Vikan


Vikan - 16.04.1959, Síða 8

Vikan - 16.04.1959, Síða 8
OFBELDI Julie starSi vantrúuð á lækninn. „Og þér eruð að gefa í skyn, að ég hafi alls ekki bent á rétt- an mann.“ „ug segi aðeins, að yður gæti hafa skjátlazt, frú Barton. Ég krefst ekki neins af yður. Ég veit ekki einu sinni, hvort ég hef lagalegan rétt til þess að koma hingað, og ég vil sannarlega ekki lenda í meiru klandri en ég er þegar í. „Karlweiss leit yfir öxl hennar í áttina að setustofunni. „Get- um við ekki farið inn og talað um þetta í ró og næði? Mér liggur mikió á hjarta.“ „Nei.“ „Jæja, þá skal ég skýra þetta út fyrir yður og reyna að vera eins stuttorður og ég frek- ast get. Frú Barton, ég veit meira um Charles Brunner en nokkur annar í heiminum. Ég yeit meira um hann en hann veit um sálfan sig. Þess- vegna á ég svo bágt með að trúa því, að þér hafið bent á réttan mann." Julie sagði: „Ég vil ekki heyra þetta nefnt. Vilduð þé ekki gera það fyrir mig að fara?“ „Nei,“ sagði Karlweiss æstur. „Ég krefst þess, að þér hlustið á mig. Sjáið þér til, frú Barton, allt sem Brunner gerir, gerir hann samkvæmt nokkurs konar reglu. Og allir þeir smágiæpir, sem hann hefur framið, eru samkvæmt þessarri reglu. Þcssi veikleiki hans stafar af því, að Brunner finnur, að hann hefur aldrei náð fullum karlmannlegum þroska. En það sem hann er nú sakaður um, er alls ekki samkvæmt reglunni. Sá verknaður var fram- inn af grimmum, áleitnum manni. Þetta var verk manns, sem öðlast ekki andlega og líkamlega útrás nema með ofbeldi. Þetta er einkennandi fyrir þá manngerð — þráin eftir ofbeldi. Þetta er ekki losti, heldur einskær ofbeldisþörf. Og þessi þörf er ekki til í Brunnef. Þetta er veik- leiki, en þetta er ekki einn af veikleikum hans. „Nú hljótið þér að skilja, hversvegna þetta fékk svo á mig og samvinnuménn mína á spítal- anum. Við erum enn fáfróðir í vísindagrein okkar — ég skal fúslega viðurkenna það — en stundum hefur okkur lánazt að kynna okkur persónuleika manna svo nákvæmlega, að engu hefur skeikað. Ég hélt að við hefðum komizt að sannleikanum um Brunner. Og ég væri enn á þeirri skoðun, ef þér hefðuð ekki bent á hann. Þessvegna kom ég hingað. Mig langaði til þess að sjá yður. Mig langaöi til þess að heyra, hvort þér væruð viss. En ef einhver vafi ■—." „Það er enginn vafi." „En ef einhver vafi er,“ sagði Karlweiss biðj- andi," skyldi ég sverja fyrir, að Brunner væri ósekur. Ef einhvers staðar skyldi leynast vottur af vafa — „Það er enginn vafi!" „Julie!" kallaði Tom frá svefnherberginu. „Hvcr er þetta?" Skelfing greip hana. Hún sá fyrir sér, þegar Brunner gekk niður á götuna fyrir framan fang- elsið, og hún sá Tom standa andspænis honum og taka byssuna hægt upp úr vasa sínum. Hún geip í ermi Karlweiss og hálfdró hann til dyra. „Gerið það fyrir mig að fara!“ hvíslaði hún sár- reið. „Málið er útrætt. Farið þér nú!“ Hún lokaði á eftir honum, hallaði sér upp að huróinni og skalf í hnjáliðunum. „Julie, hver var þetta?" kallaði Tom. „Við hvern varstu að tala?“ Hún tók á sig rögg og gekk inn i svefnherberg- i3. „Þetta var sölumaður," sagði hún. „Hann var frá tryggingarfyrirtæki, og ég sagði honum að fara.“ „Þú veizt, að þú átt ekki að opna fyrir ókunn- ugum," sagði Tom. „Hversvegna gerirðu þetta?" Julie reyndi að brosa. „Hann var ósköp mein- laus,“ sagði hún. En óttinn hafði skotið rótum hið innra með henni — og óx þar og dafnaði. Og ótti hennar stafaði af ýmsu. Stefnan frá Dahl, sem Tom hafði lagt niður í snyrtiborð sitt, blasti við henni í hvert sinn, sem hún dró út skúffuna. Rauði hringurinn, sem dreginn hafði verið á dagatalinu í kringum daginn, sem réttarhöldin skyldu fara fram, og litlir svartir krossar. sem nálguðust rauöa hringinn óðum. Og sýnin, sem hún sá fyrir sér: Brunner á fangelsiströppunum, eða Brunner, þegar hann gekk inn í réttarsalinn, eða Brunner í rökum kjallaranum, sem hún hugsaði sér að væri híbýli hans, og loks Brunner, þar sem hann stóð og góndi fram fyrir sig og fór stórri hend- inni i sífellu yfir munninn, og Tom, þar sem hann stóð andspænis honum og dró byssuna hægt upp úr vasa sínum og miðaði henni að brjósti Brunners —. Hún sá þetta enn greinilegar fyrir sér, þegar dr. Vaughn kom með hækjurnar handa Tom. Julie hryllti við þeim. Henni var sama þótt hún yrði að standa undir öllum þunga Toms, meðan hann haltraði úr einu herberginu í annað. Gifsið var honum fjötur; hann bölvaði þvi og ragnaði án afláts, eins og hann byggist við, að með því að nöldra sem mest, myndi hann losna við gifsið. En þcgar Tom fékk hækjurnar, þurfti hann ekki lengur á hjálp Julie að halda. Nú gat hann elt Lrunher uppi. I-Iún horfði á hann æfa sig aö ganga við hækj- ur um lcvöldið. 1 fyrstu reyndi hann aðeins að halda jafnvægi, en brátt varö hann ao gefast upp um stundarsakir og setjast. Hann sagöi: „Julie, þú veizt ekki hvað manni getur leiðst, þegar maóur gengur daginn út og inn í náttfötum og slopp. En þessu er nú að verða lokið." „Já.“ „Þá dettur mér eitt í hug. Þú verður að fara mej fötin mín til klæðskerans á morgun. Hann 8 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.