Vikan


Vikan - 18.01.1951, Blaðsíða 2

Vikan - 18.01.1951, Blaðsíða 2
2 VIKAN, nr. 3, 1951 PÓSTURINN • Kæra Vika! Þetta er í fyrsta sinn, sem ég legg fyrir þig spurningar, og vona, að þú svarir þeim fljótt og vel, eins og þinn er vani. 1. Getur þú sagt mér eitthvað um leikarann: Danny Kaye og leikkon- una: Virginia Mayo, hvort þau eru gift, og þá hverjum og um aldur þeirra? 2. Getur þú sagt mér heimilisfang þeirra ? 3. Getur þú birt mér mynd af þeim ? 4. Hversu þungur á ég að vera? Ég er 16 ára og 1,76 m. á hæð 5. Hvað segir þú ,um skriftina? Með fyrirfram þökk. . A . . . Svar: 1. Virginía Mayo er fædd 30. nóvember í St. Louis. Hún er ijós- skolhærð og græneygð. Danny Kaye er fæddur 18. janúar 1913 i Brooklyn, New York. Hann er með ljóst, rauð- leitt hár og bláeygður. Hann er frem- ur hár og grannur. 2. Við birtum ekki heimilisföng er- lendra ieikara. 3. Hérna sérðu þau bæði. 4. Um 68 kg. 5. Hún er læsileg, en tæpast nógu áferðarfalleg. Svar.til Lilju: Okkur þykir lakara, að þú skrifar ekki bréfið á þann veg, að þér finnist það birtingarhæft. Og sennilega hefð- um við látið það flakka með póstin- um, ef þú hefðir ekki bannað það. 1 fyrsta lagi finnst okkur þú vera nokkuð ung til þess að standa í þessu stímabraki, ekki sízt fyrst það hefur þegar staðið yfir í tvö ár! Og þú ert enn ekki nema sextán ára. Hugsarðu ekki of mikið um þessi mál ? Væri ekki rétt að geyma eitthvað af þess- ari orku þangað til síðar? Það verður alltaf not fyrir hana meðan þú lifir. Ertu ekki of ástleitinn við piltinn þinn? Er ekki þessi „ægilega feimni“ hans að einhverju leyti sprottin af því ? Eftir lýsingu þinni að' dæma er víst einginn efi á að hann er ástfang- inn af þér. Út af spurningunni, hvort þú eigir að halda þessu áfram eða hætta, vildum við segja þetta: Held- urðu, að þú hafir nokkuð gott af því að sleppa þessum „feimna gæðapilti“ eins og þú segir ,,til þess að kynnast fleiri strákum, og daðra við þá“? Varla. Og hugsaðu nú þitt ráð betur! Elsku „Vika“. Ég ligg nú upp i rúmi, með tárin i augunum, og ætla að biðja þig að svara fyrir mig tveimur spurningum. 1. Ég er ástfangin í einum strák, og ég hélt að hann væri hrifinn af mér, minnsta kosti lætur hann svo- leiðis við mig. Þegar ég er úti á kvöldin þá kemur hann til mín og fer að labba með mér, og leiðir mig. En fyrst var ég ekkert hrifin af honum en lét hann samt ekkert finna það. Hann' fylgdi mér oft heim á kvöldin og gerir það enn. Á jólunum kom hann til mín og óskaði mér gleðilegra jóla! Og hann sagðist vona það, að það mundi verða skemmtilegra fyrir okkur á næstu jólum. Svo fór ég á jólaballið og hann dansaði ekkert við mig. Hann var búin að gera mér það ljóst að hann elskaði mig og sagði systur minni það, að hann elskaði mig. En henni var svo illa við það að ég skyldi vera með honum. En ég sagði henni að þetta væri mín fram- tíð en ekki hennar og hún féllst á þetta. Ég fór á ball i gærkveldi og ég bjóst við því að hann mundi dansa við mig, nei takk, hann dansaði ekki við mig en hann kom til mín út á gólf, þegar ég var að dansa og bauð mér gleðilegt nýtt ár og þakkaði mér fyrir gamla árið. Ég skil ekki í því af hverju að hann dansar ekki við mig, ef til vill er hann orðinn leiður á mér, ég'hélt það ekki. Ég var að koma utan úr bæ eitt kvöldið og fleiri stelpur með mér, þá mættum við honum og vini hans og þeir fara að labba með okkur og ég labbaði við hliðina á vini hans og hann ýtti honum frá og sagði að hann ætti ekki að komast upp á milli okkar, svo hélt hann undir höndina á mér, og svo fylgdu þeir mér heim. Ég veit ekki hvað hann er að flækj- ast utan i mér og tala við mig ef hann vill ekkert með mig hafa. En ég veit það að ég er ekki minni maður en hann og mitt fólk er meira fólk en hans fólk er. Ég er ekkert að hrósa inínu fólki þó ég segi þetta. En það er kannski hægt að segja, láttu hann sigla sinn sjó, það er nóg af þeim. Á þessum þremur böllum sem hann hefur ekki dansað við mig hef ég alltáf átt sjens á því að vera með strákum en ég vil ekki sjá þá, ég hef sagt þeim í sætið. Af því þegar ég er búin að taka tryggð við eitthvað þá vil ég halda henni. Ég veit ekki af hverju hann hefur ekki dansað við mig, en ég elska hánn samt og mun alltaf elska hann þó að hann sé hættur að vera með mér, en það er ekki honum að kenna, það er systur hans að kenna, en hún fær einhverntíma að kenna á því. i 2. Hvað á ég að gera,_á ég að fara héðan eins og ég ætla mér að gera afi því að ég get ekki þolað að sjá hann. Ég veit ekki hvernig þeir menn eru sem geta verið að leika með hjarta annarra, það eru ekki góðir menn. Ég vona það kæra Vika að þú gefir mér gott ráð. Svo óska ég þér gleði- legs nýárs og þakka þér fyrir þær stundir sem þú hefur veitt mér og öðrum á siðastliðnu ári. Með beztu kveðju. Bergljót Geislar. Svar: Þetta eru óskapa-vandræði og vont að þurfa að flýja af hólmi við svo búið! Hvernig væri að tala hreinskilnislega við piltinn um þessi mál og sjá, hvað fæst út úr því? Ef „ljós“ á að verða úr þessu milli ykk- ar, er hvort eð er harla nauðsynlegt að þið getið átt tal samán í einlægni um vandamál ykkar. Við höldum að það sé of snemmt að setja hann í flokk með „ekki góðum mönnum" og það getur verið misskilningur, að hann sé að „leika sér með hjarta annarra“. Kæra Vika. Ég er nú setzt niður með penna mér i hönd og vonast eftir að fá svar. Svo er mál með vexti að ég er hrifin af tveim strákum og svo vill nú til að þeir eru bræður og segja hvor öðrum allt milli himins og jarðar. Ég hef verið með þeim báðum en veit samt ekki ennþá hvor þeirra það er. Þeir vita að ég er með þeim báð- um og eru alveg rasandi. Hvernig á ég að vita hvor þeirra það er? Vonast eftir svari eins fljótt og hægt er. Hvernig er skriftin ? Dóra Sigga. Svar: Hvernig væri að merkja ann- an, t. d. blaðstift hægra? Skriftin er ágæt. Kæra Vika! Mig langar að spyrja þig um tvær spurningar, því ég veit að þú svarar þeim fljótt og greiðlega. 1. Hver er það sem hlaut Olympíu- bikar Islands i sumar? 2. Er nokkuð búið að ákveða með drengjalandskeppni í frjálsum iþrótt- um næsta sumar? Jói. Svar: 1. Olympíubikarinn fyrir sund hlaut Sigurður Jónsson H.S.Þ. fyrir afrek sitt í 100 m. sundi, 1:19,0 mín., sem er 901,2 stig samkvæmt sænsku stigatöflunni fyrir sund. — En Olympíubikarinn fyrir frjálsar- íþróttir hlaut Kristleifur Magnússon í Iþróttabandalagi Vestmannaeyja fyrir afrek sitt i þrístökki 13,92 m., sem er 773 stig samkvæmt finnsku stigatöflunni. — 2. Það verður engin landskeppni drengja næsta sumar, en aftur á móti getur verið, að það komi hingað hópur sænskra drengja, og munu þeir þá keppa við félögin. Fuglsf jöðurin er tiltölulega það sterkasta, sem til er í heiminum. Ekkert, sem er jafnlétt og; fjöður jafnast á við hana að styrkleika. ! ! ! Danny Kaye Bréfasambönd Birting á nafni, aldri og heimilis- fangi kostar 5 krónur. Iíári Jónsson (við stúlkur eða pilta 16—19 ára), Aðalgötu 17, Sauðár- krók. Hekla Ragnarsdóttir (við pilt eða stúlku 13—15 ára. Æskilegt að mynd fylgi bréfi), Túngötu 5, Siglufirði. Indriði Jónsson (við stúlkur 16—18 ára), Grund, Reykhólasveit, A.- Barðastrandasýslu. Ásgeir S. Hjelm (við stúlku 16—20 ára. Mynd fylgi bréfi), Merki, Eski- firði. Þorbergur Einar Einarsson (við stúlkur 18—30 ára), Suður-Vík, Mýrdal, Vestur-Skaftafellssýslu. Ingjaldur Sigurðsson (við stúlkur 17 —19 ára. Mynd fylgi bréfi), Trausti Ólafsson -(við stúlkur 14—17 ára. Mynd fylgi bréfi), Bragi Þorsteinsson (við stúlkur 14— 17 ára. Mynd fylgi bréfi), Guðni Karlsson (við stúlkur 16—18 ára. Mynd fylgi bréfi), Tómas Jónsson (við stúlkur 16—18 ára. Mynd fylgi bréfi). Allir til heimilis að Iþróttaskólan- um Haukadal. Biskupstungum, Ár- nessýslu. Guðríður Á. Björnsdóttir (við pilta eða stúlkur 20—23 ára), Jenný Þ. Skarphéðinsdóttir (við pilta eða stúlkur 20—23 ára). Báðar á veitingahúsinu Vegamótum, Mikla- holtshreppi, Snæfellsnesi. Erla S. Waage (við pilt eða stúlku 18—25 ára), Miklubraut 18, Reykjavík. Grímur Þorsteinsson (við stúlku 19 —25 ára. Æskilegt að mynd fylgi bréfi), Brandarhóli, Svarfaðardal. Ef yður langar .til að komast í bréfa- samband við ein- ivern hér á landi eða erlendis iá skrifið til Bréfaklúbbsins Islandia, Pósthólf 1014, Reykjavík, sem veitir yður allar nánari ipplýsingar. Oft hafa bréfaskipti ókunn- igra skapað varanlega vinát^u. BRfFAKlÓBBURINN IHANDIA | Tímaritii SAMTÍÐIN E Flytur snjallar sögur, fróðlegar = É greinar, bráðsmellnar skopsögur, i E iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl. j E 10 hefti árlega fyrir aðeins 25 kr. | É Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. = E Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75. 1 Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, simi 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.