Vikan - 20.11.1952, Síða 10
10
VTKAN, nr. 45, 1952
Heimilið *
RITSTJÖRI: ELlN PALMADÓTTIR
Crépe dentelles
Við erum ekki eina pjóðin, sem býr til góðar
pönnukökur. Á Bretagneskaganum í Frakklandi
eru búnar til svona „Crépe dentelles“:
3 egg, sama þyngd af hveiti, sykur, smjör,
mjólk, % vanillustöng.
Blandið sykri og liveiti saman, bœtið eggjun-
um út í og því nœst brœddu smjörinu. Sjóðið
vanillustöngina í mjólkinni og hellið lienni smátt
og smátt út í, þar til deigið er eins þunnt og
krem. Bakið pönnukökurnar þunnar á hellunni
(eða pönnu) og berið þœr á borð heitar eða kald-
ar.
Rauöa nefið
Og nú fara að sjást fleiri og fleiri rauð nef
á götunum. Það er ekki gaman að vera kalt á
r.efinu, en það er enn verra að vita að nefið á
mani lítur út eins og á drykkjumanni.
Ef þetta er mjög áberandi, er bezt að leita
læknis. Ef blóðrásin er of hæg, ráðleggur hann
kanski nudd eða meiri hreyfingu. Þá er líka mik-
bót í að klæða sig hlýlega; vera í ullarsokkum
með ullarvettlinga o. s. frv.
Svo eru til mörg húsráð, sem eiga við nef-
broddinn. Þeir sem eiga vanda til að fá rautt
nef, ættu að forðast vatn og sápu þegar kalt er
í veðri. En í staðinn verður að hreinsa húðina með
kremi á kvöldin, bera á hana feitt næturkrem
og þvo sér úr lotion á morgnana. Það er líka
hægt að fela roðann undir nægilega miklu púðri
og þá er ágætt að smyrja nokkrum dropum af
sykurvatni (2 tsk. af sykri í heitu vatni) á
nefið eftir að dagkremið hefur verið borið á.
Síðan er púðrað yfir með ljósu púðri, sem nú
tollir ágætlega.
Tízkufréttir úr klaustrunum
Nú sjást öklamir á systrunum.
Jafnvel nunnurnar tala nú af ákafa um nýju
tízkuna. Ástæðan er sú að páfinn hefur sam-
þ/kkt nýjan búning fyrir reglu Systranna frá
Nazaret og eru kjólarnir talsvert styttri en áð-
ur hefur þekkzt. Domincusar-reglan hefur líka
lagt fram uppdrætti að nýjum kjólum og búizt
er við að fleiri komi á eftir. Þá hefur verið gef-
ið leyfi til að systurnar gangi í sex undirpilsum
í stað sjö.
Páfinn skýrði sjálfur ástæðuna fyrir þessari
nýbreytni i ræðu sem hann hélt fyrir 750 abba-
dísum víðsvegar að úr heiminum. Hann sagði að
ungum stúlkum findist klausturlifið úrelt og leit-
uðu í aðrar stöður. Afleiðingin væri sú að skól-
um og sjúkrahúsum væri lokað vegna skorts á
starfsliði.
Til að ráða bót á þessu, hefur verið ákveðið i
páfagarði að draga úr meinlætalifnaði klaustr-
anna. Nunnum, sem lifa lokaðar innan klustur-
veggjanna og eyða tímanum við bænalestur, hef-
ur verið bent á að æskilegt væri að þær sneru
sér að hagnýtari störfum, eins og hjúkrun,
kennslu eða vinnu í rannsóknarstofum.
Og til að klausturlífið geti staðið enn betur
að vígi í samkeppninni við önnur störf, sem nú-
tímakonan getur valið um, á nú að hita betur
upp klaustrin, skreyta lestrar- og vinnusali og
koma andlegri lesningu í aðgengilegra form.
En eins og áður er sagt, hafa umbæturnar
iyrjað x klæðaskápunum.
Nýjustu hljómplöturnar frá
DRANGEY
ISLENZIÍIR TÓNAR kynna
fyrstu íslenzku dansplöturnar
SVAVAR LARUSSON og
Kvartett JAN MORAVEKS
(Jan Morávek, fiðla, klari-
nett, Bragi Hlíðberg, harmo-
nika, Eyþór Þorláksson, git-
ar og Jón Sigurðsson, bassi)
1 Mílanó
Út við Hljómskálann
SVAVAR LARUSSON og
SY-WE-LA-Kvintettinn
Hreðavatnsvalsinn
Eg vild’ ég væri
Fiskimannaljóð frá Caprí
Sólskinið sindrar
Cara Cara Bella Bella
On The Morningside of The •
Mountain
MUSICA.
Kurt Foss og Reidar Böe
Nære Ting
Min Röde Guitar
Blaveispiken
Sjömans Betraktninger
Humle Brumle
Tre Yndige Sma Mus
Jens Book Jensen
Kjærlighedskarusellen
En Duft Av Paris
TELEFUNKEN.
Stig Olin
Julia, Julia
Under Áppeltrádet
ifififififififif
Albert Vossen, harmonika
Hoppla
Mit Siebenmielstiefeln
Atli. Biðjið um lista yfir Tele-
funken Long-Playing plötur.
CUPOL.
,,Snoddas“ Nordgren
Flottarkárlek
Charlie Trunk
Kárlighedens Hamn
Sjömannens Sang
Barndommshemmet
Jag Venter Ved Min Mila
Ingrid Almquist
Ole Luköje
Noen Kommer Noen Gár
METRONOME.
Delta Rythm Boys
Dommaredansen
Krista'llen Den Fina
Lover Come Back To Me
They Ditn’t Belive Me
I Got You Under My Skin
Gipsy
Sunny Side Of The Street
Begin The Beguin
'k'k'k'k'k'k-fc'k
CAPITOL.
Nat „King“ Cole
Lilette
Jet
Somewhere Along The Way
What Does It Take
I Almost Lost My Mind
Baby Won’t You Say You
Love Me
Art Van Damme Kvintettinn
After You’ve Gone
Little Brown Jug
Linger Awhile
I Want To Be Happy
Ella Mae Morse
Sensationel
Love Me Or Leave Me
Gordon MacRae og Joe Stafford
Wunderbar
To Darn Hot
Les Baxter með kór og hljómsv.
Blue Tango
Please Mr. Sun
Because Of You
Unless
Helen O’Connell og Dean Martin
We Never Talk Much
How D’ya Like Your Eggs
In The Morning
Helen O’Connell
Come What May
Baby We’re Really In Love
Einkaumboð fyrir ofantalin plötumerki
Hljóðfœraverzlunin DRANGEY
Laugvegi 58 Símar 3311 og 3896
Hvað kanntu í pólitík?
Framhald af hls. 3.
þegar pólitíkin er annarsvegar. Pólitískir fundir
andstæðinganna eru „daufir", „fámennir”,
„ómerkilegir”. Pólitískir fundir samherjanna eru
„fjörugir”, „fjölsóttir”, „vel heppnaðir". Ræðu-
maður andstæðinganna „fór með fleipur”, „þvaðr-
aði“, „blaðraði”, „öskraði sig hásan". Ræðuskör-
ungur samherjanna „flutti mál sitt af stillingu
og einurð", „mæltist afbragðsvel", „beitti fyrir
sig skírum, óhrekjanlegum rökum”, „tætti sund-
ur staðhæfingar fyrri ræðumanna lið fyrir lið“.
En nóg um þetta. 1 íslenzkri blaðamennsku er
margt gott og ýmislegt ágætt. Islenzkir blaða-
menn eru (guði sé lof) frjálsir menn, sem geta
sagt öðrum mönnum að fara norður og niður
óþvingaðir af ritskoðun og öðrum fjötrum. Áhrif
íslenzkrar blaðamennsku á lifið í landinu eru lika
geisimikil, ef til vill meiri en víðasthvar annars-
staðár. Þessvegna er bæði rétt og skylt að slá
botn í þessa Kennslubók fyrir byrjendur í pólitík
með því að birta stuttan lista yfir helztu blöðin,
sem styðja stjórnmálaflokkana:
Sjálfstœðisflokkurinn: Morgunblaðið og Vísir í
Reykjavík, Vesturland á Isafirði, Siglfirðingur,
Islendingur á Akureyri, Fylkir í Vestmannaeyj-
um, Hamar í Hafnarfirði. Auk þess ýmis önnur
rit og bæklingar.
Framsóknarflokkurinn: Tíminn í Reykjavík,
Dagur á Akureyri, Einherji á Siglufirði, Isfirð-
ingur, Framsóknarblaðið í Vestmannaeyjum.
Auk þess önnur rit og bæklingar.
Sósíalistaflokkurinn: Þjóðviljinn í Reykjavík,
Mjölnir á Siglufirði, Verkamaðurinn á Akureyri,
Austlendingur í Neskaupstað, Eyjablaðið I Vest-
mannaeyjum. Auk þess önnur prentuð og f jölrituð
smárit.
Alþýðuflokkurinn: Alþýðublaðið í Reykjavík,
Skutull á Isafirði, Alþýðumaðurinn á Akureyri,
Alþýðublað Hafnarfjarðar. Auk þess ýmis önnur
rit og bæklingar.
Veitingahúsin TVÖ
Framhald af bls.
„Hvað? maðurinn yðar! Fer hann líka þang-
að?“
Þá svaraði hún sorgbitin á svipinn en með
blíðlegri röddu:
„Til hvers ætlist þér, maður minn? Karlmenn-
irnir eru svona, þeim þykir ekki gaman að horfa
á konur gráta: og ég græt alltaf, síðan litlu
börnin dóu . . . Og svo er þessi mannlausi kofi
svo ömurlegur . . . þegar vesalings José mínum
leiðist of mikið, fer hann að fá sér í staupinu
hinumegin. Og af því hann hefur fallega rödd,
lætur Arleskonan hann syngja. Uss! . . . nú byrj-
ar hann aftur.
Og þarna stóð hún í leiðslu við gluggann og
rétti fram hendurnar. Og stóru tárin gerðu hana
enn ófríðari, þar sem hún hlustaði á José syngja
fyrir konuna frá Arles:
Le premier lui dit:
„Bonjour, belle mignonne!“