Vikan


Vikan - 07.05.1959, Qupperneq 11

Vikan - 07.05.1959, Qupperneq 11
TOT Lolíta er nafn á bók, sem hefur verið metsölubók undanfarna mán- uði í Bandaríkjunum og valdið mikl- um deilum. Sumir segja að hún sé hneykslanleg og klúr — aðrir segja, að hún sé listaverk. Eitt er víst, að bókin hefur vakið marga til umhugs- unar á aðkallandi vandamáli um all- an heim. Bókin hefur verið þýdd á átta tungumái, en er bönnuð í Frakk- landi og í mörgum bókasöfnum I Bandaríkjunum. Það stendur nú til að hún verði gefin út í Bretlandi, nema hún verði bönnuð þar líka. Söguhetjan Lolíta er aðeins á þrett- ánda ári, en hún er samt komin á kynþroska aldur. Hún málar á sér varirnar, hugsar um að ganga í aug- un á piltunum og hegðar sér eins og hún væri ung stúlka. Hún hefur haft mök við pilta og jafnvel fullorðinn mann. Lolita er aðeins skáldsagnarper- sóna — samt er hún raunverulega til. Hún gæti verið hér í Keykjavík — jafnvel átt heima í sömu götu og við. Um vornótt féll hrím og héla þung svo hélkalt á blómin veik og ung . . . Æskan vorið og hið tæra morgun- sár er það sem skáldin yrkja bezt og fegurst um. Ekkert er jafn vakandi í minning- unni og hugsað til með jafn miklum trega og liðin æskuár. Það er þvi raunalegt til þess að vita að til skulu vera þeir, sem ekki fá notið æskunn- ar, eða jafnvel glatað henni með öllu. Ekkert er jafn fagurt og sólbjart- ur vormorgun, þegar „Hið bliða vor sig býr i skrúð“ en ekkert er vor- gróðrinum hættulegra en frostnótt- in. Það vorar fyrr en áður hér á okk- ar kalda landi — og unglingarnir eru meira bráðþroska en áður var, bæði hér og i öðrum norðlægum lönd- um. Stúlkubörn verða oft það sem kall- að er fullþroska á aldrinum 13—14 ára og einstöku jafnvel fyrr. Þetta er sú staðreynd sem mörgum for- eldrum gengur erfitt að skilja, ekki síst þegar um uppvaxandi dætur þeirra sjálfra er að ræða, því það er vitanlega óskhyggja allra foreldra að börnin þeirra, sérstaklega dæt- urnar, séu börn sem lengst, enda margar sem eru það í þessa orðs bezta skilningi. En það er ekki um þær sem vandamálið snýst — heldur þetta nýorðna „fullorðna fólk“ sem skilur ekki fyllilega sjálft sig og er hinum eldri enn meiri ráðgáta. Þess vegna — oft í vandræðum sínum — gera þessir unglingar einskonar upp- reisn til að reyna að sýna heiminum að það sé orðið fullorðið fólk. Alltaf leiðir þetta til einhverra vandræða eða erfiðleika og ef foreldrarnir eru ekki vandanum vaxnir að leiðbeina og hjálpa út úr ógöngunum — oft tií hreinnar glötunar. Á útigangi. Víða um heim og einnig hér á landi eru margar ógiftar mæður, sumar aðeins skólastúlkur 14—16 ára gamlar. Af hverjum 100 börnum, sem fæð- ast hér á landi, eru um og yfir 25 óskilgetin. Það er eins með þetta og annað, maður sljóvgast fyrir ömurlegu hlut- skipti annara, sérstaklega ef það er algengt, en varla er hægt að hugsa ITA sér meiri plslargöngu fyrir ung- lingstelpu, en að standa ein uppi i algjörðu umkomuleysi með afkvæmi sitt. Það er ekki aðeins að verða svik- in af þeim sem treyst hefur verið í barnaskap og blindni, heldur er ekki um annað að velja en að þvælast með barnið sitt manna á milli — eða brjóta eitt sterkasta lögmál náttúr- unnar og kasta ósjálfbjarga barni sínu frá sér. Úr þessari eldraun kemmst enginn óbrenndur, hver kosturinn sem tek- inn er. Á giftingaraldur að haldast óbreyttur f Svo eru hin tilfellin sem ekki eru eins alvarleg þótt þau séu oftast ó- heppileg. Það eru trúlofanir ungl- inganna. 1 sumum löndum hefur það komið til mála að lækka giftingar- aldur og hvetja unga fólkið til að gifta sig fyrr. 1 Englandi (svo mað- ur geti nefnt tölur) er fjórða hver brúður yngri en 21 árs þunguð, áður en hún giftist. Þótt tölurnar tali þessu máli eru ekki allir sammála um að læka giftingaraldur. Þeir sem á móti mæla byggja skoðun sína á því, að þótt unglingarnir séu líkamlega þroskaðir, hafi þeir sjaldnast sam- svarandi andlegan þroska, þeir séu þess vegna ekki undir það búnir að taka á sig þá miklu ábyrgð sem hjónabandinu fylgi. ómari nokkur í enskum skilnaðar- rétti sagði nýlega: „Þetta er fimmta skilnaðarmálið, sem ég hef til með- ferðar í dag þar sem hjónin hafa gifzt yngri en 20 ára.“ Þessar skiln- aðartölur sýna bezt nauðsyn þess, að aldurstakmarkið sé haft óbreytt. Það má lengi deila um hver sé bezta lausnin á þessu vandamáli, og jafn- vel og hver sé aðal ástæðan. Kirkuleiðtogar og valdhafar víða um heim ræða þetta vandamál og leita úrlausna. Sumir halda því fram að það sé fyrst og fremst skortur á ábyrgðar- tilfinningu og sómatilfinningu hjá yngri kynslóðinni sem mestu valdi, rn ekki að það sé svo miklu fyrr kynþroska en t. d. næstakynslóð á undan. Ef við reynum að leggja niður fyrir oklcur úrlausn á þessu máli má segja að það sé ekki aöeins ákjósan- legt, heldur sjálfsagt að vekja sem mest ábyrgðartilfinningu og sóma- tilfinningu hjá öllum ungmennum, þar sem þetta tvennt er hyrningar- steinn undir líf þeirra og starf, en við megum ekki forðast þegar kom- ið er á kynþroskaaldurinn að ræða við unglingana eins og fullorðið fólk, s^m það að vissu leiti er, og leitast við að gefa þeim ófullkomnu ráð sem við þó getum gefið þeim til þess að forðast aðal árekstranna. Og svo síðast en ekki sizt þetta. — Ef i ógöngur er komið reynum þá að hjálpa þeim sem í þeim hafa lent, bæoi fjölskyldan og þjóðfélagið svo að einstaklingurinn þurfi ekki að liða kannske allt sitt líf. HVERIMIG SEFUR ÞÚ? Framhald af bls. 4. málverk fyrir augum manns og boli burt hinum óþægilegu hugsunum. En þá má maður ekki líta myndina sem einungis eina heild, heldur athuga hana í smáatriðum, fagra blóma- breiðu, bát á sgilingu eða fagran fjallasal. Endurtaktu þessa tilraun, ef hún heppnast ekki í fyrsta sinn. Þú veizt, hvað hugsanir geta verið reikular, þegar maður er að sofna. Sé svefn þinn hundraður af einhverju ákveðnu vandamáli, sem þú ert að fást við, reyndu þá að hugsa um eitthvað ann- að á sama augnabliki. Takist þér það, skiptu þá aftur og farðu að hugsa um það þriðja. Með því að likja þann- ig eftir hinum reikulu hugsunum þínum, sem þú hugsar, þegar þú ert að sofna, muntu oftlega finna hvíld. Sé ástandið alvarlegt verður þú að læra að „slappa" af. Enginn getur sofnað án þess. Það ei' rétt að leggja áherzlu á, að óttinn við að geta ekki sofnað er ein af aðalorsökum svefnleysis. Flestir vita hvernig þessu er varið. Þú lást vakandi meginhluta nætur í nótt, ef til vill líka í fyrrinótt. Og í nótt hugsarðu: Eg sofna ekki frem- ur í nótt en endranær. Á þennan hátt nær óttinn tökum á þér og svefnleysi það, er átti sér kannske eðlilegar orsakir, áttu nú stöðugt yfir höfði þér. Þetta skaltu aldrei láta henda þig. Þó maður geti ekki sofið eina og eina nótt, hvað gerir það til. Þú ert aðeins dálítið illa fyrirkallaður dag- inn eftir. Það er hægt að láta sig hafa það, og enginn hefur enn dáið úr svefnleysi! Segðu við sjálfan þig: Fyrst ég svaf illa í nótt, þá sef ég þess betur næstu nótt. Þessi ályktun er rétt, og það er fyrst þegar óttinn grípur um sig, að þetta náttúrulög- mál fer úr skorðum. Þegar þú ert búinn að sannfæra sjálfan þig um, að það gildi einu, hvort þú sefur í nótt eða ekki, byrj- aðu þá að draga andann sem sof- andi maður, þ. e. dragðvi andann hægt að þér, en andaðu hratt frá þér. Það er alltaf góð regla að líkja eftir hinu eðlilega, ef það kemur ekki af sjálfu sér. Og sjáðu til hvort þú ekki sofnar. Svefninn er einn hinn mikilvæg- asti þáttur í lífi voru, hann endur- nýjar stöðugt líkama og sál og sér- hver maður, sem ber heilsu sina fyr- ir brjósti, ætti að kynna sér öll vandamál í sambandi við hann. Og hafi maður gert það mun manni skiljast, að takmarkið hlýtur að vera svefn án meðala. Það er ekki þai- með sagt, að litla, hvita taflan geti ekki orðið mörgum til mikillar hjálpar, til þess að gleyma sorgum og áhyggjum, sem fólk verður snögglega fyrir eða þegar sjúkdóm- ar og þjáningar koma i veg fyrir eölilegan svefn. En það er í alla staði hollara að sofa án notkunar svefn- meðala. Það skaltu festa þér í minni. Erik Olaf-Hansen VIKAN 11

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.