Vikan - 01.07.1954, Qupperneq 2
Viltu birta fyrir mig textann „I
faðmi dalsinsf'. Ég er búin að skrifa
tvisvar áður'bg ekki fengið svar. —
Vertu nú svo vœn að svara í þetta
sinn.
Svar: Betra seint en'aldrei og hér
kemur ljóðið „I faðmi dalsins", eftir
Guðm. Þórðarson. Það er sungið við
lag eftir Bjarna J. Gíslason, og hefur
hlotið 3. verðlaun í danslagakeppni
S.K.T.
Fögur voru fjöllin hér,
frammi í dalnum léku sér
marga æsku-unaðsstund
ýngissveinii; og.íögur sprund.
Hlupu frjáls um holt og mó
höfðu í blðmaláutu skjól
bundu kransa, brostu eins og
i ..blóm við sól.
Bjartir lokkar léku í
ljósi sólar. dægrin löng.
Þá var ástin Ijóðrænt lag,
og lífið söng.
Fegurð enn í fjöllum býr,
— faðmur dalsins grænn og hlýr.
Sveinar enn þar fara á fund,
við fögur sprund.
Svo er mál með vexti að ég er far-
inn að fitna svo ört, að mér ógnar, og
ég er hræddur við það um leið og
mér leiðist það. Það eru allir famir
að taka til þess og nefna þetta
við mig. Mér er Ijóst að ef þessu held-
ur áfram fæ ég minnimáttarkennd,
sem verður svo ekki auðvelt að losna
við. Eg er aðeins tvítugur og það er
ekki gott fyrir mann á mtnum aldri
að vera þannig á sig kominn. Það
skal að lokum viðurkennt, að ég hefi
nú, sem stendur rólega vinnu og get-
ur það ráðið einhverju. —■ Z. Ö.
Svar: Þú ert senniiega sjálfur bú-
inn að finna ástæðuna fyrir því að
þú fitnar. Ef þú borðar jafn mikið
og meðan þú hreyfðir þig meira, 'þá
er líklega um ofát að ræða. Ekki má
muna miklu á dag, sem menn borða
fram yfir þarfir, ef þess á ekki að
sjá stað á löngum tíma. Óheppileg
samsetning fæðunnar getur líka leitt
til fitu, t. d. ef menn sækjast mjög
eftir fitu og sætindum. Annars er oft
erfitt að skera úr um, hvort fita staf-
ar af ytri orsök eða truflandi inn-
kirtlastarfsemi. Þú skalt þvi byrja á
því að gera tilraun með megrandi
fæði, og ef það ber ekki tilætlaðan
árangur, er sennilega um innri orsök
að ræða og sjálfsagt að leita læknis.
En þú verður að gæta þess að fá
nægilega mikið af eggjahvítuefnum,
þó þú dragir úr neyzlu mjöls og syk-
urs eða fitu. Þú skalt líka fara að
scunda íþróttir og hreyfa þig meira.
Mig langar til að biðja þig að
greiða úr nokkrum spurningum fyrir
mig. Eg hef áliuga á að læra lífgun-
artilraunir og nú vantar mig upp-
lýsingar.
1. Hvar eru þœr kenndar? Og hver
kennir þær?
2. Hvað tekur það langan tíma?
3. Hvað kostar að lœra þœr?
1,. Á hvaða tíma árs eru þœr kennd-
ar?
N.B.K. og K.L.H.
Svar: Þið erum heldur sein á ykk-
ur, því eitt slíkt námskeið er nýaf-
staðið og ekki ákveðið hvenær það
næsta verður haldið, kannski ekki
fyrr en í haust, en það verður þá aug-
lýst. Jón Oddger Jónsson kennir líf-
gunartilraunir og námskeiðin kosta
ekkert. Ef þið eruð hrædd um að
auglýsingin geti farið fram hjá ykk-
ur, skulið þið hringja öðru hvoru í
Slysavarnafélagið eða Rauða Kross-
inn.
1. Hvernig er utanáskrif forstöðu-
konu Húsmœðraskóla Reykjavíkur?
2. Bru ekki tvö sex mánaða nám-
skeið á ári?
3. Er ekki annað námskeiðið eftir
áramótin ?
j. Er ekki betra að komast að, ef
maður er ekki í heimavistinni?
Tilvonandi húsmóðir.
Svar:
1. Katrín Helgadóttir forstöðukona,
Húsmæðraskóla Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 12, Reykjavík.
2. Það eru tvö dagnámskeið á ári
og eitt heimavistarnámskeið, fyrir
utan kvöldnámskeiðin.
3. Seinna námskeiðið byrjar 1.
febrúar.
4. Þú skalt senda umsókn þína sem
fyrst til forstöðukonunnar. Allur er
varinn góður.
Geturðu ekki sagt mér eitthvað um
hina ítölsku Önnu Magnani? Er hún
gift Tino Rossi ? Hjá hvaða kvik-
myndafélagi er liún starfandi?
Svar: Sem stendur er Anna Magn-
ani að leika í kvikmyndinni „Kon-
urnar“ undir stjórn Roberto Rossell-
ini, sem hún á að hafa verið trúlof-
uð, þegar Ingrid Bergman kom í spil-
ið og tók hann af henni. önnur aðal-
leikkonan í myndinni er hvorki meira
né minna er fyrrverandi keppinaut-
ur hennar, Ingrid Bergman. Hlutverk
þeirra eru þó ekki tekin samtímis
(sem betur fer), svo stjörnurnar
þurfa aldrei að hittast. Önnur hlut-
verk í myndinni leika þær Isa Mir-
anda og Alida Valli, stúlkan sem lék
í „Þriðja manninum“. Nei, Anna
Magnani er ekki gift Tino Rossi.
Mig vantar utanáskrift til tveggja
dag- eða vikublaða í Noregi (OslóJ,
sem eru mikið lesin. Ég skrifast á
við pilt í Noregi. Ef þú gœtir hjálpað
mér um einliverjar heppilegar utan-
áskriftir (á blöðum) þá væri ég þér
þalcklátur. Einnig ef þú gætir gefið
mér utanáskrift til einhvers blaðs i
„New Foundland“. — X-Y, Akranesi.
Svar: „Alle Kvinners Blad“,
Akersgt. 8 V, Oslo, hefur stóran
bréfasambandsdálk.
Við getum því miður ekki bent þér
á neitt ákveðið blað i New Found-
land, en veldu þér einhvern bæ þar
og skrifaðu tii „Local Newspaper“
á staðnum.
Forsiðumyndina
tók Stefán Nikulásson á sjó-
mannadaginn. — Af misgáningi
láðist að geta höfundar forsíðu-
myndar síðasta blaðs. Hann var
Ralph Hannam.
Heimilið og flugvélarnar
ERTU óliultari um líf þitt
heima hjá þér heldur en
i fiugvél ? Þó er sannleikur-
inn sá, að það farast fleiri
menn af slysförum á heimil-
um sinum heldur en í flugvél-
um. Árið 1952 fórst ekki einn
einasti maður í flugslysi í Bret-
landi. En á sama tíma brunnu
100 inni í húsum sínum í land-
inu — og fjöldi fórst í öðrum
slysum.
Það er sem sagt staðreynd,
að það er síður en svo hættu-
laust að dveljast í liúsum inni.
Það sanna skýrslurnar.
Otgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
2
MUNIÐ í
O I
■
■
NDRA MAGASIN j
Pau fejösa ö]l
fcraftsupur fra