Vikan - 15.10.1959, Side 27
Þessar litlu, fallegu stúlkur voru meö kínverska liatta og fléttur viö opnun
sýningarinnar. Sú eldri heitir Þóra og er dóttir Bjargar Jónasdóttur og Jóns
Sen. Sú yngri heitir Sigríöur Hrafnhildur og er dóttir Signýjar Sen og Jóns
Júlíussonar.
Kímersk listsýiiingr
Fyrir nokkru var efnt til sýningar á kínverskum listmunum í eigu frú
Oddnýjar E. Sen. Sýningin er í Bogasal þjóðminjasafnsins og þar gefur að
líta ýmsa furðugripi, sem bregða ljósi á forna, kínverzka listmenningu. Mesta
athygli vekja postulínsvasar og gullsaumur, mikið dýrmæti og mundi ein-
hverjum þykja þolinrnæðisverk að sauma slika dúka. Menning Kínverja er
forn og listmenning er samgróin lífsvenjum þeirra. Hún birtist þar sem sízt
skyldi við búast, jafnt hjá auðmanninum og í nytjahlutum fátæklingsins.
Frú Oddný E. Sen dvaldist í 16 ár í Kína og lagði allmikla stund á söfnun
kínverskra listmuna. Þessa muni hefur hún varðveitt á heimili sínu og ekkert
látið af þeim, enda þótt margir hafi eftir þeim falazt. Hinsvegar hefur Oddný
gefið eripi, t. d. Mandalay-kápu, gullsaumaða, sem er á safninu hér.
Hagleikur hinna fornu, kínversku listamanna er okkur ráðgáta á margan
hátt. Efniviðurinn skiptir þá næstum ekki máli. Það er sama hvort þeir hafa
næfurþunna korkflögu eða hnetukjarna í höndunum. Einn sá gripur í eigu
Oddnýjar, sem hvað mesta athygli hefur vakið, er kúla, fagurlega útskorin.
En þegar betur er að gáð, sést., að göt eru á kúlunni og síðan hver kúlan
innan í annari, átta alls. Það lygilega við þetta allt saman er, að stærri
kúlurnar hafa alls ekki verið skornar út sér og látnar utan um hinar smærri,
heldur hefur hver kúla verið gerð gegnum götin á hinum sem eru utanum. Það
er ómaksins vert að líta í Bogasalinn og skyggnast inn í þann heim, sem liggur
að baki þessara verka.
Veggteppi á Kinversku sýningunni. Myndin er gerö af gullfiráöum, sem
saumaöir eru ofan á grunninn.
NYTIZKU ELDAVEL
í NÝTIZKU ELDHUS
Nýtízku gerðir Rafha eldavéla
fullnægja óskum sérhverrar
húsmóður um útlit og gæði, og
svo er verðið við hvers manns
hæfi.
íslenzkar húsmæður velja
íslenzk heimilistæki.
H J. Raftækjaverksmiíljan
HAFNARFIRÐI - StMAR: 50022 OG 50023