Vikan


Vikan - 16.04.1959, Side 26

Vikan - 16.04.1959, Side 26
DRAUGIiRIIMN © • • • alskcgg, sem nú þyrlaöist í allar áttir. Nei, — Niels gamli formaður var ekki dauður. — 1 óveðrinu sem geys- aði yfir eyjuna sama dag, hafði bát hvolft í lendingu — sexæring sem íbúar Borgundarhólms notuou þá mikið til að veiða gljáandi, gómsætu sildina sína. Þremur mönnum var bjargað — þrjú lík voru flutt á sjúkrahúsið. Trúa hugsunarsama yfirhjúkrunar- konan á barnadeild A, hún Ida gamla Sörensen, átti frídag. Hún var vön að láta ungu hjúkrunarkonurnar ssm höfðu næturvakt vita, ef eitthvaö kom i kjallarann. Hún vissi hvað það var að vera myrkfælin. „Ég sá engil,“ endurtók Niels gamli Og baslaði árangurslaust við að koma öðrum fætinum upp á næsta stiga- t>rep. „Ég —“ „Teppi“ Orðið spýttist eins og gufa úr borholu, upp úr barkanum á Stormi. Hann seildist upp á snaga og reif niður hvítan slopp af for- stöðukonunni og steypti yfir sig — En — æ, — nú hrapaði neðra hlífðar- fatie. „Já, teppi,“ stundi Isa og staulað- ist að skáp í horninu. Og nú var Niels gamli sveiptur í teppi og leiddur gegnum barnadeild A upp á karladeild D. Á karladeild D haföi Heba nætur- irakt. Hún bar nafn grisku æsku- gyðjunnar en var sjálf suðurjóti. Hún var frá Slesvig, þýzka landskrikanum sem Danir fengu eftir fyrri heims- styrjöldina 1920. Móðir hennar var náskyld Pauli Hindenburg, þýzka stjórnmálaskörungnum, en faðir hennar hafði verið trúr þegn Vilhelms 2. Þýzkalandskeisara, og unnið á hans vegum allt sitt líf. Heba hafði, full af áhuga og löngun til að hjálpa hrjáðu mannkyni, lagt út á liknar- foraut hjúkrunarkonunnar, — en nú var hún orðin gömul og þreytt. Hún hafði sest í gamlan tágastól og vafið teppi yfir fæturna. Hún hafði lokað augunum og ofaná maga hennar lá nýja Alþýðublað Borgundarhólms «neð stórri mynd af Þorvaldi Staun- ing, hinum elskaða ráðherra Dan- merkur. Isa og Stormur studdu Niels gamla gætilega upp stigann,' opnuðu hljóð- lega hurðina og ýttu honum inn fyrir. Hræðilegt óp, brak og brestir kváðu við. „Josses — draugar — hjálp,“ hróp- aði Heba og reyndi árangurslaust að losa sig úr brotunum af tágastóln- um og teppunum. „Afturganga, hjálp!“ Hún hafði vaknað við vondan draum og við henni blasti hvita lín- lakið og svarta skeggið á Niels gamla. En þegar loks var búið að hala Hebu upp, og skýra fyrir henni atburði næturinnar var Niels gamli settur í rúm, vafinn teppum, með hitapoka og sjóðandi kamillute —- og varð ekkert meint af volkinu. Vfirlæknir Madsen var léttstígur næsta dag, þegar hann labbaði nið- ur i þorpið. Kofinn hans Niels gamla, stóð rétt fyrir ofan fjöruna.. Hann var lítill og hlaðinn úr torfi og grjóti með grænu torfþaki eins og íslenzk fjárhús. En þilið var málað fagur- rautt og bak við kofann var vel l.irtur matjurtagaður með fáeinum ávaxtatrjám. S P A U G Bóndi einn kom inn i leikhús, og var þá kvartett að syngja. Bóndinn hlustaði dálitla stund á sönginn og segir síðan við sessunaut sinn: „Að Framhald af bls. 4. Niels hofði getað verið rikur, hann var duglegasti formaður í þorpinu og með afbi'igðum fisksæll. En hann var svo greiðugur ■— það voru svo margir sem þurftu að fá i soðið. Og svo er nú það. ■— Ekki var hægt að taka neitt með sér yfr- um —- og það var nú alltaf sælla að gefa en þiggja. Agatha konan hans Niels sat á rúminu sínu í fátæklega baðstofunni. Hún var spariklædd, því það var sunnudagui1. Á hvítskúraða borðinu fyrir framan hana lá Biblían. Hún var að reyna að lesa sér til hugg- unar. - En aftur og aftur brá hún bláköflótta svuntuhorninu upp að augunum. Lífið var erfitt. — Þrjá efnilegu synina hafði sjórinn tekið — telpuangann tók lungnabólgan -— og nú hann Niels. Hún seildist upp á hilluna yfir rúminu og tók þaðan haglega út- skorna skrlnu — einasta ver^mæta hlutinn sem litli kofinn átti. Á lokið var grafið ártalið 1576. Einn af for- feðrum Agötu hafði barist með Frið- rik 2. Danakonungi, sem endurheimti Borgundarholm undan yfirráðum Þjóðverja 1576, við borgina Hamars- hus sem er á norðurhluta eyjunnar, og stærsta borgarrúst sem Damr eiga. Agata gægðist ofan í skrinuna. Jú, eitthvað var nú þarna af aurum — nóg til að koina honum Niels í gröf- ina. „Góðan dag! — Komdu nú blessuð og sæl Agata mín,“ sagði yfirlæknir Madsen um leið og hann gekk inn i baðstofuna. „Hann Niels er ekki dáinn — hann er lifandi.“ „Hann Niels er ekki dáinn -— hann er lifandi," endurtók Agata, „hann er hjá Guði, og englunum •— eða kannske er hann bara á leiðinni þangað," bætti hún við í hálfum hljóð- um. „En ég hef verið mesta skass, og ekki góð við hann Niels," sagði hún í kjökurrómi, og horfði votum sorg- augum á yfirlæknirinn. „Sussu — sussu," sagði yfirlæknir Madsen í róandi tón. „Víst ekki, Agata mín. Þú ert mesta sómakona og allt sem þið Niels hafið gert gott í lífinu. En hann Niels er lifnaður við," bætti yfirlæknir Madsen við og horfði glöðum augum á Agötu. „Hann Niels er —“ Agata reyndi árangurslaust að rísa á fætur. „Hvað er maðurinn að segja? 1 gær var hann Niels dauður — var hann nú lifandi í dag! — Var bá eitthvað satt með þessi herrans töfralyf ssm vís- indin voru aö monta sig af. Var nú barasta liægt að vekja fólk upp frá dauðum. Og lengi mátti yfirlæknir Madsen tala við Agötu áöur en hún skildi svolítið af þvi sem gerst hafði. En þegar Niels gamli lcom heim nokkrum dögum seinna var heldur en ekki fagnaðarfundur. Agata hafði bakað kynstrin öh af lummum með ávaxtamauki úr garðinum sinum og bauð öllu starfsfólki sjúkrahússins, því eins og hún sag^i við sina beztu vinkonu og nágrai.r.akonu hana Tusemeldu: „Það mátti nú pkki mmna vera en blessað fólkið á sjúkrahúsinu fengi upp í sig lummubita. Það sem hafði vakið hann Niels upp frá dauðum". Cs/öfrT) fermingargjafir í glœsilegu úrvali (JR OG LISTHMJiNIR, Austurstræti 17. Simi 19056. PÁLIVHMW, Keflavík Sími 339. 3 þekktar verzlanir sjá nú þetta hyski! Þarna hamast þeir fjórir í einu, til þess að verða sem fyrst búnir." ; ; ; Afinn: „Nú skal ég koma með gátu, sem þú getur ekki ráðið, Pétur litli, og hún er svona: Hvaða dýr er það, sem hefur grátt hár og löng eyru og það er líl hægt að ríða á því ?“ „Pétur: „Ég er viss um að það ert þú, afi.“ j i | Frú Lára er að lesa í blaði og segir upp úr lestrinum við Pétur bónda sinn: „Hugsaðu þér nú ánn- að eins Pétur! I hvert skipti sem þú drégur andann, þá deyr einhver einhversstaðar í heiminum." Pétur: „Þetta getur vel verið satt; en það verður að hafa það; ég get ekki farið að hætta við að anda fyrir það, því að þá dey ég sjálfur.“ 26 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.