Vikan - 27.03.1958, Page 3
Þegar það gat kostað læknirinn
lífið ef sjúklingurinn dó
MIÐALDIRNAR (476—1492) hafa löngum
verið kallaðar niðurlægingartímabil
mannkynssögunnar.
Leikir og lærðir höfðingjar réðu þá. lögum
og lofum, menntun var á lágu stigi, en alls-
konar hjátrú og bábiljur var í hávegum haft.
Allur þorri manna var hvorki læs né skrif-
andi, almennum þrifnaði og hollustuháttum
lítill sem enginn gaumur gefinn.
Sérhver framfaraviðleitni var litin óhýru
auga af valdamönnum þessara tíma og þeir
sem gerðust svo djarfir að draga gamlar
kenningar í efa, eða koma með nýjar, var
refsað með harðri hendi, ef upp komst.
Fyrri hluta miðalda voru engir lærðir skurð-
læknar i Evrópu. Einu mennirnir, sem höfðu
einhvern snefil af læknisfræðilegri þekkingu
voru Gyðingar, sem kynnzt höfðu læknisað-
ferðum arabiskra lækna og lært af þeim, en
kirkjan fordæmdi starfsemi þessara manna og
bannaði alþýðu að leita til þeirra.
Viðhorfið til þeirra var þannig, að þeir voru
í stöðugri lífshættu. Árið 580 lét Gutram,
búrgundajarl, lífláta tvo skurðlækna á gröf
frúar sinnar, vegna þess að hún andaðist úr
svartadauða, en þeir höfðu áður skorið í kýli,
sem sjúkdómurinn olli.
Árið 1337 var lækni nokkrum drekkt í Od-
erfljóti fyrir að hafa mistekizt að lækna blindu
Bæheimskonungs; og 1464 lét Ungverjalands-
konungur kunngera, að hann myndi launa vel
þeim lækni, sem gæti grætt örvasár hans, en
lífláta ef mistækist.
Dæmi eru til þess að læknum hafi allt fram
á 16. öld verið refsað fyrir ófyrirsjáanleg ó-
höpp í sambandi við lækningar eða það eitt
að lækning mistókst. Jón páfi XII. lét brenna
á báli lækni frá Flórens, sem hafi stundað
hann án árangnrs.
Fyrsti læknaskóli í Evrópu.
Ekki er vitað með vissu hvenær fyrsti
læknaskóli í Norðurálfu var stofnaður, en
sumir telja að það hafi verið árið 802, á dög-
um Karlamagnúsar.
Hann hafði aðsetur i Salerno á Ítalíu,
skammt frá borginni Napoli. Allt frá fornu
fari hafði verið þarna hvíldar og hressingar-
staður auðlcýfinga þeirra tíma og þangað
leituðu þeir út að svala Miðjarðarhafsins úr
hinum kæfandi sumarhitum stórborgarinnar
Rómar.
Fyrirlestrar um líffræði voru fluttir við
þennan skóla, en undirstöðuatriði þeirra fræða
byggðust á kenningum Galens, sem áður hef-
VIKAN
ur verið minnzt á i þessum þáttum. Krufning-
ar voru gerðar á svínum og kennararnir
byggðu kennslu sina á þeim.
Margt hefur misjafnt verið sagt siðar um
skóla þennan og smám saman fer honum
hnignandi, en aðrir taka þá við.
Meðal kennara við skólann var fyrsti kven-
læknir í Evrópu, Tortula Ruggiero. Hún
fékkst við fæðingarhjálp og kvensjúkdóma og
hefur ritað bók um þessi fræði. Þar eru all-
góðar lýsingar á ýmsum kvensjúkdómum.
Með krossferðunum hefjast kynni Evrópu-
manna á menningu Austurlanda, og upp frá
því gætir áhrifa þaðan á flestum sviðum, ekki
hvað sízt læknisfræði, en Arabar stóðu
Evrópumönnum miklu framar í henni. Á 12.
öld hefst nokkurt framfaraskeið og um miðja
öldina var fyrsta kennslubókin í handlækn-
ingum rituð í Salerno.
Enginn veit hver höfundur hennar er.
Sennilega eru þeir margir. Elzta handritið er
varðveitt í Bamberg i Þýzkalandi. Sumir
halda, að Roger frá Palermo sé einn af höf-
undunum, en hann ritaði og gaf út árið 1170
bók er hann nefndi „Practica."
Læknarnir í Salerno skrifuðu mikið um
sáralækningar, sem von var á þessum röstu-
og striðstimum.
Roger þerraði sárin með lími^ lagði viö þau
eggjahvítu eða stráði í þau dufti.
„Náð og gæska guðs . . .“
Hann kennir hvernig sauma megi sár sam-
an með silkisaum og stór sár lét hann setja
kera*) í. Hann mælir með því, að örvai' og
spjótsoddar séu numdir brott, hvenær sem því
megi við koma, en segir um leið: „Ef ekki
er hægt að ná honum (örvaroddinum) án þess
að valda miklu tjóni, er betra að láta hann
vera; því margir hafa lifað lengi með vopn
í sér.
Um langan aldur var bók hans „Practica"
notuð til kennslu í handlæknisfræði. Hann
virðist hafa verið mikill raunsæismaðui', er
hann ritar um nýrnasár: „Vér eigum undir
náð og gæzku guðs hvort það grær, en eigi
verkum vorum."
(Heilbrigt líf).
*) Keri er lagður í sár til þess að vilsa geti
runnið úr þeim út á yfirborðið.
899. KKOSSGÁTA VIKUNNAR.
VORTlZKAN 1958
I NÆSTA BLAÖI
í næsta blaði munum við birta
myndir og segja ofurlítið frá því
nýjasta, sem fram kom á vorsýn-
ingum stóru tizkuhúsanna í París.
A hverju ári er beðið eftir frétt-
um þaðan með talsverðri forvitni,
því frönsku tízkufrömuðirnir
Iiafa jafnvel áhrif á klæðnað
kvenna hérna uppi á lsiandi, eins
og berlega kom í Ijós í haust,
þegar pokatízkan kom á markað-
inn.
ALGLYSIR
Lárétt skýring:
1 ný af nálinni — 5 slavnesk — 9 eltir suma — 10 trantur — 12 lik-
amsvik — 14 limur — 16 nestispoki — 18 nár - 20 tréð — 22 fjær — 23
titill, sk.st. — 24 alltaf — 26 hrósa — 27 dreif -— 28 endurvarpstæki — 30
síki — 31 skipshluta — 32 þar sem skinnræksni úr Skáldu fundust í fleti
— 34 tvíhljóði — 35 sælgæti — 37 fjöldi — 40 gimsteinn — 43 mælieining
— 45 rifjað upp (fyrir) — 46 látæði — 48 ruglingur — 50 fangamark í-
þróttafélags — 51 húsdýr — 52 hugboð — 53 dýrka — 55 vot — 57 vitjaði
Egypta sjö sinnum 58 ... . heimsins eru vanþakklæti — 60 vindur — 61
tafl — 62 bílategund — 63 farartæki — 64 óvanur.
Nú fellur eitt blað úr vegna páskavikunnar.
Næsta tölublað kemur því 10. apríl.
Lóðrétt skýring:
2 gafst hún Grýla upp á
mannsnafn — 7 liðugur —
13=51 lárétt — 15 raun —
21 já, já, svo skal verða
frumefni 31 Ásynja —
skjótráður - 40 ekki hafandi
Fótafæti — 44 hali — 46 fljótur
- 3 úrgangur — 4 fitl — 5 erfiði :— 6 kven-
8 hik — 11 söfnunartækið — 12 útungun —
17 saurgar — 18 illviðrishrota — 19 guðir —
23 fylgihnöttur — 25 í skóm —- 28 sk.st. — 29
33 stórfljót — 36 pytla — 38 sk.st. •— 39
— 41 ryk — 42 boðlina — 43 bær undir
— 47 hundsnafn — 49 brakaði — 52 dauft
ljós ■— 54 bæta við — 56 bráðlyndur • - - 57
lík 60 skemmtistaður.
blekking (slanguryrði)
51
VIKAN
3