Vikan - 06.08.1953, Blaðsíða 2
IFRÁSÖGUR FÆRANDI
I»AÐ var skýrt frá því í blöð-
um uxn daginn, að Batista, ein-
ræðisherra á Kúbu, hefði smellt
á herlögum í landi sínu, og var
tilefnið uppreisnartilraim gegn
stjórn hans. Batista er að því leyti
einstakur í sinni röð í Suður- Am-
eríku, að hann hefur tvisvar hrifs-
að til sín völdin með vopnavaldi;
en annað hefur hann naumast um-
fram starfsbræður sína þar í álfu,
því eins og alkunnugt er, þekkj-
ast þar varla öðruvísi stjórnar-
skipti en með tUstiUi vélbyssunn-
ar og handsprengjunnar.
I»að er sennilegast ekkert fólk
í heiminum eins laust við réttan
skilning á lýðræði, eins og fólkið
sem býr í Suður-Ameríku.
ÉG hef einu sinni sém blaða-
maður þurft að tala við nokkra
flugmenn frá Venezuela, og stóð
þá svo á, að einhver generáll var
rétt nýbúinn að gera byltingu í
landi þeirra. Flugmönnimum var
Ula við generálinn og kváðu hann
vera mesta þrælmenni, en báðu
mig þó að hafa ekkert eftir sér,
enda væru þeir á heimleið. Mér
skildist, að ef það væri hermt eftir
þeim í íslenzku blaði, að nýi ein-
ræðisherrann í Venezuela væri
varmenni og bófi, þá óttuðust þeir,
að hann mundi frétta þetta og
hneppa þá í fangelsi strax eftir
heimlxomuna.
1 Suður-Ameríku eru þeir menn
settir í dýflissu, sem tala illa um
ríkjandi einræðisherra.
Batisxa kvað vera mesti
þorpari, og ég er eltki í neinum
vafa um, að flugmennirair sögðu
allan sannleikann. Að mínu viti
hefur samt enginn einræðisherra
í Suður-Ameríku verið jafn ófor-
betranlegur dóni og Manuel Est-
raxla Cabrera. Eins og lög gera
ráð fyrir, var Manuel hershöfð-
ingi, og hann var einvaldur í Gua-
temala frá 1898 til 1920.
Einræðisherrar í Suður-Ameríku
hafa mikið gaman af að látast
vera eldheitir lýðræðissinnar; því
efna þeir til „kosninga“ svona með
skikkanlegu millibili, bjóða sig
fram til forseta — og fá öll at-
kvæðin.
Algengustu aðferðirnar eru: 1)
að banna aðra frambjóðendur og/
eða 2) að telja atkvæðin sjálfur.
En Manuel okkar frá Guatemala
fór sínar eigin götur. Kosninga-
daginn gaf hann út forsetalega
tilskipun um, að hér með væru
allir atkvæðisbærir menn komnir
í herinn, og svo þrömmuðu liðs-
foringjar hans með nýju hermenn-
ina á kjörstað og létu þá setja
stórt og fallegt X við nafnið Man-
uel Estrada Cabrera!
Eg birti hér mynd af ungu
pari í Paradís; þetta par er að
minnsta kosti Adam og Eva nú-
timans. I>au búa ein á eyju ein-
hverstaðar í Miðjarðarhafi og eru
mæta sæl með tiiverana.
Charles Violet heitir Breti frá
Worchester, og hann tók myndina
og dvaldist lijá þeim í nokkra
ilaga. Honum segist svo frá:
,,Cg var á snekkju minni að
leita að sokkinni galeiðu, þegar
ég kom tii þessarar eyjar. Tveim-
ur dögum síðar mætti ég þeim í
fjörunni, og voru þau nærri nak-
in. Hún er ljóshærð og fögur og
talar ensku. I>au eru bæði afburða-
góðir kafsundmenn, og þau hjálp-
uðu mér að kafa niður að galeið-
unni þar sem hún liggur á rúm-
lega tíu metra dýpi. Við fundum
brot úr fomum leirkerum og einn
vasa, sem er að minnsta kosti 1,000
ára gamall.“
En Charles segir ekki frá því,
hver þau raunverulega séu, þessi
Adam og Eva, né heldur hvar hún
sé þeirra Paradís. I>au tóku af
honum þagnareið.
Það er kannski full-
komin ástæða til að óska
Vilhjálmi Þ. Gíslasyni út-
varpsstjóra til hamingju
með það, að hann skuli
vera útvarpsstjóri jafn
friðsamrar þjóðar og Is-
lendingar eru. Mér virðist
á fréttum utan úr heimi,
að meðal blóðheitra manna
geti það verið blátt áfram
VI
Guðmundur nokkur Jónsson hefur
sent okkur heimilisfang Charles
Atlas, sem spurt var um í þessum
dálkum fyrir skemmstu. Utanáskrift
hans er: Charles Atlas, Dept. 81,
115 East 23rd St., New York 10,
N.Y., U.S.A.
Þakka þér fyrir, Guðmundur!
lífshættulegt að vera útvarpsmað-
ur.
I>að er nú orðið svo aJgengt, að
menn í Bandaríkjunum skjóti sjón-
varpstækin sín í sundur, að naiun-
ast telst til frétta. Tímaritið Time
hefur að minnsta kosti tvisvar í
ár greint frá slíkum atburðum.
En hvemig líst mönnum á, þeg-
ar sjóðvitlausir útvarps- og sjón-
varpsnotendur eru farnir að ryðj-
ast inn i sjónvarpssaJi og stinga
kutum í starfsfólkið ? l>etta kom
fyrir í New York fyrir skemmstu,
og segir svo í fréttinni:
„TuiTUGU og níu ára gamall
maður hljóp í gær inn I sjónvarps-
stöð í New York, öskrandi: „Ég
hata sjónvarp!“ og réðist um-
svifalaust á leikara og aðra starfs-
menn, þar sem þeir voru að undir-
búa útsendingu leikritsins Sjúkra-
húsið. Maðurinn var -vopnaður
tveimur brauðhnífum.
Hann rak annan linífinn í út-
varpsvirkja og braut glerkönnu á
höfðinu á Eric Dressler leikara,
sem reyndi að afvopna hann, en
lagði síðan á flótta, með alla við-
stadda á hælunum. Hann var hand-
samaður eftir harðan eltingaleilt".
Hvernig líst VilhjáJmi 1«. Gísla-
syni á svona krítik?
Loks er hér lítil saga um
lítinn strák, sem var hræddur við
þrumur og eldingar eins og fleiri.
Svo er það einn góðan veðurdag,
að {>að er feiknmikið þrumuveður,
og móðir hans fer með strák upp
á loft og háttar hann.
En hún er ekki fyrr komin niður
en hann kallar á hana í angist.
„En elsku bezti Pési minn,“ segir
móðirin, „þú þarft ekkert að vera
hræddur. Guð er héraa hjá þér og
hann mun vaka yfir þér.“
Og þá kvað Pési liafa svarað
eftir stundarkorn: „Já, það veit
ég mamma, en má ég ekki fara
niður til hans pabba, og svo verður
þú hérna uppi hjá guði ?“
G. J. A.
Ég hef um hríð verið að velta jyrir
mér svolitlu vandamáli, en elcki r.om-
izt að neinni skynsamler/ri niður-
stöðu. Hvað vilt þú leggja til m<íl-
anna ?
Vandamálið er: Hver er mur.urinn
á óperu og óperettu?
Geturðu ennfremur sagt mér hverr-
ar þjóðar Kliachaturian er og hvort
hann er enn á lífi ?
Kveðja frá Uglu.
Svar: 1 alfræðiorðabókinni okkar
hérna á VIKUNNI stendur einfald-
lega, að ópera sé sjónleikur, þar sem
mest áherzla sé lögð á sönginn, en
óperetta sé stutt létt ópera, oft að-
eins einn þáttur.
Khachaturian er Rússi og hann er
enn á lífi. Hann kom hér fyrir tveim-
ur eða þremur árum og stjórnaði
Synfoníuhljómsveitinni.
S. Ég er 16 ára og 161 sm. á liœð.
Hvað á ég að vera þung.
Lísa.
Svör: 1. Hér er Skautavalsinn eftir
Ragnar Jóhannesson við lag eftir
Oliver Guðmundsson:
Nú hnipra sig skýin við tærhvítan
tind
og tunglsljósið blikar á ísum;
í skyndi á fætur ég skautana bind
og skunda með léttfættum dísum.
Við brégðum á dans yfir blikandi
sveli,
hið bláskyggða dansgólf skal kannað:
hér er hált, ó, mín dís, þér til
fóta ég fell,
og finn að ég get ekki annað.
Já, vina mín, þú hlærð,
en vanda þann þú færð
að reisa hinn fallna á fætur;
hinn undraháli ís
er okkar Paradís
um lindrandi tunglskinsnætur!
2. Þú ættir að klæðast í daufa liti,
t. d. gráblátt, grænt og bláfjólublátt.
Rósrautt, brúnt og bleikt eru líka
góðir litir fyrir þig.
3. Eðlileg þyngd er um 58 kg.
Textinn „Manstu gamlar æsku-
ástarstundir ?“, sem birtist í síðustu
VIKU, er eftir Jenna Jóns.
Ég er með svo grófa húð og er
viss um að með réttum mat má laga
hana. Viltu nú ekki vera svo góð að
segja mér, hvað er hollt að borða og
livað ég œtti að forðast.
Ein áhyggjufull.
Svar: Fegurðarsérfræðingar mæla
venjulega með því að borða mikið
af ávöxtum og grænmeti til að fá
fagran vöxt og hreina húð. Þá vilja
þeir láta fólk borða heil-hveiti og
grófan; kornmat, en ekki hvítt hveiti.
Sumir álíta það nauðsynlegt, að
drekka mikla mjólk og minnst 8
glös af vatni á dag. Þeir segja að
vatnið hreinsi innyflin og skoli burt
öllum úrgangsefnum í gegnum nýr-
un. Aftur á móti á að forðast góm-
sætar kökur, eftirmat með þeyttum
rjóma og sykurskreytingum og sós-
ur.
Getur ekki líka verið, að húðin á
þér sé ekki nægilega hrein. Þú þarft
að taka heit böð og nudda þig vel
með grófu handklæði á eftir. Þannig
næst ónýt yfirhúð, sem oft situr
niðri í húðinni og gerir hana grófa.
FORSÍÐUMYNDIN
Islenzki hesturinn hefði
vel getað verið fyrirmyndin
— með fullri virðingu fyrir
þeirri ágætisskepnu. Myndin
er hinsvegar tekin úti í Svta-
riki, og heitir myndasmið-
urinn Beata Bergström.
Kunningi hans, sem er á
ferð hér á landi, lét VIKUNA
fá myndina.
VIÐTÖL
við þjóðkunna menn, sem birtast
í SAMTlÐINNI, vekja athygli. 10
hefti (320 bls.) árlega fyrir að-
eins 35 kr. Sendið áskriftarpönt-
un, og þér fáið timaritið frá sið-
ustu áramótum. ÁrgjaL! fylgi
pöntun.
1. Viltu gjóra svo vel og birta fyrir
mig skautavalsinn.
2. Ég er með ljósskolleitt hár, Ijós-
ann hörundslit og gráblá augu.
Hvaða litir fara mér bezt?
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmað ur: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
2