Vikan


Vikan - 23.04.1959, Qupperneq 8

Vikan - 23.04.1959, Qupperneq 8
• Ný stutt og spennandi framhaldssaga . MORÐVEFUR Það er enginn gamanleikur fyrlr iögfræðlng að taka að sér morðmál. I þessari sögu segir Bobert Traver frá þrautseigju verjanda, sem tekið hefur að sér mál, sem í fljótu bragði virðist vonlaust. Höfundurinn var sjálfur eitt sinn saksóknari í Bandaríkjunum, svo að ekki verður annað sagt en að efnið sé honum skylt. Þessi saga hefur verið metsölubók i Banda- ríkjunum, og ástæðan til þess ætti öllum að verða ijós, þegar lestur sögunnar er hafinn. Ég heyrði tilbreytingarlausan óminn frá sim- anum, áður en ég var kominn upp stigann. Ég flýtti mér að opna dyrnar að skrifstófu minni, fleygði veiðiáhöldunum minum í eitt hornið og tók upp tólið. ,,Halló,“ sagði ég. „Þetta er Paul Biegler." „Þetta er Laura Manion," sagði konurödd. „Prú Laura Manion. Mér þykir fyrir því að þurfa að hringja svona seint, en ég hef verið að reyna að ná i yður alla helgina." „Hvað var það, frú Manion?“ sagði ég. „Maðurinn minn, Prederic Manion, undirfor- ingi í hernum, hefm- verið settur í héraðs- fangelsið hérna I Iron Bay,“ hélt hún áfram. „Hann er sakaður um morð. Hann óskar þess að þér verðið lögfræðingur hans.“ Rödd hennar brast, en síðan hélt hún áfram. „Það hefur verið mælt mjög með yður. Getið þér tekið að yður þetta mál?“ Ég kyngdi. Loksins. Fyrsta stórmálið mitt, síðan ég tók að reka eigin lögfræðistörf fyrir ári. Og þar að auki morðmál. Samt varð að kynna sér ýmislegt. „Ég veit ekki, frú Manion," svaraði ég. „Auð- vitað verð ég að tala við hann og kynna mér málið, áður en ég get tekið ákvörðun. Auk þess þarf að komast að samkomulagi um þóknun, sem báðir aðila sætta sig við.“ Þetta var einkennilegt, þessar fáguðu, smeðju- legu setningar, sem lögfræðingurinn hafði tamið sér, til þess að koma tilvonandi skjólstæðing i skilning um, að slíkt krefðist töluverðra út- gjalda. Prú Marion brást eðlilega við þessum smeðjulegu setningum. „Já, auðvitað, hr. Biegler. Hvenær getið þér komið til hans ? Honum er mjög umhugað að sjá yður." Ég leit yfir bréfin, sem lágu á borðinu. Flest þeirra voru innantóm og einskisnýt, og höfðu hrúgast þarna upp, meðan ég var í veiðiferð- inni. „Ég skal fara til hans um ellefuleytið á morgun," sagði ég. Ég hafði tekið að mér f jölda morðmála áður, en allt.af sem sækjandi, aldrei sem verjandi. 1 tíu ár var ég saksóknari fyrir Iron Cliffs hérað — þar til Mitehell Lodwick sló mér við. Mitch var nefnilega slyngur fótboltamaður i þá daga, bæði í menntaskóla og háskóla. Og hann var enginn viðvaningur. Hann hafði líka barizt í seinni heimsstyrjöldinni, en ég hafði ekki komizt til vígstöðvanna vegna gamals lungnameins. Svo að Mitch var öllum góðum kostum búinn og stóðst ekki mátið; ég var engin hetja, svo að hann skaut mér ref fyrir rass. Um fertugt var ég atvinnulaus, og ég batt all- ar mínar vonir við lögfræðimenntun mína, nokkr- ar velktar lögfræðibækur og nokkrar gamlar flugustengur. Ég átti lengi bágt með að sætta mig við, að verða að láta í minni pokann fyrir þessum hnokka; siðan leigði ég mér skrifstofu i miðbænum, festi upp skilti: „Paul Biegler lögfræðingur“, á hurðina og beið. Þetta fór eins og ég hafði búizt við. öll meiri- háttar (og gróðavænleg) morðmál féllu í skaut verjandans Amos Crocker, sem ég hafði oftlega barizt við, meðan ég var saksóknari. Og það var enn eitt, sem aðeins gerði illt verra; Crocker gamli tók nú að slá Mitch við í morð- málum. Ekki öllum, en allflestum. Og árangurinn varð auðvitað sá, að gamíi mað- urinn sat sem fastast í virðingarsæti verjandans. Þar sem ég þurfti annað slagið að borða, varð ég að taka að mér skilnaðarmál og dánarbús- erjur. En ég komst fljótt að raun um, að þetta var mjög tilbreytingarlaust og leiðinlega starf — ofboðslega leiðinlegt. En morguninn eftir, þegar ég talaði við Fre- deric Manion undirforingja á skrifstofu sýslu- mannsins, fannst mér ég vera farinn að lifa lífinu á ný. Flestir okkar bregðast aðeins á tvennan hátt við fólki, sem verður á vegi okkar, annað hvort er manni þegar í stað illa við það eða kann strax vel við það. Og mér til mikilla vonbrigða, kom Frederic Manion mér mjög illa fyrir sjónir. Hjúpur sjálfsánægju hékk utan á honum eins og skikkja. Og hann lét strax hendur standa fram úr ermum, eins og til þess að staðfesta skoðun mína. „Já, sælir,“ sagði hann glaðhlakkalega og tók snöggt í útrétta hönd mína. „Ég hef verið að bíða eftir yður." Ég sá votta fyrir gremju, jafnvel ákúrum í rödd hans. Ég kom mér strax að efninu. „1 gærkvöldi, þegar ég hafði talað við konu yðar í símanum, las ég það sem blöðin segja um mál yðar,“ sagði ég. „Hafið þér lesið það?" „Já, auðvitað.“ „Er frásögnin í höfuðatriðum rétt?" „Já.“ „Ég ætla aðeins að minnast á aðalatriðin, blöð- in segja, að þér hafið gengið inn á bar Barney Quill í Thunder Bay nálægt fjörutíu og fimm mínútum eftir miðnætti síðastliðið föstudags- kvöld — í rauninni snemma á laugardagsmorgni — og skotið hann fimm sinnum; að þér hafið ekið bíl yðar að íbúðarvagni yðar í ferðamanna- garðinum í Thunder Bay; að þér hafið vakið umsjónarmann garðsins, sem er reyndar einnig fulltrúi sýslumanns, og sagt honum, að þér hafi skotið Quill; að hann hafi þá kallað á lögregluna frá Iron Bay; og að þér hafið beðið í íbúJarvagn- inum, þar til lögreglan kom. Er þetta rétt?“ „Já.“ „Blöðin segja ennfremur, að siðan hafi lög- reglumennirnir handtekið yður og farið með yður í þetta fangelsi; að konan yðar hafi farið með yður; og að konan yðar hafi sagt lögreglunni, að áður um kvöldið hafi Barney Quill nauðgað henni í skóginum og síðar barið hana og marið við hliðið að ferðamannagarðinum. Rétt?“ „Já.“ „Að kallað hafi verið á fangelsislækninn; að hann hafi lýst því yfir, að hann álíti ekki að konu yðar hafi verið nauðgað; og að kona yðar hafi boðizt til að ganga undir lygapróf, til þess að sanna mál sitt; að prófið hafi verið gert, en árangurinn sé ekki kominn fram. Rétt?" „Já.“ „Jæja. Ágætt, svo langt sem það nær. Nú skul- um við tala um ýmislegt, sem ef til vill hefur ekki verið minnzt á i blöðunum. Sáuð þér Barney Quill nauðga konu yðar?“ I fyrsta sinn sást glampi í köldum augum Man- ions; hreyfingar augnanna voru snöggar eins og í nöðru. „Nei,“ sagði hann lágt. „Sáuð þér hann misþyrma henni við hliðið?“ „Nei.“ - 8 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.