Vikan - 01.07.1954, Qupperneq 11
ALÚÐLEGT VIÐMÓT OG BJART BROS
getur borgað sig - stundum. Lítið bara á reynslu þessa fólks
YENJULEGAST brosir maður alveg
umhugsunaraust og án þess að
neitt sérstakt búi á bak við það
annað en stundargleði eða kurteisi.
Þó getur eitt einasta bros gjör-
breytt lífi manns, eins og það til dæm-
is breytti lífi Tini Wiering, sem var
hollensk kennslukona.
þunga sekt fyrir uppátæki sitt! Þá var raun-
ar unnustan búin að fallast á að giftast hið
bráðasta, og þegar hún frétti um sektina, iét
hún blöðin hafa eftir sér harðorð mótmæli,
þar sem sektin mundi alveg eyðileggja fyrir
henni hveitibrauðsdagana!
Það er annars hreint ekkert einsdæmi, að
fólk leiti til blaðanna með ástarraunir sínar.
Jafnvel til útvarpsins. Þannig er þess
skemmst að minnast, að ungur maður gabb-
aði jafn virðulega stofnun og brezka útvarp-
ið. Hann hafði lent i rifrildi við unnustu sína
og hún farið úr bænum í stússi. Hann sneri
sér þá til útvarpsins og bað það að lýsa eft-
ir stúlkunni og biðja hana að koma hið bráð-
asta til Nottingham, „þar sem unnusti henn-
ar liggur hættulega veikur." títvarpsmennirn-
ir gleiptu agnið og stúlkan flýtti sér allt hvað
af tók til Nottingham — og sagði unnustan-
um upp fyrir fullt og allt, þegar hún kom þar
að honum bráðlifandi.
Dag nokkurn 1943 mætti hún á föm-
um vegi öldruðum bónda að nafni Pol-
ling, sem var vanskapaður í andliti.
Svo ófrýnilegur var þessi gamli mað-
ur, að menn forðuðust hann eins og
pestina. En Tini bar sig öðru vísi að.
Þennan dag þegar hún mætti bóndan-
um, 'heilsaði hún honum kurteislega og
brosti vingjarnlega til hans.
MAÐUR í Manchester klifraði upp í
kirkjuturn og neitaði að koma niður
fyrr en konan hans hefði lofað að
hlýða honum í einu og öllu. Sjálfs-
morðshótanir virðast semsagt furðu
algengar, þegar snurða hleipur á
þráðinn hjá elskendum. Eitt óvenjulegasta
málið þeirrar tegundar átti sér stað i Lond-
on, þar sem vonsvikin stúlka reyndi að fyrir-
fara sér með gasi, en var bjai'gað, þegar ná-
grannar hennar fundu gaslyktina. Þá tók
hún inn eitur, og um leið og hún féll, felldi
hún um koll þungan vasa. Brothljóðið heyrð-
ist, og aftur var lífi liennar bjargað.
Á meðan á þessu stóð hafði unnusti
hennar reynt að drekkja sér — og að-
eins fótbrotnað. I sjúkrahúsinu drakk
hann eitur, en var bjargað. Bæði voru
síðan kærð fyrir sjálfsmorðstilraunir.
En sögu þeirra lauk með því, að þau
giftust.
Polling gleymdi ekki þessu fagra
brosi. Og þegar hann andaðist þremur
árum seinna, uppgötvaði Tini sé til
mikillar furðu, að hann hafði arfleitt
hana að öllum eigum sínum, sem virt-
ar voru á um hálfa milljón króna.
Stundum borgar sig þó ekki að brosa.
Um það getur borið 29 ára gamall
Englendingur að nafni Thomas Mun-
son. Hann brosti til leynilögreglu-
manns — og nú er hann að afplána sjö
ára tugthús.
Þessu dýra brosi brosti Munson í
Fleetstræti í London í vor. Þegar Mun-
son brosti, þekkti leynilögreglumaður-
inn í honum tennurnar og vissi, að
þarna var innbrotsþjófurinn á ferðinni,
sem oft hafði verið lýst eftir og sem
framið hafði fjölda rána!
Munson var dulbúinn, þegar þetta
átti sér stað, en gerfið blindaði ekki
hinn skarpskyggna lögreglumann, þeg-
ar hann sá tennur þjófsins.
Annað bros, sem leiddi til vandræða,
átti falleg stúlka í Turin á ítalíu. Hún
var stödd í veitingahúsi, þegar hún
brosti vingjarnlega til fjögurra manna,
sem stóðu þar við barinn. Þeir byrj-
uðu að rífast um, hver þeirra hefði átt
brosið, og síðan fóru þeir að slást og
loks enduðu þeir í sjúkrahúsi. Þeir
hefðu þó átt að sýna meiri stillingu.
Þeir voru 81, 82, 83 og 85 ára gamlir!
Eitt bros getur örvað menn til mik-
illa dáða. 1 lok 7. lotu var amerískur
boxari kominn að falli og búinn að
glata allri sigurvon. En sem hann sat
á stól sínum eftir lotuna, kom hann
auga á rauðhærða stúlku meðal áhorf-
enda, sem veifaði til hans og brosti
hughreystandi.
Hann var sem nýr maður þegar 8.
lotan hófst, sló andstæðing sinn niður
sex mínútum síðar og vann 75,000
krónur.
En sögunni er ekki alveg lokið. Box-
aranum tókst einhvernveginn að hafa
upp á rauðhærðu stúlkunni, og hann
gaf henni helming upphæðarinnar.
Það er heldur ekki ýkja langt síðan
ung þjónustustúlka uppgötvaði, að
vingjarnlegt viðmót getur borgað sig.
Þessi átján ára stúlka lét það aldrei
bitna á viðskiptavinum sínum, þótt
starf hennar væri lýjandi. Bónda að
nafni Shellenberger fannst svo mikið
til um hið hlýja bros hennar, að hann
ánafnaði henni 225,000 krónur í erfða-
skrá sinni. Þegar hann lést, reyndu
ættingjarnir að fá erfðaskrána ógilda,
en árangurslaust. Hin viðmótsþýða,
þolinmóða stúlka stundar nú nám í
góðum framhaldsskóla.
Loks er hér saga um annað bros,
sem borgaði sig. Ung amerísk stúlka,
sem var á skemmtiferð í New York, gaf
betlara fáeina aura og brosti um leið
svo fallega, að vellauðugur maður, sem
sá til hennar, varð heillaður. Hann lét
veita henni eftirför, og þegar hann
komst að því, hvar hún bjó, sendi hann
henni 330,000 króna ávísun!
AFGLAPAR
ASTFANGNIR
JOHNNY CLARKE uppgötvaði, að
kærastan hans var farin að gefa
öðrum manni hýrt auga. Svo hann
tók sig til og stangaði búðarglugga
svo óþyrmilega, að höfuðið gekk
í gegnum rúðuna — væntanlega í
þeirri von, að vinna þannig kærustuna
aftur.
Clarke skarst illa á höfði, og það sem
verra var — kærastan yppti bara öxlum. Auk
þess var hann tekinn fastur fyrir spellvirki.
En með verknaði sLnum var hann samt kom-
inn í flokk þeirra manna, sem gera hina ó-
ti-úlegustu — og heimskulegustu — hluti í
nafni ástarinnar.
Það var svipað ástatt með Harry nokkurn
Grosgold, sem smaug út um glugga á 18. hæð
í skýjakljúf í Detroit og hótaði að fleygja
sér niður nema unnustan lofaði aö ganga taf-
arlaust að eiga hann. Hún kallaði á slökkvi-
liðið.
Skömmu seinna stökk Harry og kom ó-
meiddur niður í net, sem slökkviliðsmennirn-
ir höfðu strengt yfir götuna. Hann var að
sjálfsögðu handtekinn, og seinna fékk hann
1 Englandi var það líka seni 17 ára gömul
stúlka ,,hefndi“ sín á ótrúum kærasta með
því að auglýsa andlát sitt! Það eina, sem hún
hafði upp úr krafsinu, var að fólk rak upp
stór augu, þegar það heimsótti móður henn-
ar til þess að tjá henni samúð sína — og
mætti ,,líkinu“.
Willy Hayman í Minehead, Englandi, sór
þess dýran eið að klippa ekki hár sitt, nema
unnusta hans hætti við að segja honum upp.
Hann stóð við heit sitt í 25 ár og var skilj-
anlega búinn að fá æði mikinn lubba — þeg-
ar hann skaut sig.
Hún virðist semsagt ekki hafa gefið sig,
stúlkan hans. Betur tókst til, þegar blóð-
heitum Frakka var sagt upp af sinni kærustu
og ákvað að fremja sjálfsmorð á heldur ó-
venjulegan hátt. Hann óð inn í ljónabúr hring-
leikahússins í Bordeaux.
Ljónin réðust tafarlaust á hann, en honum
var, bjargað fyrir snarræði starfsmanna hring-
leikahússins. Upp úr því sá stúlkan sig um
hönd og gékk að eiga manninn — og fólkið i
hringleikahúsinu var viðstatt vígsluna.
11