Vikan - 15.10.1959, Blaðsíða 21
%
Hljlfffrnv. Sigríðar Helgadóttur
Höfum ávallt til fjölbreytt
úrval af
GÍTURUM
Viðurkennt vörumerki
Útvegum einnig og seljum
allar tegundir hljóðfæra
EINK AUMBOÐSMENN:
Vesturver — Reykjavik — Sími: 11315.
Önnumst uppsetningu á
olíuk/nditækjum
Höfum
fagmenn
í þjönustu
Hlutafélagið HAMAR
Sími 22123
Þegar liúmið læðist yfir borg og
byggð, er notalegt að fá sér góðan
kaffisopa í rólegheitum við heimilis-
arininn aS loknu dagsverlti.
Iiér kóma nokkrar einfaldar
lcökuupþskriftir.
Kaffikaka.
2 matsk. smjörlíki,
Vi bolli sykur,
2 egg,
1 sléttfullur bolli hveiti,
2'/i tesk. lyftiduft,
Vi bolli mjólk,
vanilludropar.
Eggjarauðurnar eru hrærðar sér,
síðan smjörlíki og sykri saman við.
Lyftiduftinu er blandað vel saman
við hveitið og mjólkinni jafnað sam-
an við. Þetta er síðan allt hrært
saman. Síðast eru látnar í þeyttar
hviturnar. Hringlaga tertuform er
smurt vel með feiti og helmingur af
deiginu settur í.
Nú er búið til annað deig eða
jafningur, sem síðan er sett á milli
laga.
f því er:
Vi bolli púðursykur,
2 tesk. kanill,
1 bolli hakkaðar hnetur,
2 matsk. hveiti,
2 matsk. brætt smjör eða smjörl.
Þessu er öllu hrært vel saman, —
skipt til helminga. Annar helming-
ur er nú settur ofan á það, sem
komið er í mótið, og þar á ofan það,
sem eftir var af fyrra deiginu. Síð-
an cr ])að, sem eftir var af þessari
seinni uppskrift af deigi, sett ofan
á, sein sagt, verður efsta lag kök-
unnar. Bakist við meðalhita í 1 klst.
Athuga skal að liafa hringmótið
frekar djúpt, par sem petta verða
4 þunn lög af deigi i forminu.
Hér eru tvær uppskriftir af smá-
kökum.
Súkkulaðikökur.
200 gr hveiti,
100 gr kókosmjöl,
y± tesk. hjartasalt,
200 gr smjörlíki,
125 gr sykur,
3 tesk. kakó,
4 vanilludropar,
1 egg.
Hveiti og hjartasalti er blandað
saman, og smjörlíkið er mulið saman
við. Síðan er látinn sykurinn, kókos-
mjölið, kakóið og vanilludroparnir.
Hnoðað saman með egginu. Rúllað
i lengjur. Hver lengja skorin í jafna
hita, sem hnoðaðir eru milli hand-
anna í kúlur, sem dýft er ofan i
sykur með möndlum. Bakist við
góðan hita, þar tii kökurnar eru
jafnþunnar.
Hálfmánar.
170 gr kartöflumjöl,
100 gr hveiti,
100 gr sykur,
1 dl rjómabland,
100 gr smjörlíki,
1 tesk. vanilludropar,
% tesk. lyftiduft,
Vi tesk. hjartasalt,
sulta (t. d. svesk)(usulta eða
rabarbarasulta).
Kartöflumjöli og hveiti blandað
og sykri, lyftidufti og hjartasalti,
smjörl. mulið í; vætt með rjóma-
blandi. Droparnir settir i. Deiginu
skipt í tvennt og flatt út; kökur
skornar úr þvi með vatnsglasi. Litil
lesk. af sultu sett á hverja köku.
Kakan lögð saman og þrýst fast á
rendurnar, t.d. með gaffli. Bakist
ljósbrúnar við góðan liita.
Með kvöldbffínu
V IK A N
21