Vikan - 24.07.1952, Qupperneq 3
VIKAN, nr. 29, 1952
3
Undanfarið höfum við borið víurnar i
Friðrik Ólafsson skákmeistara og reynt
að fá hann til viðtals, en lengi hafði hann
engan tíma aflögu, sagðist stunda nám
á vetrum og þyrfti þarafleiðandi að vinna
á sumrum. Hann vann á eyrinni, og það
var eftirvinna. Svo varð loks hlé þann 26.
júní, vinnan á eyrinni búin, óráðstafaðir
atvinnuleysisdagar framundan. Og Friðrik
kemur niður á skrifstofu Vikunnar með sitt
hógláta bros: Hér er ég.
Helztu æviatriði?
Ég er fæddur 26. janúar 1935 og ólst
hér upp hjá foreldrum mínum, Sigríði Sí-
monardóttur Sveinbjarnarsonar, sem var
skipstjóri á Akranesi, og Ólafi Friðriks-
sjmi. Hér hef ég svo verið alla tíð, fór í
sveit frá fimm til tólf ára aldurs, síðan
í Menntaskólann og tók þar próf í vor upp
í fjórða bekk. Á sumrin var ég undanfarið
í vinnuflokkum bæjarins, og í vor hef ég
til þessa unnið á eyrinni, en nú er það
búið að vera.
Hvenær byrjaðir þú að tefla?
Tafl hef ég átt frá því ég var átta ára,
en ég byrjaði eiginlega að tefla af tilvilj-
un, tók þátt í fjöltefli við Baldur Möller
inni á Þórskaffi, þegar ég var ellefu ára;
tapaði auðvitað skákinni, en fékk delluna!
Hvernig verða menn góðir taflmenn?
Ég hef lært mest af því að kynna mér
skákir meistaranna.
Og hver er í mestum metum hjá þér?
Jose Capablanca frá Kúbu. Hann var
heimsmeistari 1921—27. Mér fellur ein-
hvern veginn bezt við hann. Hann tefldi
ekkert sérdeilis glæsilega, en vel tefldi
hann og tapaði ekki nema 36 skákum um
ævina, eða 6 prósent.
Hvenær kepptirðu fyrst?
Þegar ég var tólf ára. Á íslandsmóti í
2. flokki 1947. Þá varð ég sjötti til níundi.
En nokkru síðar var Reykjavíkurmót, og
þá vann ég.
Af hverju tókstu svona miklum fram-
förum á svona stuttum tíma?
Ætli það hafi ekki bara verið þjálfun-
in á fyrra mótinu.
Nú, og svo hvað?
Ég komst í 1. flokk með því að vinna
þama, og í 1. flokki fór alveg á sömu
leið, bar sigur úr býtum eftir tvennar
keppnir og komst þar með upp í meist-
araflokk. I meistaraflokki hef ég keppt
síðan, og það eru ein fimm ár.
Utanf arir ?
1950 fór ég til Brimingham á mót til
undirbúnings heimsmeistarakeppni ung-
liða. Þar varð ég fjórði. Árið eftir fór
ég á meistaramótið, sem líka var haldið
í Birmingham og varð ellefti af átján.
En hvernig gekk að vinna sig upp í
meistaraflokki hér heima?
1 annað sinn, sem ég keppti þar, voru
þátttakendur svo margir, að keppa varð
eftir kerfi, en sigurvegarar smáflokkanna
fóru síðan í úrslit, og var ég einn þeirra
og varð neðstur. I fyrra varð ég aftur á
móti númer tvö. Og í ár vann ég.
Já, hvernig var það með keppnina í ár?
Við Lárus Johnsen vorum uphaflega
jafnir, en háðum síðan einvígi, tefldum
sex skákir. Af þeim vann hann eina, ég
tvær og þrjár urðu jafntefli.
Er erfitt að keppa?
Það tekur dálítið á taugarnar. Svo eru
allar svona keppnir haf ðar á kvöld-
in, maður þreyttur og stundum
syfjaður.
Þjálfarðu þig án afláts?
Já, maður lítur öðru hvoru í
bækur, þegar tími vinnst til, en
ekki of oft, því að þetta er leiði-
gjarnt eins og annað. Annars er
skákin orðin svo kerfisbundin. Ef
maður gerir til dæmis einhverja
smávitleysu í upphafi, getur öll
skákin spillzt. Til eru byrjunar-
bækur, sem sýna svona fyrstu 10,
15 leikina, og ævin entist ekki tii
að kynna sér allar bær byrjanir,
en það getur samt borgað sig, þvi
að byrjunin skiptir mjög miklu máli, sér-
staklega þó ef mótherjinn er ekki á verði.
Hvað um framtíðina?
Tja, ekkert sérstakt, ég held áfram í
skólanum. Svo getur verið að efnt verði
til skákmóts í sambandi við Ólympíuleik-
ana í sumar. Þá förum við einhverjir
þangað.
Hver heldur þú sé þín skemmtilegasta
skák?
Það er skák, sem ég tefldi í fyrra við
Bjarna Magnússon í Hafnarfirði. Ég man
hana alveg. Ég gæti rissað hana upp, ef
þú vildir. Hún er svona:
Tefld 17/12 '50 í afmælismóti Hafnarfjarðar.
Hvitt: Bjarni Magnússon.
Svart: Friðrik Ólafsson.
Iíóngs-indversk vörn.
1. c2—c4 Rg-8—f6
2. d2—d4 g7—g6
3. g2—g3 Bf8—g7
4. Bfl—g2 0—0
5. Rbl—c3 d7—d6
6. f2—f4! ?
Aths.: Fram að þessu hefur byrjunin verið all-
regluleg, en hér breytir hvítur út af. ,Hann vill
vafalaust hindra e7—e5, sem er aðaltakmark
svarts með þessari vörn. En leikurinn myndar
ýmsa veikleika í hvítu stöðima, sem svartur
reynir að notfæra sér með því að leita á nýjar
vígstöðvar.
6......... Rb8—d7
7. Rgl—f3 c7—c5!
8. d4—d5
Aths.: 8. e2—e3 var að öllum likindum betri
leikur. Eftir hinn gerða leik getur svartur opn-
að stöðuna sér í vil.
8.........
9. Ddl—d3
li}. e2—e4
11. c4Xd5
12. Dd3—c2
Aths.: Hvítur virðist ekki viðbúinn eftirfar-
andi fórn. Hann hefur sennilega búizt við 12.
Nf8—e8 sem hótar peðsvinning með Rb6 X d5,
þar sem kóngspeðið er leppur. 13. 0—0 andæfir
þeirri hótun algjörlega. En svartur hefur annað
í pokahominu.
12 ...... Rb6Xd5!
13. e4 Xd5
Aths.: Hvítur álítur að óhætt sé að þiggja
fórnina. Hann gat einnig drepið fyrst með ridd-
ara með líkri útkomu.
13 ...... Hf8—e8+
Aths.: Nú getur hvítur valið um þrjár leiðir:
a) Kdl, sem hann lék. b) Rc3—e2, sem svartur
svarar með 14. leik, Bc8—f5, 15. Dc2—dl, Bf5
—d3. 16. Rf3—gl, Dd8—b6, 17. h2—h3 (Til að
hindra Rg4). He8—e7 og hvítur fær ekki að gert
eftir að svartur hefur doblað hrókana á e-línunni.
c) Kfl, sem er svarað með 14....Bf5, 15. Df2
Bd3 + 16. Kgl,—Rg4, 17. Dd2—Db6 +.
14. Kel—dl Bc8—f5.
15. Dc2—f2
Aths.: Eða 15. Dd2—Rg4, 16. Hel—Db6 og
hótunin Rf2 + virðist algjörandi.
15......... Rf6—g4
16. Df2—gl Bg7 X c3
Aths.: Nauðsynleg uppskipti.
17. b2Xc3 Dd8—a5.
Aths.: Hvítum hefur yfirsézt þessi leikur, þeg-
ar hann þá fórnina. Svartur hótar nú Da4+ með
máti á c2 eða DXc3. Hvítur á ekki til nema
einn leik.
18. Kdl—d2 He8—e3
Aths.: Hótar DXc3 + .
19. Bcl—b2 He3—d3 +
20. Kd2—el
Aths.: 20. Kcl er svarað á sama hátt.
20 ......... Hd3 X c3
21. Bb2 X c3
Aths.: Hvítur gefst upp á að halda við stöð-
unni og leikur sig í einfalt mát.
21 ....... Da5Xc3 +
22. Kel—fl Bf5—d3 + mát.
Frétt frá
Almennum tryggingum
Laugardaginn 5. þ. m. opnaði Almennar trygg-
ingar h.f. líftryggingardeild. Hefur þessi fram-
kvæmd lengi verið í bígerð, en erfiðara er að
efna til líftrygginga en annarra trygginga, því
að þær þarfnast öflugri sjóða, en tryggingar-
félögin hafa ekki átt slíka sjóði handbæra, fyrr
en á síðustu árum. Félagið komst að hagkvæm-
um endurtryggingarsamningum við eitt voldug-
asta tryggingarfélag Bandaríkjanna, Lincoln
National.
Almennar tryggingar eru nú 9 ára gamlar.
Á þessum stutta starfsferli hefur félagið tekið
stöðugum framförum, og starfsemi þess marg-
faldast. Aukning á iðgjaldatekjum félagsins varð
til að mynda 40% á síðasta ári. Nú eru iðgjöld
allra deilda 11,3 milljónir.
Ungur tryggingarfræðingur, Guðjón Hansen,
veitir þessari nýju deild forstöðu.
Rd7—b6
e7—e6
e6Xd5
c5—c4!?
t