Vikan


Vikan - 18.01.1951, Síða 1

Vikan - 18.01.1951, Síða 1
##1 ##1 RHÚFN Snemma síðastliðið haust — nokkru áður en stór- viðburður sá gerðist á Raufarhöfn, sem frægt er um allt land — varð það að samkomulagi milli Vik- unnar og Guðgeirs Magn- ússonar, að hann aflaði efnis og mynda frá þess- um stað, sem mjög hefur verið getið í sambandi við síldveiðar á undanförnum sumrum. Birtum við nú grein hans og myndir frá Raufarhöfn. NORÐUR við Ishaf í norð- austurhomi Melrakkasléttu er kauptúnið Raufarhöfn. Það er í 8 km. fjarlægð frá Hraun- hafnartanga og 15 km. austan við Rifstanga, þessum hom- þunktum einfaldrar landafræði. Þorpið liggur þannig skammt frá heimskautsbaugnum ásamt nyrztu sveit landsins, sem jafn- vel teygir sig norður fyrir bauginn. Bæir sléttunnar liggja með- fram ströndinni, sem er víða al- sett malarkömbum, með lónum fyrir innan og einstaka hólm- um fyrir utan. Það var í þessari sveit, sem Guðmundur Magnússon (Jón Trausti) var borinn í heiminn. Hann fæddist á bænum Rifi, og ólzt upp sem hreppsómagi á nokkrum bæum sveitarinnar. Þekkja margir raunhæfar, róm- antisku stemningar hans frá , Sléttunni: Miðnætursól við Framhald á bls. 3. Myndin neðst þvert yfir: Heildarmynd af Raufarhöfn, tanginn t. h. heitir Höfði. tbúar eru nú um 350 og virðist enginn vafi á því, að góðir möguleikar eru þar fyrir miklu fleiri manns. — I miðju t. v.: Lönd- unarbryggjan, t. h. bátar, sem bíða löndunar. Sjómenn hafa kvartað undan því, þegar höfnin er nálega troðfúll af bátum, að þá sé hún of grunn á köflum. — Efst t. v.: Mynd af miðhluta þorpsins, t. h.: Hólm- inn, innsiglingin og Þistilfjarðarfjöllin í baksýn. (Neðstu myndina tók Eyþór Þórðarson, í miðju t. v.: Þór- arinn Árnason, í miðju t. h., vitum ekki hver tók hana. Efst t. v. Kristján Helgason, efst t. h.: Grímur Lund).

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.