Vikan - 14.08.1952, Page 2
2
VIKAN, nr. 31, 1952
pósturinn-
Kæra Vika mín!
Ég ætla að biðja þig að svara
nokkrum spurningum fyrir mig.
Viltu segja mér eitthvað um June
Haver og helst að birta mynd af
henni. Getur þú svo iíka sagt mér
hvar hún á heima í Hoilywood.
Aðdáandi.
Svar: Ég er þér alveg sammála
þegar þú dáist að
June Haver. Hún
er mjög litil, kven-
leg og ein af þeim
fáu kvikmynda-
leikkonum, sem er
eðlileg í framkomu
og ekki áberandi
máluð, ef maður
sér hana í dags-
ljósi. June er líka
mjög ung, aðeins
26 ára gömul fædd
i Rock Island í
Illinois. Hún hefur
blá augu og ljóst hár.
June spilaði opinberlega á píanó,
þegar hún var 5 ára gömul og hafði
sinn eigin útvarpsþátt þegar hún var
11 ára. Eftir það fór hún að syngja
með hljómsveitum og í kvikmyndum
1943: Hér hafa verið sýndar margar
myndir með henni í aðalhlutverkinu.
Þær eru flestar í fallegum litum og
íburðarmiklar og þannig gerðar að
Jítið reynir á leikhæfileika hennar.
í>ví miður get ég ekki gefið þér
heimilisfang hennar, ef þú ætlar að
skrifa henni, þá skaltu bara senda
bréfið til Hollywood, Californiu. Ég
er viss um að það kemst til skila.
Kæra Vika mín.
Nú leita ég til þíp í vandræðum
mínum, og vonast ég eftir að þú get-
ir hjálpað mér. Ég er með svo aga-
lega mikinn hármaðk! Hef ég reynt
að klippa hárið jafnóðum og ég sé
að það byrjar að klofna, og nú er ég
komin með svo stutt hár að mér er
um og ó að halda áfram að klippa
meira af þvi. Getur þú ekki gefið
mér ráð við þessu? Hvaða litir fara
mér bezt. Ég er brúnhærð með grá
augu, freknótt.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
svörin. Kolla.
Svar: „Fegurð og snyrting“ segir
að bezta meðal við hármaðki sé pyro-
gallóismyrsli, en það er:
Naphtoii ........ aa g 1.50
Sulfuris praecipitat 5
Vaselini ........ad 50
Þú getur sjálfsagt fengið þetta
smyrsl í næstu lyfjabúð.
i Tímaritið SAMTÍÐIN |
■ ■
! Flytur snjallar sögur, fróðlegar j
| greinar, bráðsmellnar .skopsögur, :
; iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl. :
• 10 hefti árlega fiyrir aðeins 35 kr. :
■ Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. •
: Askriftarsími 2526. Pósthólf 75. ■
June Haver
Beztu litir þinir eru rautt, hlut-
lausir dökkbláir litir, grænt, „beige"-
litir og eggjaskurnslitur.
Kæra Vika!
1. Við erum tveir skrítnir naglar
að deila um það hvort Doris Day sé
lifandi eða dáin. Við vonumst til að
þú svarir þessu fljótt, vegna þess
að það eru svo margir sem vita ekki
hvort er rétt.
2. Annar naglinn er með stúlku,
en hann er alltaf að kvarta um að
hún sé svo stríðin og hann langar
til að venja hana af því. Hvernig á
hann að losna við stríðnina í henni?
Og þegar hann býður henni út þá vill
stúlkan alltaf hafa vinkonu sína með
sér, hvað á hann að gera við því?
Við þökkum þér fyrirfram fyrir
svarið, vertu ævinlega sæl og blessuð.
Tveir naglar með flötum haus.
Svar: 1) Það er mikið spurt um
það, hvort Doris Day sé lifandi eða
dáin. Þess vegna hefi ég leitað upp-
lýsinga hjá ungri stúlku, sem er ný-
komin frá Bandaríkjunum og hefur
lesið dagblöðin þar síðastliðin tvö ár.
Hún segist hvergi hafa lesið dánar-
fregn umræddrar leikkonu og heldur
að það sé útilokað að dagblöðin hefðu
ekki gert meira veður út af dauða
hennar en svo að það hefði getað
farið fram hjá sér. Við verðum þvi
að gera ráð fyrir því að Doris Day
sé lifandi.
2) Fólki þykir ekkert gaman að
stríða þeim, sem ekki taka það illa
upp. Reyndu að láta þér á sama
standa, nagli minn, þó stúlkan stríði
þér. Ef þú getur það ekki og stúlk-
an er ólæknandi af striðni, sé ég ekki
fram á annað en að þú verðir að
hætta að umgangast hana svona
mikið.
Elkki þykir stúlkunni gaman að
fara út með þér ef hún þarf aXltaf
að hafa vinstúlku sína með sér.
Reyndu að segja nei einu sinni og
vittu hvort hún metur meira vin-
stúlkuna eða þig.
^mhhhhhimmiiimhhmmmmimhmiiimmiiiiiiimiíiiiiiiiiiiii >,
s
Norge — Island i
í Noregi, innan- [
lands eða öðrum i
löndum, getur hver |
valið sér í gegnum Islandia, í
bréfavin við sitt hæfi. Skrif- I
ið eftir upplýsingum.
BRÍFAUÚBÍUftlNN ' I
ISLAN DIAI
Reykjavík
' ........................... .
Svar til áhugamamis.
Við höfum nú fengið þær upplýs-
ingar til viðbótar svarinu i síðasta
blaði, að Selmersaxofónar fást í
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadótt-
ur, Lækjargötu 2, og kosta 6000—
7000 krónur. Boosy Hawks klarinett
fást þar líka og kosta 1860 kr.
Þú alvita Vika, vilt þú nú gera
mér þann greiða að gefa mér ná-
kvæmar upplýsingar um meðferð
og hirðingu heimilispálma, hversu
mikið er hæfilegt að vökva hann
áburðargjöf o. s. frv.
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una.
Lesandi.
Svar: Ég á sjálf ljómandi fall-
egan pálma, sem hefur dafnað vel
í mörg ár, þó ég geri ekkert fyrir
hann annað en skvetta úr fullri vatns-
könnu yfir hann þriðja hvern dag
og þvo blöðin öðru hvoru upp úr
mjólk. Auk þess ver ég hann fyrir
reykjandi gestum. Það er bráðnauð-
synlegt að vekja athygli gesta á
því, að það skaði blómin ef drepið
sé í sígarettum í blómsturpottunum
eða ösku dreift yfir þau.
Þú getur líka fengið blómaáburð
í blómabúðum, en ég hefi aldrei gefið
mínum pálma annað en mjólk.
Svar til Ebbu J.
I bókinni Fegurð og snyrting segir
svo:
Framhald á bls. 13.
Það má vera annað en gaman að
vera kjölturakki, sem neyddur er til
að ganga með hatt. En einmitt það
gerði bandarísk tískudama fyrir
nokkru; og ekki nóg með það, því
hundsgreyið er líka með tösku.
AC 109
PaÓ er mjög
mikilvægt
að líggja ekki í sólinni
án pess fyrst að hafa
smurt húðina vandlega
með NIVE A cremi. Aðals
atriðið er að venja sig
smátt og smátt við sólina
og að vernda húðina með
NIVEA cremi. Þeir sem
vilja liggja lengi i sólinni
og verða brúnir a skömm-
um tíma, noti
NIVEA ultraíoliu.
NIVEA er sjerstætt því
að það inniheldur Euzerit,
sem er skylt húðfitunni.
Verðið fallega brún með N I V E A.
m* "'viA /
Utgefándi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Erlingur Halldórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.