Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Page 14

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Page 14
skóli og að próf frá honum sé skilyrði fyrir þvi, að sveinar fái meistarabréf og geti hafið eigin atvinnu- rekstur. Menntun þjóðarinnar almennt hefur fleygt það fram síðustu árin, að ekki væri óeðlilegt, að þess- ar kröfur væru gerðar til iðnaðarmanna í framtíðinni. Framsýnir dugnaðarmenn í iðnaðarstétt hófu fyrir tugum ára áróður fyrir stofnun meistaraskóla, en fengu lengi vel daufar undirtektir löggjafar- ög ríkis- valds. Þó var loks lögfest í iðnaðarlöggjöfinni frá árinu 1955 skylda til að koma á fót framhaldskennslu við Iðnskólann í Reykjavík til undirbúnings meistaraprófi. En lítið hefur orðið úr framkvæmdum, hvað þessa lagagrein varðar, þar til nú fyrir nokkrum dögum, að vísir að slíkum skóla hóf starfsemi sína á vegum Iðn- skólans í Reykjavík. Það eru þó aðeins tvær stéttir iðnaðarmanna, húsasmiðir og múrarar, sem að svo stöddu njóta góðs af þessari nýbreytni. Framtíðar- krafa iðnaðarmanna hlýtur því að vera sú, að allar iðngreinar eigi kost á hliðstæðri framhaldsmenntun og þarna er hafin, hver eftir sínum þörfum. Verði þeim kröfum ekki sinnt, er að mínu áliti mjög hætt við því, að iðnaðarmenn okkar dragist aftur úr og að erfiðara verði að brúa bilið, eftir því sem lengra líður. Flest iðnþing seinni ára hafa gert ályktanir til að reyna að þoka þessu mikilsverða máli í áttina, en einhvers staðar virðist liggja þungt hlass í vegi, þar sem árangurinn hefur ekki orðið meiri en raun ber vitni. Eins og þessum málum er nú háttað, getur piltur, er lokið hefur burtfararprófi úr iðnskóla, gerzt meistari í iðngrein sinni þrem árum eftir að hann hefur lokið við sveinsstykki. Ekkert eftirlit er haft með því, að hann hafi stundað iðn sína þessi 3 ár og öðlazt þannig meiri þjálfun. Þessi piltur getur því fengið meistarabréf sitt og hafið eigin atvinnurekstur. Síðar getur hann tekið menn í vinnu, gert tilboð í stórverk o. s. frv. Þetta hefur ef til vill getað gengið, meðan allt var hér smærra í sniðum, en hefur þó sennilega oft verið viðkomandi dýrkeypt reynsla og mistök orðið til þess að lækka iðnaðarmenn almennt í áliti. Ef fyrirtækið er stórt, er ekki nóg, að stjórnandi þess hafi góða faglega þekkingu. Verkstjóri á slíkum stað þarf auk þess á að halda rekstrartæknilegri og hagfræðilegri þekkingu, þarf að kunna undirstöðuatriði í vinnuhagræðingu, hafa nokkra þekkingu á atvinnu- heilsufræði, slysavörnum, vinnulöggjöf, skaðabóta- skyldum, launakerfum o. fl. Menntun í þessum grein- um munu iðnaðarmenn sem og aðrir nú geta veitt sér hér, því að fyrir 2 árum voru gefin út lög um verk- stjóranámskeið. Eitt námskeið hefur þegar verið hald- ið samkvæmt þessum lögum. Hvort margir iðnaðar- menn hafa sótt þetta 1. námskeið, veit ég ekki, en ég er viss um, að þessi námskeið munu verða þeim til mikilla bóta í framtíðinni. Oft hefur ríkisvaldið beitt iðnaðarmenn óréttlæti í skatta- og tollamálum, þótt aðeins hafi þar miðað í átt til bóta í seinni tíð. Getur oltið á miklu fyrir iðn- aðinn í landinu í framtíðinni, að endurskoðun sú á tollalöggjöfinni, sem nú fer fram, verði hagstæð fyrir hann. En út í þau mál ætla ég ekki að fara frekar. Þá er eitt mál ennþá, gamalkunnugt öllum iðnaðar- mönnum og varðar miklu, hvernig úr rætist. Á ég þar við lánsfjárskortinn, er stéttin hefur orðið við að búa frá fyrstu tíð. Iðnlánasjóður hefur alla tíð verið lítils megnugur og þess vegna sjaldan getað aðstoðað menn að verulegu gagni. Vonir iðnaðarmanna eru því ef- laust bundnar við Iðnaðarbankann, að hann megi efl- ast svo í framtíðinni, að hann verði þeim veruleg stoð og stytta. Sem eitt dæmi af mörgum um það, hve aðkallandi er, að hér rætist úr hið fyrsta, má nefna, að á síðast- liðnu ári buðu íslenzkt og erlent fyrirtæki í smíði stál- skips fyrir íslending. Tilboðin voru mjög sambærileg, en erlenda tilboðinu fylgdi lánsfyrirheit og var því þess vegna tekið. 14 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.