Vikan


Vikan - 14.05.1959, Síða 14

Vikan - 14.05.1959, Síða 14
Aga Khan IV. í hásœti ■— vinstra megin við hann situr Amira bróðir hans en til hægri prins Sadruddin föðurbróðir hans. AGA K drottnari og andlei Múhame Begum og Aga Khan 3. Ismailitar eru sértrúarflokkur, grein út frá Sjia, sem aftur er önnur aðalgTein Muhameðstrúarmanna. Hinn andlegi titill yfirdrottnara þeirra er — iman — hinn veraldlegi — Aga Khan. — Þeir halda því fram, að Ali, sem giftur var Fatimu dótt- ur Muhameðs spámannsins hafi ver- ið útvalinn af Allah sem eftirmaður Múhameðs, — iman —. Hann átti að vera yfirmaður hinna trúuðu og einnig að skipa spá- mannlegt sæti Múhameðs. Ali var þvi hinn fyrsti iman. Síð- an hafa komið fram nokkrir imamar, en ágreiningur er um tölu þeirra. Ismailitar eru þeir kallaðir, af þvi að þeir vænta endurkomu eins hinna elztu imama, er hét Ismail sem lausnara sins, sem á þeirra máli er Mahdi. Það er nú liðið hálft annað ár, síðan Karim hinn 21 árs gamli Harward-stúdent, sonar-sonur Aga Khans m. var krýndur sem imam og Aga Khan IV. og tók þar með við andlegri og veraldlegri forsjá 20 milljóna manna samkvæmt fyrir- mælum í arfleiösluskrá afa síns, hins volduga imams Aga Khans III. Ættorni Aga Khans IV. má rekja til spámannsins. Hasan Ali Shah, sem varð Aga Khan I., var afkomandi Fatímu, dótt- ur Múhameðs spámanns. Hann var fæddur í Persíu um 1800 og giftist dóttur Persakeisara. Þeirra son var Aga Khan II., er giftist egypskri prinesssu. Einkasonur þeirra var svo Aga Khan HI. og sonarsonur hans er Karim hinn nýkrýndi Aga Khan IV. Hln kristna móðir ismamsins. Karim er sonur Ali Khan og prins- essu Joan, sem er fyrsta kona Ali Khan, hún er komin af enskum há- aðli, dóttir Churstown lávarðar. Hertoginn af Bedford, sem nefndur hefur veriö í sambandi við Margréti Bretaprinsessu og Karim eru systra- synir. Móðir hans valdi honum riafnið Karim, sem þýðir betlari, þvert ofan í vilja manns síns og tengdaföður. Kai’im er nafn, sem allir eiga gott með aö nefna, hvaða tungumál sem þeir tala, voru rök móðurinnar. Það er stutt, og það er einfalt, og það er að finna í Kóraninum. Joan prins- essa er gáfuð og vel menntuð kona. Hún var ávalt í miklum metum hjá tengdaföður sínum og eftir honum haft, að hún sé ein fegursta og sið- fágaðasta kona, sem hann hafi kynnzt. Á milli þeira rikti einlæg vinátta, þótt þau væru skilin, hún og sonur hans. Ég tilheyri bæði austri og vestri . . . Karim var 14 ára að aldri og Amim bróðir hans árinu yngri þegar foreldrar þeirra skildu. Móðir þeirra lét sér mjög annt um uppeldi þeirra og var stöðugt samvistum við þá. Jafnvel þegar þeir þurftu að dvelj- ast í heimavistarskólum. Þá flutti hún með þeim og bjó rétt hjá skól- anum, sem þeir dvöldust i. Sem ungur drengur hóf Karim nám sitt við Le Rossey-skólann 1 Sviss, sem oft er kallaður „hinn kon- unglegi skóli“ vegna þess, hve marg- ir prinsar og konungsefni hafa dval- ist þar við nám. Á styrjaldarárunum tók hún syni sína með sér til Nairobi, Kenya i Afriku, þar sem hún lét kenna þeim bænir Múhameðstrúarmanna, helgi- siði þeirra og venjur. Enda þótt hún sjálf sé kristinnar trúar, leggur hún mikla áherzlu á, að synir hennar fræðist sem bezt í öllu, sem þeirra trú býður og boðar. Öll hin æðri trúarbrögð eiga margt 3ameiginlegt, segir prinsessan, en Múhameðstrúin er trú feðra sona minna. Hjá Ismailitum eru konur jafn- ingjar karla. Þær fá sömu menntun og eru löglegir meðlimir æðsta ráðs þeirra. Það er öðru máli að gegna með aðrar greinar Múhameðstrúíir- manna. Faðirinn heimsfrægur munaðar- seggiu-. Það virðist engin óánægja meðal Ismailita yfir þeirri ráðstöfun Aga Khan III. að láta son sinn Ali Khan víkja fyrir sonarsyninum. ,,Mér er ómögulegt að ætla, að fað- ir minn geti borið óvildarhug til mín,“ var svar Karims við þeirri nær- göngulu og ósmekklegu spumingu eins blaðamannsins, hvort hann héldi, að faðir hans væri afbrýðissamur gagnvart honum, þar sem gengið \æri fram hjá honum sem -imam-. Það getur ekki hjá því farið, að hið óhóflega gleðilíf og svall kvennabós- ans Ali Khan hafi markað spor I líf og huga sonar hans. Karim er mjög hlédrægur og varfærinn og það jafnvel um of, að því er margir telja. ' Það gengur ekki sporlaust yfir gáfað ungmenni eins og Karim, sem er búinn að sýna, að hann er bæði framgjarn og kröfuharður við sjálf- an sig, að vita, að meðan hann er þetta ungur að árum og ekki enn bú- inn að sýna og sanna heiminum, að hann haldi fast við þá lífsstefnu, sem hann hefur þegar valið sér og sem afi hans hefur sýnilega treyst honum til að halda, muni skugginn af hinu ábyrgðarlausa lífi föður hans hvíla yfir honum i hugum fólksins. Það er þetta, sem gerir hann tor- 14 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.