en þær vonir hafa því miður ekki rætzt svo sem efni standa til. Það var því augljóst, að breytinga var þörf. leika á að bæta við tímum frá því sem nú er, þannig að aukning kennslunnar kann að ganga hægt fyrir sig fyrstu árin framundan. Próf voru haldin 19. marz og næstu daga á eftir og skólanum var sagt upp hinn 6. apríl. Reynslan ein mun skera úr um það - ef nokkurn tíma verður úr því skorið - hvort rétt hefur verið að farið, að draga svo mjög saman seglin, miðað við upp- haflega áætlun, nálega til þess eins, að koma skólanum af stað, fyrr en ella hefði orðið. Eins og nú horfir er það ætlunin að auka námsefni og námstíma smátt og smátt eftir því sem reynsla bendir til, unz fullnægjandi árangri verður náð. Hvort það heppnast fer eftir að- sókninni á hverjum tíma og því, hvernig sjálfir iðnað- armennirnir, sem eiga að njóta þeirrar menntunar, sem á boðstólum verður, vilja þyggja hana og notfæra sér hana af frjálsum vilja, eða ekki. - Alla vega verður þó að álíta, að í þessu, sem mörgu öðru, sé hálfnað verk þá hafið er, a. m. k. vona forsvarsmenn skólans að svo megi reynast, og að örugg fótfesta sé nú fengin í þessu langa baráttumáli iðnaðarmanna, Meistaraskólamál- inu. Ottó Schopka Á þessu máli var gerð sú breyting, að tveir aðstoð- arbankastjórar voru ráðnir, þeir Bragi Hannesson, lög- fræðingur og Pétur Sæmundsen, viðskiptafræðingur. Ráðning þessara manna mæltist vel fyrir, og allir sem unna Iðnaðarbankanum og vilja veg hans sem mestan árna þeim heilla í starfi. En frá hendi okkar í stjórn Landssambandsins, var það mikil fórn að gefa framkvæmdastjóra okkar eftir til þessa starfs, en nauðsyn brýtur lög og svo hitt, að með þessu er íslenzkum iðnaði tryggður góður starfs- kraftur um langa framtíð. Ég árna honum því heilla í hinu nýja og vandasama stafi og flyt honum hugheilar þakkir Landssambandsins fyrir gott starf í þau fimm ár, sem hann hefur verið framkvæmdastjóri þess. Eins og að líkum lætur setti þessi breyting stjórn Landssambandsins í mikinn vanda. Það er vandfeng- inn maður í framkvæmdastjórastarf fyrir Landssam- bandið svo fjölþætt sem það er og starfssvið þess stórt. En nú hefur úr þessu rætzt með ráðningu Ottós Schopka. Ottó er sonur Júlíusar Schopka aðalræðismanns og konu hans Lilju Sveinbjörnsdóttur. Júlíus Schopka hefur rckið fyrirtækið Á Einarsson & Funk í áratugi og er því vel kunnugur innan raða iðnaðarmanna um langt árabil. Ottó er aðeins 21 árs, lauk stúdentsprófi 18 ára og lýkur prófi í viðskiptafræði á næstu mánuð- um. Námsferill hans og dugnaður við námið er með eindæmum og spáir góðu um framtíð hans. Stjórn Landssambandsins býður hann velkominn sem fram- kvæmdastjóra og tengir miklar vonir við samvinnu við hann um málefni iðnaðarmanna. Guðmundur Halldórsson. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA II

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.