Vikan - 14.05.1959, Side 20
GYÐJA
Ferðin upp fljótið hafði verið mjög
hættuleg og spennandi, en ég komst
samt heilu og höldnu til borgarinnar,
þar sem landsstjórinn hafði aðsetur
sitt. Hann var geysilega áhugasamur
listaverkasafnari og sögusagnir
gengu um það, að á velgengnisárum
sínum hefði hann notað pólitiska að-
stöðu sína hvað eftir annað til þess
að krækja í ómetanlega listafjársjóði
og beitt hreinu ofbeldi. En árangur-
inn var sá, að hann átti marga fá-
gæta, dýrmæta og mjög gamla, kín-
verska listmuni.
Ég kom hins vegar aðeins í þeim
tilgangi að líta á nokkur handrit.
Ég hafði aidrei heyrt um jarðlíknesk-
ið af Gyðju Miskunnseminnar, en af
tilviljun spurði ég landsstjórann
spurningar, sem varð til þess að
hann sagði mér eina merkulegustu
sögpi, sem ég hef á ævi minni heyrt.
Við sátum í dagstofunni og litum
yfir handritin, er ég nefndi hið stór-
merka safn hans. ,,Æ“, sagði hann
og veikt bros lék um varir hans,
,,í dag er það mitt, en á morgun til-
heyrir það ef til vill einhverjum
öðrum. Enginn á listaverk í meira
en hálfa öld. Þess konar hlutir eiga
sín örlög. Andi listamannsins lifir
áfram í/ þeim. Einkum ef allt hans
líf og starf var fullkomnað í einu
listaverki. Þannig er það með jaði-
styttuna mína af Gyðju Miskunn-
seminnar."
Hann bað mig að koma með sér
upp í turnherbergið, en þar geymdi
hann sína dýrustu fjársjóði.
„Hver er listamaðurinn ?“ spurði
ég-
„Ungur, næstum óþekktur maður
að nafni Chang Po. Gamla príorinn-
an í Cockcrow klaustrinu sagði mér
frá honum. Ég varð að gefa klaustr-
inu og þeirri gömlu gríðarstóra jörð
áður en hún fékkst til að láta stytt-
una af hendi. En \> f varð ekki fyrr
en nunnan, sem átti jaðigyðjuna, var
dauð.“
Styttan, sem var hálfur meter á
hæð og hafði einkennilega hvítleitan
litblæ með grænum blettum, stóð í
miðju herberginu í glerskáp, en í
kringum hann var gerði úr steypu-
járni svo þungt, að enginn gat hreyft
það.
„Gangið í kringum hana,“ sagði
landsstjórinn," og takið eftir ástinni,
að raun um, að hún fylgir yður stöð-
ugt með augunum."
Ég hafði líka einhvern veginn á
tilfinningunni, að jaðistyttan horfði
á mig, hvar sem ég gekk eða stóð.
Hún var með raunasvip. Litla gyðj-
an virtist hafa verið tekin til fanga
á átakanlegum flótta. Hún hélt
hægri handleggnum hátt upp, en
hún sá aftur fyrir sig yfir öxlina.
„Hvaðan fékk nunnan hana?“
spurði ég.
„Tátið á hana einu sinni enn,“ sagði
landsstjórinn,“ og takið eftir ástinni,
harminum og hræðslunni í augnaráði
! hennar.“ Hann þagnaði um stund.
„Við skúlum fara niður,“ sagði hann
skyndilega, svo skal ég segja yður
alla söguna."
Nunnan, sem hét Meilan, hafði
skrafað og sagt frá öllum smáatrið-
um, en landsstjórinn hafði grafist
fvrir um sannleiksgildi allra aðalat-
riða og fundið þau sannleikanum
samkvæm. Samkvæmt frásögn príor-
innunnar hafði nunnan verið mjög
fáskiptin og ekkert sagt um sjálfa
;sig fyrr en á banadægri sínu.
Þetta hlýtur allt saman að hafa
! skeð fyrir tæplega hundrað árum.
Þá var Meilan ung og hamingjusöm
; stúlka óg bjó í ríkulegu húsi í Peking.
Hún var mikið dekurbarn, enda einka-
barn háttsetts embættismanns. Fað-
ir hennar, sem var strangur dómari,
20
MISKUNNSEMINNAR
elskaði hana takmarkalaust. En eins
og hjá öllum efnuðum fjölskyldum í
Kína er fullt af skyldmennum í hús-
inu. Þeir skyldmennanna, sem höfðu
fengið gott uppeldi, tóku þátt í
stjórn heimilisins, en hinir störfuðu
þar sem þjónustufólk.
Einn góðan veðurdag kom ungur
frændi í húsið. Hann hét Chang Po
og var sextán ára að aldri, kátur,
kjörugur, lífsglaður og gáfaður ná-
ungi. Fjölskyldan varð þegar i stað
afar hrifin af honum og húsfreyjan
ákvað, að honum skyldi falinn sá
starfi að sjá um gesti, þótt hann
væri hvorki læs né skrifandi.
Hann var einu ári eldri en Meilan
og þar sem þau voru bæði börn, léku
þau sér mikið saman og hlógu og
töluðu, því að Chang Po gat sagt
Meilan heilmikið af sögum úr sveita-
Hfinu.
Eftir nokkrar vikur dofnaði hrifn-
ing fjölskyldunnar, því að drengurinn
virtist allt annað en auðveldur viður-
eignar. Hann var gleyminn og gerði
skyldur sínar hroðvirknislega og
þoldi illa ofanígjafir, er honum hafði
orðið á skyssa. Þá lét móðir Meilan
bann fara að vinna í garðinum, og
það virtist loks vera það, sem drengn-
um líkaði.
Chang Po var fæddur til þess að
skapa sjálfur, en ekki að læra það,
sem heimurinn hafði að kenna. Hann
gat búið til hina dásamlegustu hluti
með hinum litlu og fíngerðu höndum
sínum — fallegar pappírsluktir,
skemmtileg og lifandi leirdýr.
Er Chang Po var átján ára, var
hann orðinn stór og fallegur, og öll
fjölskyldan elskaði hann nema hús-
bóndinn á heimilinu. Milli frænd-
systkinanna hafði myndast gagn-
kvæmur trúnaður og vinátta, enda
þótt augljóst væri, að aldrei gæti
orðið hjúskapur milli tveggja af
sömu ætt.
Dag nokkurn tilkynnti Chang Po
húsfreyjunni, að hann hafði ráðizt í
læri til jaðismiðs og hún samþykkti
það, þvi að hún sá, að hann eyddi
alltof miklum tíma með Meilan. En
Chang Po hélt áfram að búa i hús-
inu og þegar hann kom heim úr
vinnunni, hafði hann meira að segja
frænku sinni en nokkru sinni fyrr.
„Meilan,“ sagði móðir stúlkunnar
dag nokkurn, „þið eruð nú orðin full-
orðin, Chang og þú. Enda þótt hann
sé frændi þinn, ættuð þið ekki að vera
svona mikið saman."
Sama kvöld sátu Meilan og Chang
Po saman á steinbekk í garðinum.
„Chang,“ sagði hún og roðnaði of-
urlítið. „Mamma segir, að við meg-
um ekki vera of mikið saman, af því
að nú séum við fullorðin. Hvað á hún
við með því“ ?
Chang Po lagði handlegginn utan
um mittið á henni. „Hún meinar að
það sé eitthvað, sem gerir þig feg-
urri í mínum augum með hverjum
deginum og vekur þrá mína að sjá
þig. Það er eitthvað, sem gerir mig
hamingjusamari í návist þinni, en
einmana og sorgmæddan, þegar ég er
í burtu frá þér. Meilan, við tilheyr-
um hvort öðru!“
Stúlkan kjökraði. „Þú veizt, að við
getum aldrei gift okkur og foreldrar
mínir munu sjá mér fyrir eiginmanni
áður en langt um líður.“
„Ég veit aðeins þetta,“ sagði Chang
Po og dró hana að sér. „Síðan him-
inn og jörð voru sköpuð höfum við
tilheyrt hvort öðru, og ég sleppi þér
ekki. Það getur ekki verið rangt af
mér að elska þig.“
Meilan reif sig lausa og flýði inn
í herbergið sitt. Um nóttina lá hún
vakandi og hugsaði um það, sem
móðir hennar og Chang höfðu sagt.
Eftir þessa nótt var hún gjörbreytt.
Þeim mun meir, sem þau börðust
gegn ást sinni, þeim mun betur fundu
þau, að þau voru henni ofurseld. Þau
reyndu að forðast hvort annað, en
allt kom fyrir ekki. Og eftir þrjá,
langa daga hittust þau aftur.
Þau höfðu engar framtíðaráætlan-
ir. Þau elskuðu hvort annað, og þeg-
ar foreldrar Meilan töluðu um, að
hún ætti nú að giftast þessum eða
hinum baðst hún undan því. Þár sem
hún var einkadóttir þeirra, höfðu þau
ekkert á móti því að hafa hana hjá
sér dálítið lengur.
Chang Po varð stöðugt duglegri
við vinnu sína. Þar sem hann var
mjög efnilegur, tókst honum brátt að
fullkomna sig í listinni. Hann elsk-
aði að skera í jaði og vann markvisst,
þar til verkið var fullkomnað. Tigið
fólk tók eftir honum og lagði leið
sína á verkstæði meistara hans.
Nú nálgaðist afmælisdagur keis-
aradrottningarinnar og föður Meilan
langaði til að gefa henni gjöf, sem
eitthvað var varið í. Hann komst
yfir óvenjulega stórt stykki af jaði,
af fínustu gæðum og fór með það til
kennara og meistara Chang Po. Er
hann sá verk hins unga manns, varð
hann stórhrifinn af hinni sérkenni-
legu fegurð þeirra og stakk upp á
VIKAN