Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Side 24
20. gr.
Setja má með reglugerð nánari ákvæði um starfsemi
Iðnlánasjóðs, enda brjóti þau ekki í bága við nein á-
kvæði í lögum þessum.
21. gr.
Með lögum þessum eru úr gildi felld lög nr. 67 frá
17. júlí 1946, um Iðnlánasjóð, og n. gr. laga nr. 113 29.
des. 1951, um stofnun og rekstur Iðuaðarbanka Is-
lands h.f.
22. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerðin:
Lagafrumvarp þetta er samið af nefnd, sem iðnað-
armálaráðherra skipaði í marz s.l. til þess að endur-
skoða lög um Iðnlánasjóð, nr. 67 17. júlí 1946. I nefnd-
ina voru skipaðir: Jónas G. Rafnar alþm., formaður,
Eggert G. Þorsteinsson alþm., Gunnar J. Friðriksson
framkvæmdastjóri og Bragi Hannesson hdl.
Iðnlánasjóður var stofnaður með lögum nr. 12 9.
janúar 1935. Markmið hans var að bæta úr brýnustu
lánsfjárþörf iðnaðarins. Til eflingar sjóðnum skyldi
ríkissjóður leggja fram 25.000.00 kr. á ári næstu 10 ár-
in. Yfirstjórn sjóðsins var í höndum atvinnumálaráð-
herra, en fela skyldi Útvegsbanka Islands stjórn hans
og meðferð. Lán átti að veita samkvæmt tillögum frá
stjórn Landssambands iðnaðarmanna, m. a. eftir þeim
reglum, sem hér greinir: Lán úr sjóðnum skyldu veitt
iðnrekendum og smærri iðjurekendum, sem erfitt eiga
mcð lántöku á annan hátt, til kaupa á vélum og stærri
áhöldum (ekki handverkfærum) og einnig til rekstrar,
ef sérstaklega stendur á og viðunandi trygging er í
boði. Lán mátti ekki veita til að hefja atvinnurekstur,
heldur mátti eingöngu lána þeim, sem sýnt höfðu með
atvinnurekstri sínum, að óhætt væri að veita þeim Ján.
Við afgreiðslu lána skyldi þess gætt, að lánveitingin
styddi ekki að óheilbrigðri og óeðlilegri samkeppni við
önnur starfandi innlend samiðnaðarfyrirtæki. Láns-
tími mátti vera allt að tólf árum, hámark lánsupphæð-
ar kr. 5000.00, og skyldu vextir ákvarðast í eitt skipti
fyrir öll fyrir fram fyrir hvert lán, 14% hærri en lægstu
ríkislánsvextir, sem fáanlegir voru árið fyrir lántöku-
árið.
Með lögum nr. 40 27. júní 1941 er gerð breyting á
lögum um Iðnlánasjóð frá 1935. Ríkissjóðstillagið er
hækkað í kr. 65.000.00 á ári. Sjóðnum er enn fremur
heimilað að gefa út handhafavaxtabréf, og má hann
jafnan hafa í umferð bréf, sem nema allt að tvöföldum
höfuðstóli hans. Bréfin skulu tryggð með höfuðstóli
sjóðsins og ábyrgð ríkissjóðs. Ráðherra skipar þriggja
manna nefnd, og eru allar lánsumsóknir háðar umsögn
hennar. Landssamband iðnaðarmanna tilnefnir einn
mann í nefndina og Félag ísl. iðnrekenda annan. Há-
mark lánsupphæðar er % hluti ncttótekna sjóðsins
árið áður.
Næsta breyting er gerð með lögum nr. 55 7. maí 1946.
Með þeirri breytingu hækkar framlag úr ríkissjóði í
kr. 300.000.00 á ári. Útgáfuheimild handhafavaxta-
bréfa er háð samþykki láðherra, en gefa má nú út
handhafavaxtabréf, er nema allt að þreföldum höfuð-
stóli sjóðsins á hverjum tíma. Hámark lánsupphæðar
má ekki vera hærra en sem nemur Vs hluta þess fjár-
magns, sem sjóðurinn getur haft til útlána á árinu,
þegar lántökuheimild hans er meðtalin. Lánstíminn er
lengdur í allt að 15 ár, og skal atvinnumálaráðherra á-
kveða vaxtafót lánanna.
Þessar tvær breytingar voru síðan felldar inn í hin
upphaflegu lög sjóðsins og þau gefin út sem lög nr. 67
17. júlí 1946.
Með lögum um stofnun og rekstur Iðnaðarbanka Is-
lands h.f., nr. 113 29. desember 1951, er bankanum falin
starfræksla Iðnlánasjóðs.
Tekjur Iðnlánasjóðs hafa verið framlög ríkissjóðs og
vaxtatekjur af lánum.
Framlög ríkissjóðs hafa verið sem hér segir:
1935-1937 .................. 25 þús. kr. á ári.
1938—1939 .................. 23 - - - -
1940-1941 25 - - - -
1942-1946 65 - - - -
1947-1954 300 - - - -
1955-1956 450 - - - -
1957-1958 1450 - - - -
1959 .............. 1378 -------------
1960-1962 2000 - - - -
Sanitals 14074 þús. kr.
Árið 1961 hlaut Iðnlánasjóður fyrir milligöngu iðn-
aðarmálaráðherra 15 millj. kr. að láni af svonefndu PL
4S0 lánsfé, sem hann cndurlánaði síðan.
Á tímabilinu 1936-1961 hefur upphæð veittra lána
numið kr. 32.640.600.00 eða nánar tiltekið svo sem
hér greinir (í þús. kr.):
Samtals Meðaltal
1936-1940 ................. 136.4 25.3
1941-1945 ................. 258.4 51.7
1946-1950 ................ 2161.4 432.3
1951-1955 ................ 4898.4 979.7
1956-1959 ............... 11047.0 2209.4
1960-1961 14139.0 7069.5
Samtals 32640.6
Af framansögðu má ljóst vera, að Iðnlánasjóður
hefur lengst af haft yfir takmörkuðu fjármagni að
24
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA