Vikan


Vikan - 14.05.1959, Blaðsíða 10

Vikan - 14.05.1959, Blaðsíða 10
Þriggja herbergja íbúð í norsku sambýlishúsi 1) Norðmenn hafa gert ýmsar merkilegar tilraunir mcð sambýlishús eftir stríð. Þeir hafa umfram allt lagt sérstaka alúð við hina hagkvæmu hlið málsins — nýtingu flatarmálsins og ekki síður hitt, hvað allur aimenn- ingur getur leyft sér. Ibúðir í norskum sambyggingum eru yfirleitt minni en gengur og ger- ist hér. Hér er sýnishom af þriggja herbergja fbúð, sem er að flafarmáli 80 fermetrar. Nýting flatarmálsins er að mörgn leyti athygiisverð en þó em á vankantar eins og oft. vill verða. Örin sýnir, hvar gengið er inn af stigaganginum. Fatahengi er til vinstri og gengt þaðan beint í eldhús. Eitt er athyglisvert: Mjög litill hluti gólfflatarins fer undir ganga. Sá kostur er að ganga í svefnherbergi hjóna úr stofunni. Með þvi er hægt að losna við langan og leiðinlegan gang, en gallalaust er það þó ekki að þurfa að ganga gegnum stofu til þess að komast f svefnherbergið. Ilaðherbergið er sett inn í miðju hússins. Mörgum finnst það ærinn ókostur að hafa ekki baðherbergið við útvegg og glugga. En ekki verður alltaf á allt kosið og fyrir vikið fæst mjög skemmtilegur borðkrókur, sem raunar er borðstofa, milli eldhúss og stofu. Efsti hluti skilveggjarins milli borðkróksins og baðherbergisins er úr möttu gleri og fæst þannig birta inn f baðherbergið. Sérstök ástæða er til þess að vanda loftræstingu f baðher- bergi þar sem svona hagar til. Svalirnar era byggðar inn að hálfu leyti og er það mjög gott. Á mörg- um hérlendum sambýlishúsum er ekki hálft gagn að svölum, vegna þess að þeim er tyllt utan á vegginn, svo vindar nái sér þar sem bezt. niður. 2) Baðherbergið. Baðkerið er með „svimtu“ og hægt að draga plasthengi fyrir það. Efst í veggnum — milli eldhúss og baðherbergis er gluggi. 8) Séð inn í eldhúsið úr borðkróknum. Það er rúmgott og bjart. Norskar eldhúsinnréttingar eru ekki verulega frábmgðnar íslenzkum. 4) Bamaherbergið. Hér er gott pláss fyrir tvö börn, a. m. k. þangað til þau em komin vel á legg. 1 herberginu em praktisk og sterk húsgögn. mm—S5 i 1 i , m *• ■ ' ■.?' ■ 2 Arkitektar: Christiansen og Bosland. 5) Stofan, séð frá svefnherbergisdyr- unum. Næst til vinstri sér í for- stofu og lengra til vinstri í hinn rúm- góða borðkrók. Handan við heila vegginn þar á milli er baðherbergið; tvöföld vængja- f" hurð opnast út á f svalirnar. J i

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.